Fréttablaðið - 26.08.2017, Qupperneq 120
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ICELAND ENGIHJALLA,
VESTURBERGI,
ARNARBAKKA
OG GLÆSIBÆ
365.is Sími 1817
333 krá dag*
*9.990.- á mánuði.
Stjórnmálamenn eru eins ólíkir og þeir eru margir. Sumir segja að þeir séu of margir og aðrir
eru þeirrar skoðunar að allir aðrir
en þeir sem núna eru í stjórnmálum
eigi að vera þar. Það þykir jafnvel
gáfuleg skoðun að stjórnmálamenn
skipti ekki lengur máli, heimurinn
sé breyttur og áhrifin liggi annars
staðar en hjá kjörnum fulltrúum.
Ég er ekki sammála því sjónarmiði
og það skiptir máli hvernig stjórn-
málamenn tjá sig.
Á undanförnum árum hefur
þeim stjórnmálamönnum fjölgað,
bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu,
sem telja sér til framdráttar að
hampa öfgahópum. Þeir fara fram
með stóryrðum, skeyta engu um
staðreyndir, rannsóknir eða sann-
leika og láta sig engu varða þótt
ummæli þeirra valdi einstaklingum
eða hópum tjóni eða ótta. Skiljan-
lega fljóta fjölmiðlarnir með, það er
fréttnæmt þegar frambjóðendur til
hárra embætta segja krassandi hluti
umbúðalaust og láta alla heyra það.
Og í sjálfu sér getur verið nauðsyn-
legt að hlutirnir séu sagðir hreint
og beint. En það er ekki afsökun
fyrir fordómum, hatri og fáfræði né
heldur lýðskrumi hvers konar. Slíkt
tal manna sem eru í kastljósi fjöl-
miðla er beinlínis hættulegt því það
gefur öfgaöflunum skjól, normal-
íserar þau og verður að lokum
skálkaskjól ofbeldis og glæpa. Um
það eru sorgleg nýleg dæmi.
Þess vegna eiga fjölmiðlar að
veita hefðbundnum stjórnmála-
mönnum meiri athygli, gefa þeim
meiri tíma sem vanda málflutning
sinn, jafnvel þó þeir séu ekki eins
mikið bíó og hinir. Það er betra að
stjórnmálamenn séu skemmtilegir
og áhugaverðir, en mestu skiptir
að þeir séu málefnalegir og ábyrgir.
Slíkir stjórnmálamenn valda ekki
skaða.
Mikilvægi
hófseminnar
Sirrýjar
Hallgrímsdóttur
BAKÞANKAR
2
6
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
9
3
-E
F
9
8
1
D
9
3
-E
E
5
C
1
D
9
3
-E
D
2
0
1
D
9
3
-E
B
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
2
5
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K