Fréttablaðið - 26.08.2017, Page 36
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is,
s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage,
johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Eftir fárviðri, skipsskaða og manntjón, sem urðu við bæjardyrnar í byrjun
tuttugustu aldar, rann aðstöðu-
leysið við höfnina Reykvíkingum
til rifja. Hafnarsjóður hafði að
vísu verið stofnaður 1856 en
menn veltu lengi vöngum yfir
því hvernig og hvar hafnarmann-
virkjunum væri best komið fyrir,“
segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri
Faxaflóahafna, sem eiga og reka
Reykjavíkurhöfn, Akraneshöfn,
Borgarneshöfn og Grundartanga-
höfn.
Gísli segir vakningu hafi orðið
meðal íslensku þjóðarinnar með
tilkomu heimastjórnarinnar 1904.
„Þá fóru landsmenn að taka
innviði samfélagsins í eigin
hendur og var hafnargerðin
stærsta verkefnið sem ráðist var í.
Framkvæmdir hófust 1913 og var
fyrsti áfangi hafnarinnar tilbúinn
í nóvember 1917. Hafnargerðin
markaði tímamót fyrir uppgang
þjóðarinnar. Til varð flutninga-
fyrirtækið Eimskip árið 1914 og
þrátt fyrir fyrri heimsstyrjöldina,
harðan vetur og spænsku veikina
1918, kom að því að Ísland varð
fullvalda 1. desem ber 1918. Þar
skipti höfnin og aðrir innviðir
sköpum og frá þeim tímapunkti
fóru menn að taka flugið inn í
nútímann; með byggingu brúa,
samgöngumannvirkja, skóla-
bygginga og sjúkrahúss.“
Hafnargerðin var stórvirki á
íslenskan mælikvarða og réttu
verkfærin skorti.
„Fluttar voru inn tvær eim-
reiðar ásamt miklum gufukrana
til að vinna grjót úr Öskjuhlíð.
Grjótið var flutt með lestum
niður á Granda og Ingólfsgarð þar
sem það var höggvið til af verka-
mönnum sem lögðu á sig ótrúlegt
erfiði við hleðslu varnargarð-
anna. Ekki var mikið umleikis
í atvinnulífi Reykvíkinga á
þessum árum og varð hafnar-
vinnan því mikilvægur þáttur í
bæjarlífinu þar sem Dagsbrún
gerði sína fyrstu kjarasamninga
vegna hafnarvinnunnar,“ segir
Gísli um ógnarstórt mannvirkið
sem margir efuðust um í fyrstu
en hefur alla tíð sýnt að marg-
borgaði sig.
Einstök höfuðborgarhöfn
Hafnargerðin var mikil lyftistöng
fyrir höfuðborgina.
„Áður lágu stærri bátar, skip
og skútur þar sem kallað er á
Ytri höfninni og gátu hvergi lagt
að bryggju. Tækin sem notuð
voru við hafnargerðina voru
með viðkomu í Viðey þaðan sem
þau voru flutt á pramma yfir
til Reykjavíkur, en annars voru
almennar vörur losaðar í smærri
báta og landað við bryggjustúfa
sem kaupmenn í Reykjavík áttu.
Vélbátaöldin var gengin í garð og
síðan togara útgerðin, en Reykja-
víkurhöfn var forsenda þess að
hér óx gríðarmikil togaraútgerð
sem hafði stórtæk áhrif á þróun
borgarinnar. Atvinna við höfnina
tók flug, í kringum hana uxu og
döfnuðu fyrirtæki, og við Báru-
götu, Öldugötu, Vesturgötu og
fleiri götur í grennd við höfnina
spruttu upp fallegar byggingar,
enda voru menn fjáðari en áður,“
útskýrir Gísli.
Reykjavíkurhöfn liggur frá allri
Örfirisey, meðfram Mýrargötu og
Miðbakka, og framan við Hörpu;
alls liðlega sextíu hektarar. Höfn-
inni var vel valinn staður út frá
mörgum sjónarhornum.
„Höfnin var vel skýld og
þjónaði þéttbýlinu sem var að
myndast í miðbæ Reykjavíkur.
Fram á 7. áratuginn fór allur
inn- og útflutningur um höfnina,
eða þar til Eimskip og skipadeild
Sambandsins fluttu í Sundahöfn.
Enn standa frystihús við höfnina
og þótt menn hafi í þá daga ekki
velt vöngum yfir umhverfis-
málum er vitaskuld hagkvæmt
að vera með hafnarstarfsemi
sem næst þeim markaði sem hún
þjónar. Þannig er Reykjavík eina
höfuðborgarhöfn Evrópu þar sem
enn er stunduð lifandi útgerð
og fiskvinnsla, sem er atvinnu-,
menningar- og sögulega mikil-
vægt að varðveita til lengri tíma.“
Líflegt á hafnarbakkanum
Reykjavíkurhöfn hefur frá fyrstu
tíð þróast í takt við nýja tíma og
staðist tímans tönn.
„Margt hefur breyst á heilli
öld,“ segir Gísli. „Mesta breyt-
ingin varð þegar flutningaskipin
fóru yfir í Sundahöfn og breyting
á fiskveiðum hefur líka orðið
mikil. Smábátum hefur fækkað
en togarar orðið stærri og full-
komnari. Eftir sem áður er höfnin
góð fyrir þá starfsemi sem hún
getur sinnt og í skjóli fiskvinnslu,
útgerðar og slippsstarfsemi hefur
bæst við hafsækin ferðaþjónusta,
skemmtiferðaskip og menning
á hafnarbökkunum. Sá aðili sem
hefur sennilega verið samfleytt
og lengst í Gömlu höfninni er
Landhelgisgæslan, sem hefur þar
verið með heimahöfn frá árinu
1926.“
Reykjavíkurhöfn er réttnefnd
menningarhöfn og hefur áhugi
á höfninni og hafnarlífinu vaxið
hratt á undanförnum áratug. Gísli
segir það fagnaðarefni.
„Hafnarlíf í miðri höfuð-
borginni er einstakt og heillandi.
Í gamla daga var hafnarrúnturinn
sjálfsagður hluti af lífinu en nú
hefur hann vaknað að nýju eftir
að við opnuðum svæði hafnar-
innar sem er eðlilegt að almenn-
ingur hafi aðgang að. Önnur
svæði þurfa að vera lokuð út frá
hinni hörðu hafnarstarfsemi sem
þar fer fram. Á sjó og landi er
höfnin stór þáttur í bæjarlífinu en
til að halda sjarmanum þurfum
við að vanda okkur með þróun
hafnarinnar til lengri tíma.“
Minningar kvikna og lifa
Formlegur afmælisdagur Reykja-
víkurhafnar er 16. nóvember.
„Reykjavíkurhöfn, og frá 1914
Gamla höfnin, var megingátt
þjóðarinnar fyrir gesti og utan-
ferðir Íslendinga um aldarskeið.
Gullfoss sigldi héðan til Kaup-
mannahafnar og á hafnarbakk-
anum gerðust sögulegir viðburðir
eins og hernámið, þegar hand-
ritin komu heim og svo Nóbels-
skáldið árið 1955. Minningarnar
er mikilvægt að varðveita og þótt
hlutverk hafnarinnar breytist má
mikilvægi hennar ekki minnka,“
segir Gísli.
Faxaflóahafnir leggja nú allt
kapp á að fá umhverfisvottun á
afmælisárinu og innleiða af því
tilefni ISO 14001-umhverfis-
stjórnunarkerfi. Verður Reykja-
víkurhöfn fyrsta höfn landsins til
að ná þeim áfanga.
„Það er tímanna tákn í hafnar-
starfsemi að koma sér í umhverf-
isvottaða starfsemi, enda koma fá
fyrirtæki jafn víða að í umhverfis-
málum og hafnir. Árlega munum
við planta að minnsta kosti
hektara af trjám á Grundartanga,
en þar er fyrir mikil skógrækt, og
við höfum haldið grænt bókhald
frá árinu 2006. Þá eru Faxaflóa-
hafnir eitt 130 íslenskra fyrir-
tækja sem hafa skuldbundið sig
til að draga úr losun gróðurhúsa-
tegunda samkvæmt Parísarsam-
komulaginu. Við mælum reglu-
lega sjávargæði og gætum þess
að mengandi efni séu ekki látin
í höfnina, sem hefur tekist vel.
Þá leggjum við metnað í frágang
opinna svæða, útblástur skipa og
dýpkun hafnarinnar sem fer eftir
ákveðnum ferlum,“ útskýrir Gísli.
Faxaflóahafnir og Hafnasam-
band Íslands hafa einnig skrifað
undir áskorun The Arctic Com-
mitment um bann við notkun á
svartolíu í Norðurhöfum.
„Svartolía er næsti bær við kol
og enn er svartolía á of mörgum
íslenskum skipum. Útgerðin
hefur þó verið nokkuð framsækin
því útgerðarmenn skilja að ganga
þurfi vel um hafið til að eiga
möguleika á nýtingu auðlinda
þess. Við munum því sjá fleiri
skip sem ganga fyrir fljótandi gasi
á næstu árum, og skemmtileg en
alls ekki óraunhæf framtíðarsýn
eru rafmagnsbátar og væri frá-
bært ef hafsækin ferðaþjónusta
og náttúrulífsferðir notuðu báta
sem knúnir væru með rafmagni.“
Sjá faxafloahafnir.is til að skoða
afmælisdagskrá Faxaflóahafna á
afmælisárinu.
Framhald af forsíðu ➛
Reykjavíkurhöfn í byrjun síðustu aldar. Þá lágu stærri bátar, skip og skútur þar sem kallað er á Ytri höfninni og gátu hvergi lagt að bryggju í höfuðstaðnum.
Verkamenn í grjótnáminu í Öskjuhlíð við hafnargerðina 1913-1917.
Pioneer-eimreiðin sem notuð var til grjótflutninga. Við hlið hennar standa
eimreiðarstjórarnir Guðmundur Guðmundsson og Páll Ásmundsson.
Við upphaf hafnargerðarinnar í Reykjavík 1913. Byrjað að leggja Grandagarð.
MYNDIR/ÚR LJÓSMYNDASAFNI FAXAFLÓAHAFNA
Það voru stór tímamót þegar bátar og skip gátu loks lagst að bryggju í Reykjavík
og við tók öflug togaraútgerð sem hafði mikil áhrif á uppbyggingu í borginni.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . ÁG Ú S T 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
2
6
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
4
-5
7
4
8
1
D
9
4
-5
6
0
C
1
D
9
4
-5
4
D
0
1
D
9
4
-5
3
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
2
5
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K