Fréttablaðið - 26.08.2017, Qupperneq 24
Sr. Vigfús Bjarni Albertsson starfar sem sjúkrahús-prestur á Landspítalan-um. Hann er landskunnur frá því hann tók ákvörðun um að bjóða sig fram til
embættis forseta Íslands á síðasta
ári. Færri vita að hann starfaði um
árabil sem lögreglumaður með
námi. Í starfi lögreglumannsins
fann hann fyrir löngun til að þjóna
fólki í erfiðum aðstæðum. Verða
því að gagni. Hann fylgdi löngun
sinni og tók M.th.-próf í sálgæslu frá
Luther Seminary í St. Paul í Banda-
ríkjunum. Hann hefur frá því hann
hóf störf sem sjúkrahúsprestur árið
2005 öðlast víðtæka reynslu af því
að starfa með foreldrum sem misst
hafa barn.
„Ég fékk símhringingu frá lög-
reglustjóranum um kvöld í vetur. Þá
var hafin leit að Birnu heitinni og
ég beðinn um að hjálpa fjölskyldu
hennar í þessum erfiðu aðstæðum.
Ég hef fylgt fjölskyldunni síðan
þá,“ segir Vigfús. „Lögreglan finnst
mér hafa staðið sig vel, verklagið
einkenndist af auðmýkt gagnvart
aðstandendum. Ég fann fyrir mikilli
hlýju og getu til að hlusta.“
Í vikunni sendi hann frá sér orð-
sendingu á Facebook að beiðni
foreldra Birnu. Vigfús minnti á að
sumar lýsingar sem fram koma í
meðferð máls Birnu væru þess eðlis
að þær ættu ekki erindi við almenn-
Bataferli í kringum áföll af mannavöldum er erfitt að sögn séra Vigfúsar Bjarna Albertssonar sjúkrahúsprests, sem hefur aðstoðað fjölskylduna frá upphafi í vetur. FréttABlAðið/Vilhelm
Illskan
og hugrekkið
til að sýna
kærleik
Séra Vigfús Bjarni Albertsson hefur stutt
fjölskyldu Birnu heitinnar Brjánsdóttur frá
því í vetur. Hann segir hvort tveggja mikil-
vægt að: Að horfast í augu við illsku og hafa
hugrekki til að sýna kærleika. Móðir Birnu,
Sigurlaug Hreinsdóttir, vill að þjóðin varð-
veiti minningu Birnu í málsmeðferðinni.
ing. Þær yllu óbærilegum sársauka
og sköpuðu hryllilegar myndir í
hugskoti fjölskyldumeðlima. Vig-
fús kom þeirri ósk foreldranna
áleiðis að fjölmiðlar fari gætilega í
lýsingum sínum.
„Bataferli í kringum áföll af
mannavöldum eru erfið. Ég held
að fólk skilji vel þessa beiðni, þau
eru ekki að biðja um að atvikum
sé leynt eða því sleppt að fjalla um
þau. Þau biðja einfaldlega um að
þær upplýsingar sem eigi alls ekki
erindi við almenning rati ekki í
fréttir. Fjölmiðlar hafa frá upp-
hafi staðið sig ákaflega vel og fjöl-
skyldan kann að meta starf þeirra
í heildina. Það eru margar hliðar á
þessu og það sem er mikilvægt er að
frá byrjun upplifðu ástvinir Birnu
samhug og stuðning þjóðarinnar.
Fín lína
Fjölmiðlar og lögregla unnu ákaf-
lega vel saman að því að veita
upplýsingar um málið. Birna varð
stúlkan okkar. Skyldu fjölmiðla
sinntu blaðamenn í heildina vel.
Við verðum samt öll að geta tekið
gagnrýni. Það sem er erfitt núna
er að heyra grafískar lýsingar sem
eru aukaatriði málsins og atvika en
auka mjög á hrylling ástvina sem
ímynda sér síðustu stundir dóttur
sinnar. Þetta er fín lína sem er auð-
velt að fara yfir,“ segir Vigfús. „Það
er bæði mikilvægt að horfast í augu
við illskuna. Fjalla um hana og hafa
hugrekki til að sýna kærleika. Að
gera ekki meira en okkur ber skylda
til. Að særa ekki að óþörfu. Við
þurfum öll að æfa okkur í þessu,“
segir Vigfús.
„Álagið er mikið núna og sérstak-
lega þegar upplýsingar koma fram
við málsmeðferðina sem fjölskyldan
heyrir í fyrsta sinn,“ bætir hann við.
Vigfús nefnir að bataferli í kring-
um áföll af mannavöldum séu erfið.
„Það er einhver manneskja sem er
völd að missinum og sorginni og því
fylgir tilfinning að hafa ekki stjórn.
Það er virkilega erfitt.“
Starf Vigfúsar í aðstæðum sem
þessum er víðtækt. „Ég hjálpa
Við Verðum samt öll
að geta tekið gagn-
rýni, það sem er erfitt
núna er að heyra graf-
ískar lýsingar sem eru
aukaatriði málsins og
atVika en auka mjög á
hrylling ástVina.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
↣
2 6 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R24 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
2
6
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
4
-3
9
A
8
1
D
9
4
-3
8
6
C
1
D
9
4
-3
7
3
0
1
D
9
4
-3
5
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
2
5
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K