Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Blaðsíða 24
Helgarblað 20.–23. janúar 20174 Bílasölur - Kynningarblað Fagmennska og reynsla í sölu notaðra bíla Heimsbílar: V ið höfum mikla reynslu hér á Heimsbílum. Ég hef unnið við bílasölu frá árinu 1998 og félagi minn, Garð- ar, frá árinu 2006. Við höf- um einnig báðir starfað hjá stóru bílaumboðunum. Við erum báðir löggiltir í greininni. Við tókum við Heimsbílum í apríl 2009. Hérna selj- um við bíla fyrir aðra, einstaklinga, bílaleigur og bílaumboðin. Við flytj- um hins vegar ekki inn sjálfir. Mín grunnhugsun er sú að ef þú ert með bílasölu þá ertu að selja fyrir aðra. Ef þú flytur sjálfur inn bíla ertu farinn að selja fyrir sjálfan þig og kominn í samkeppni við þá sem skaffa þér brauðið. Við forðumst það.“ Þetta segir Tryggi B. Andersen hjá bílasölunni Heimsbílar sem hann rekur ásamt félaga sínum, Garðari Smárasyni. Heimsbílar eru til húsa að Kletthálsi 2, 110 Reykja- vík. Heimsbílar bjóða upp á mik- ið úrval af notuðum bílum á löngu verðbili. „Dýrasti bíllinn sem ég hef selt hérna var yfir 24 milljónir og við erum með töluvert af dýrum bíl- um hér, t.d. Range Rover, BMW og Mercedes Benz. Síðan eru þetta bíl- ar alveg niður í 3–400 þúsund. Hins vegar erum við með ákveðnar gæða- kröfur, bílar þurfa að vera hreinir og í lagi. Þannig að þó að við bjóðum upp á mjög ódýra bíla reynum við að tryggja lágmarksgæði,“ segir Tryggvi. Hann segist álíta að sala í notuð- um bílum hafi að mestu staðið í stað síðan árið 2009. Hins vegar hafi hún síðustu árin færst meira yfir í nýlega og dýrari bíla. Í boði er fjármögnun upp á allt að 1,5 milljón í gegnum pay.is og 1 milljón með VISA. Ýmis önnur fjár- mögnun kemur til greina: „Það er í rauninni öll fjármögnun í boði nema skuldabréf og víxlar, það er búið,“ segir Tryggvi. Heimsbílar selja bíla fyrir einstaklinga, bílaleigur og mörg af stóru bílaumboðunum, og fyrirtæk- ið kappkostar að þjónusta vel bæði þá sem það selur bíla fyrir og bíla- kaupendur. Tryggvi segir að salan sé nokkuð jöfn yfir árið með ákveðn- um sveiflum þó: „Oft eru tveir til þrír mánuðir rólegir og síðan rífandi gangur í aðra tvo til þrjá mánuði. Það er hins vegar ekki fyrirsjáanlegt hvenær ársins þessi tímabil eru. Af- gangurinn á árinu er síðan nokkuð jafn í sölu.“ Tryggvi segir að starf bílasala sé annasamt og henti bara þeim sem hafi ástríðu fyrir bílum. „Það þarf að huga að mörgu, sjá til þess að bíl- ar séu gangfærir og þrífa þá. Það er gaman að geta sinnt starfi sem mað- ur hefur ástríðu fyrir og getur brauð- fætt sig af. Hins vegar fer enginn út í bílasölu til að verða moldríkur, það eru ekki forsendur til þess. Þetta er ástríða. Menn geta haft ágætis laun í þessu en þeir verða ekki ríkir.“ Frekari upplýsingar um starf- semina er að finna á heimasíðunni heimsbilar.is, uppýsingar um úrval, söluþóknun og fleira. Hér með grein- inni eru síðan myndir og upplýsingar um áhugaverða bíla sem eru til sölu núna. n VW Jetta. Árgerð 2013, ekinn 68 þ. km dísil, sjálfskiptur 7 gírar. Verð 3.190.000 kr. VW Golf trendline united. Árgerð 2006, ekinn 145 þ. km, bensín, sjálfskiptur 6 gírar. Verð 990.000 kr. SUBARU Forester. Árgerð 2015, ekinn 40 þ. km, dísil, sjálf- skiptur. Verð 4.740.000 kr. HYUNDAI I10 comfort. Árgerð 2016, ekinn 34 þ. km, bensín, 5 gírar. Verð 1.650.000 kr. BMW X1 xdrive 18d. Árgerð 2016, ekinn 20 þ.km, dísil, sjálfskiptur 8 gírar. Verð 5.450.000 kr. SKODA Octavia ambiente combi 4x4. Árgerð 2013, ekinn 71 þ. km, dísil, sjálfskiptur 6 gírar. Verð 3.290.000 kr. Garðar Smárason löggiltur bifreiðasali. Tryggvi B. Andersen löggiltur bifreiðasali.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.