Fréttablaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 59
Skrifstofustjóri
Fjölskyldusvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða
skrifstofustjóra. Um er að ræða 100% starf og æski-
legur ráðningartími er frá 1. nóvember 2017.
Helstu verkefni eru:
• Umsjón með skrifstofueiningu Fjölskyldusviðs
• Heldur utanum rekstur/bókhald kostnaðarstöðva sviðsins
• Vinnur að fjárhagsáætlana- og starfsáætlanagerð samstarfi við sviðsstjóra
• Sinnir fjárhagslegu eftirliti
• Sinnir ýmsum þróunarverkefnum
Menntunar- og/eða hæfniskröfur:
• Háskólapróf á viðskipta- eða rekstrarsviði.
• Reynsla af almennum skrifstofustörfum þ.m.t. bókhaldi er nauðsynleg ásamt færni í öllum almennum tölvuforritum
• Þekking á Navision og SAP er kostur
• Mikill sveigjanleiki og framúrskarandi samskiptahæfni er nauðsynleg svo og hæfni til að vinna sjálfstætt
• Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu
Akureyrarbæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um
rafrænt.
Umsóknarfrestur er til og með 10. september 2017
Staða leikskólastjóra við leikskólann Hálsaskóg
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Hálsaskógi.
Hálsaskógur er 6 deilda leikskóli við Hálsasel 27-29 í Seljahverfi í Reykjavík. Leiðarljós leikskólans eru leikur, virðing og vinátta og
markvisst er unnið með fjölbreytileikann og fjölmenningu. Leikskólinn er Grænfánaskóli og tók þátt í Nordplus Junior verkefni um
umhverfismennt, The earth depends on me. Útinám og vettvangsferðir skipa stóran sess í starfinu og markmiðið er að börnin fái
tækifæri til að njóta og upplifa. Unnið er eftir hugmyndafræði um jákvæða sálfræði og verið er að innleiða Uppeldi til ábyrgðar.
Hálsaskógur tekur þátt í verkefninu Heilsueflandi Breiðholt og áhersla er lögð á að bjóða upp á hollan og góðan mat í leikskólanum.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf
í Hálsaskógi.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og greinargerð um framtíðarsýn
umsækjanda á starf í leikskólanum.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. nóvember 2017. Umsóknarfrestur er til og með 11. september 2017.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda
leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála, sími 411 1111.
Netfang: ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu
Reykjavíkurborgar.
• Hafa yfirumsjón með daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og
starfsmenn.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskóla-
stigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
ÓSKUM EFTIR HRESSU OG DUGLEGU STARFSFÓLKI.
Vilt þú verða hluti af faglegum, duglegum og skemmtilegum hópi starfsfólks á KFC?
Hefurðu áhuga á að vinna fyrir eina stærstu skyndibitakeðju heims og eiga möguleika á að vinna þig
upp og þróast í starfi? Við bjóðum uppá sveigjanlegan vinnutíma og frábæra stemningu á vinnustað.
Hefur þú áhuga á að slást í hópinn? Fylltu út umsóknarformið á www.kfc.is/atvinna
Fyrirspurnir um störfin sendist á barbara@kfc.is
ÉG VIL VINNA
MEÐ ÞÉR
2
6
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
9
4
-6
1
2
8
1
D
9
4
-5
F
E
C
1
D
9
4
-5
E
B
0
1
D
9
4
-5
D
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
2
5
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K