Fréttablaðið - 26.08.2017, Síða 118

Fréttablaðið - 26.08.2017, Síða 118
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Lífið í vikunni 18.08.17- 24.08.17 Juvenile er oft tengt alvarleg­um hlutum, eins og juvenile fangelsi í Bandaríkjunum – mig langaði til að nota þann titil og setja fyrir aftan það bliss, sem er svona sjúklega „joyful“ augnablik. Þaðan kemur titillinn inn og hóparnir sem ég er að mynda eru tvær kynslóðir sem lifa óhefðbundnu lífi á einhvers konar jaðri,“ segir ljósmyndarinn Þórsteinn Sigurðsson, eða Xdeath­ row, sem opnar í næsta mánuði ljósmyndasýninguna Juvenile Bliss. Sýningin verður haldin í gömlu Rak­ arastofunni á Klapparstíg. Juven­ ile bliss er samansafn mynda af tveimur hópum sem Þórsteinn elti um og eiga það sameiginlegt að vera á jaðrinum. Þórsteinn segir myndirnar oftast nær hlutlausar, að hann stilli engum upp og reyni frekar að vera eins og fluga á vegg. „Í fyrri hópnum eru vinir mínir, í raun er ég að vinna heimildarljós­ myndun á eigin félagsskap og þar er svona graff, skeit og pönk element í gangi. Ég hef alltaf leitað í þannig fólk og tek mest eftir þannig fólki. Síðan var ég að mynda 15 til16 ára krakka í vetur og sumar sem ég fékk að kynnast og sem hleyptu mér inn í sínar aðstæður. Ég er mjög kaotískur þegar kemur að þessari vinnu minni – ég bý ekki til konsept sem ég fylgi síðan fast eftir. Þetta er meira eitthvað sem er búið að vera að gerast og einhvers konar framlenging af sjálfum mér, því lífi sem ég lifi og því fólki sem ég umgengst og kynnist. Þessar myndir eru teknar alveg frá 2006 og til dagsins í dag. Mig langaði til að hnýta saman tvær kynslóðir sem mér fannst eitthvað spenn­ andi við, eitthvað mjög tært sem ég hrífst af. Það er svona pönk element í báðum þessum hópum sem ég er búinn að vera að mynda, það sem er sameiginlegt í þessum hópum er að hvorugur hópurinn fer eftir þessum „basic“ reglum um hvernig á að vera sem einstaklingur, hvað er skyn­ samlegt fyrir þig og hvað ekki. Það er ákveðin framlenging af sjálfum mér – ég hef farið eftir eigin leiðum í lífinu og það er bara allt í lagi, það gengur bara ágætlega hjá mér.“ Hvernig kynntist þú yngri hópn­ um? „Í fyrstu voru þetta strákar, þrí­ burar, sem ég sá einhvers staðar niðri í bæ. Ég vissi upphaflega ekki að þeir væru þríburar en síðar komst ég að því. Ég hafði bara sam­ band vegna þess að ég fílaði stílinn þeirra – fatastílinn, útlit þeirra, ég fílaði að þeir voru þríburar og að þeir væru að skeita. Síðan í fram­ haldinu kynntist ég hópnum þeirra. Að sjálfsögðu þurfti ég að setja mig í samband við foreldra þeirra og gera þetta ábyrgt – það er auðvitað pínu skrítið ef einhver 29 ára gaur fer að hanga með börnum í 10. bekk. Þetta var alveg ákveðið verkferli, ég þurfti alveg að setja sjálfan mig á professional level til að geta gert þetta. Ég vildi líka skilja eitthvað eftir mig hjá þeim – ég vildi setja þau á stall sem mér finnst þau eiga skilið að vera á út af því að t.d. hjóla­ brettamenning á Íslandi er alveg fáránleg – borgin er t.d. að byggja sparkvelli úti um allt en svo eru það þessir krakkar sem verða útundan. Ég vildi peppa þessa krakka og sýna þeim að þau væru að gera eitthvað sem aðrir tækju eftir, að þau væru ógeðslega kúl og samþykkt. Ég held reyndar að þau hafi vitað það áður en ég fór að vinna með þeim – það er mikil jákvæðni þarna og þetta er nettur hópur – en ég vildi setja minn punkt þarna með að mynda þau á minn hátt og setja fram sýningar með þeim í aðalhlutverki og á stað þar sem ég er að líta upp þeirra.“ Á sýningunni verða til sölu bækur og bolir í takmörkuðu upplagi. Það er Bobby Breiðholt sem sér um alla hönnun á sýningunni en Þórsteinn segir mikinn heiður að vinna með honum enda sé hann hönnuður á heimsmælikvarða. Sýningin Juven­ ile Bliss verður opnuð þann 9. sept­ ember. stefanthor@frettabladid.is Æskunnar sæla á ljósmyndasýningu Ljósmyndarinn Þórsteinn Sigurðsson eða Xdeathrow setur upp ljósmyndasýninguna Juvenile Bliss þar sem hann sýnir myndir af tveimur svipuðum hópum ungmenna frá mismunandi tímum. Mig Langaði tiL að hnýta SaMan tvÆr kynSLóðir SeM Mér fannSt eitthvað Spennandi við, eitthvað Mjög tÆrt SeM ég hrífSt af. Sýning Þórsteins verður á Rakarastofunni á Klapparstíg. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 Vorum að taka upp nýja sendingu af spennandi vörum frá Calvin Klein, Boss og Kenzo. KOMDU OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! RÚMFÖT, BAÐSLOPPAR OG HANDKL ÆÐI íhugar að Stofna hönnunarfyrirtÆki Fyrir um tveimur árum fór hin 11 ára Alba Mist að dunda sér við að hanna skartgripi fyrir sig og mömmu sína en í dag hafa svo- kallaðar „tassle“-eyrnalokkar sem hún býr til vakið lukku hjá fólki í kringum hana. vinnur að handriti Með hobbitaStjörnu Silla Berg er handritshöfundur úr Vestmannaeyjum sem vinnur nú að handriti með Hollywood-leik- aranum Manu Bennett. Samstarfið spratt upp úr Facebook- skilaboðum – Silla sá að Manu var staddur í Vestmannaeyjum og hún bauðst til að sýna honum eyjuna. vekur fóLk tiL uMhugSunar Ljósmyndarinn Helga Nína Aas hefur undanfarna daga birt ljós- myndir sínar af íslenskum konum í sundfötum á Instagram. Ljósmynd- irnar eru unnar í samstarfi við bandaríska vefinn Refinery 29 og verkefnið á að vekja fólk til umhugsunar um líkamsímynd. ný hverfiSbúð í grafarvogi Kaupmaðurinn Davíð Þór Rúnars- son hefur fylgst með íslenska verslunarmarkaðinum undanfarið og blöskrar ósanngjarnt vöruverð og vöntun á þjónustu. 2 6 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R66 L í f i ð ∙ f R É t t A B L A ð i ð 2 6 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 0 s _ P 1 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 9 4 -0 3 5 8 1 D 9 4 -0 2 1 C 1 D 9 4 -0 0 E 0 1 D 9 3 -F F A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 2 0 s _ 2 5 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.