Fréttablaðið - 26.08.2017, Side 104

Fréttablaðið - 26.08.2017, Side 104
Asger Jorn (1914-1973) er mikilvægt nafn í norrænni mynd-listarsögu síðustu aldar. Á Íslandi er hann einkum þekktur fyrir að vera einn stofn- enda COBRA hreyfingarinnar, en allmargir íslenskir listamenn tengd- ust hreyfingunni og þá sérstaklega Svavar Guðnason. Auk þess að vera mikilvirkur listamaður þá var Asger Jorn alla tíð pólitískur ein- staklingur, var m.a. um tíma virkur í andspyrnuhreyfingu kommúnista á hernámsárunum en jafnframt frið- arsinni sem var hugmyndafræðilega virkur í bæði lífi sínu og list. Í dag verður opnuð í Listasafni Íslands all sérstæð sýning á merkum hluta af höfundarverki Asgers Jorn en sýningarstjóri er myndlistar- maðurinn, sýningarstjórinn og rit- höfundurinn Henrik Anderson. Henrik bendir á að flestir þekki til Jorns sem abstraktmálara frá fimmta til sjöunda áratugarins og að það höfundarverk hans sé vissulega gríðarlega mikilvægt. „Færri vita að hann var einnig virkur í ýmsum öðrum verkefnum en COBRA og m.a. í stofnun hreyfingar situat- ionista sem var byltingarkennd listræn hreyfing. En á meðan á öllu þessu stóð var hann alltaf að vinna að eigin rannsóknarverkefni. Þetta verkefni var í aðra röndina afar fræðilegt en svo fól það einnig í sér ákveðið háð gagnvart hinni aka- demísku nálgun að listasögunni. Risavaxið alfræðirit Á þessum tíma, frá því seint á sjötta og snemma á sjöunda áratugnum, fór Jorn fjölmargar ferðir vítt og breitt um Skandinavíu og reyndar víðar um Evrópu og ljósmyndaði listmuni af ýmsum toga. Mark- miðið var að setja saman 32 binda alfræðirit um skandinavíska alþýðu- list. Verkið átti að heita Tíu þúsund ár af norrænni alþýðulist. Það fór þó því miður þannig að þetta verkefni gekk ekki upp þar sem hann fékk ekki þá viðurkenningu sem til þurfti frá fræðimönnum þess tíma, þrátt fyrir að hafa áður fengið ýmis vil- yrði fyrir fjárstuðningi og jafnframt listrænu frelsi sem varð svo aldrei raunin. Það leiddi til þess að Jorn pakkaði skjalasafninu, sem innihélt tugir þúsunda ljósmynda, niður og það gerði hann reyndar með frekar dramatískum og táknrænum hætti. Skjalasafnið kallaði hann Scand- inavian Institute of Comparative Vandalism. Þetta efni átti eftir að liggja lengi óhreyft en það hefur þó loksins verið að breytast á síðustu árum.“ Henrik Anderson segir að hann hafi lagst í að rannsaka þetta gríðar- lega stóra skjalasafn Jorns og setja svo upp sýningar þar sem hann útskýrir aðferðafræði listamanns- ins. „Sýningin hjálpar okkur að skilja hvers vegna Jorn kallaði þetta mikla safn Scandinavian Institute of Comparative Vandalism. Svarið við því að er að finna á sýningunni í skoðun á nálgun og aðferðum Jorns á þessu mikla viðfangsefni.“ Aðferð en ekki verk Henrik Anderson segir að með því að koma nú með þessa sögu til Íslands þá bæði gefist listunnendum hér tækifæri til þess að kynna sér það sem að baki liggur, en einnig sé gaman að skoða þau tengsl sem listamaðurinn hafi haft við landið. „Jorn og Halldór Laxness voru til að mynda góðir vinir og unnu meðal annars saman að bókverki eftir Sögunni af brauðinu dýra, sem er eflaust öllum hér vel kunnug. En Asger Jorn var einnig góður vinur dr. Selmu Jónsdóttur listfræðings, en þannig vill til að hér er einmitt verið að minnast aldarafmælis þeirrar merku konu um þessar mundir. Að auki þá hefur komið á daginn að Selma tók þátt í umræddum rann- sóknum Jorns. Hún hafði tekið að sér að ljósmynda íslenska listmuni og sitthvað fleira. Þetta er eitthvað sem við vorum bara að átta okkur á nýverið en það er líka hluti af því hvernig við vinnum í þessu ferli. Málið er að Asger Jorn hafði komið sér upp heilmiklu alþjóðlegu neti lista- og fræðimanna sem honum tókst að virkja í þessu stóra verkefni og auðvitað veitti ekki af.“ Henrik Anderson bætir við að sýningin í Listasafni Íslands snúist meðal annars um þessa þætti rann- sóknar Asgers Jorn og sé því alls ekki hefðbundin listaverkasýning. „Þetta snýst um að útskýra aðferð fremur en að vera verk eftir Asger Jorn. Þetta er spurning um það hvernig við getum skoðað myndefni og listaverk og sett það í ákveðið sam- hengi.“ Skapandi skemmdarverk En um hvað snýst þetta hugtak Comperative Vandalism sem þýða má kannski sem samanburðar- skemmdarverk? „Þegar Jorn notar þessa nálgun skemmdarverkanna þá er það í fyrsta lagi tilraun til þess að skapa hugtak sem hann getur notað til þess að túlka allt þetta efni. En í öðru lagi þá felur það líka í sér ögrun, ákveðið háð og grín. Margir listamenn hafa þó reynt að nýta sér skemmdarverkahugtak- ið sem eitthvað skapandi, eitthvað sem skapar nýja merkingu. Hugsaðu þér til að mynda að þú ofskrifir eitt- hvað – að þú gangir of langt. Þetta er staða undirmálsmannsins, þess sem hefur alltaf á brattann að sækja í samfélaginu. Þess sem segir: Þú sérð það sem ég geri sem skemmdarverk en fyrir mér er það afl til sköpunar. Leið til þess að ganga gegn viðtekn- um venjum og skapa eitthvað nýtt. Þetta er það sem Asger Jorn var að reyna að þróa og þetta er það sem hann finnur í norrænni alþýðu- list. Hann finnur þennan samruna stíla frá ólíkum stöðum og tíma- bilum, þessi endurskrif sem leiða af sér að verkið er ofskrifað ef svo má segja. En í þessu ferli þá gefur hann út mikið af yfirlýsingum og sumar þeirra voru jafnvel í andstöðu við hans eigin hugmyndafræði þannig að í raun var hann stöðugt að vinna skemmdarverk á sinni eigin vinnu. Þannig að í öllu sem hann er að gera á þessum tíma þá fylgir hann sinni eigin hugmyndafræði og rökum.“ Allt er þetta líka hluti af því að Asger Jorn var stöðugt að endurupp- götva sig sem listamann og Henrik Anderson segir að sem listamaður hafi hann vissulega verið hluti af avant garde hreyfingu. „Þarna var verið að gera tilraunir með tónlist, kvikmyndir og málverkið – í raun stöðugt verið að rannsaka takmörk hins hefðbundna, láta reyna á allt til hins ýtrasta. En það sem gerir þetta sérstaklega áhugavert er að þó svo allar þessar listrænu tilraunir hafi verið samþykktar ef svo má segja þá gekk hann á vegg þegar kom að því að endurskrifa listasöguna. Þá mætti honum algjört skilningsleysi og vantrú. Það er ótrúlega áhugavert og mikilvægt að skoða nánar.“ Gekk á vegg þegar komið var að listasögunni Henrik Anderson  þekkir hugmyndaheim listamannsins Asgers Jorn öðrum betur og stýrir mjög fróðlegri sýningu á  Listasafni Íslands á risavöxnu skjalasafni listamannsins sem var hafnað sem fræðimanni. Henrik Anderson stendur hér yfir broti af því sem er að finna í skjalasafni Asgers Jorn, Scandinavian Institute of Comparative Vandalism. FRéttAblAðIð/Anton bRInk Myndir úr skjalasafninu Scandinavian Institute of Comparative Vandalism. FRéttAblAðIð/Anton bRInk ÞettA er spurning um ÞAð Hvernig við getum skoðAð myndefni og ListAverk og sett ÞAð Í ákveðið sAmHengi. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 2 6 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R52 m e n n i n g ∙ F R É t t A B L A ð i ð menning 2 6 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 0 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 9 3 -F 9 7 8 1 D 9 3 -F 8 3 C 1 D 9 3 -F 7 0 0 1 D 9 3 -F 5 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 2 0 s _ 2 5 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.