Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Blaðsíða 12
Helgarblað 20.–23. janúar 201712 Fréttir
Leiðandi á leiksvæðum • Sími 565-1048
jh@johannhelgi.is • www.johannhelgi.is
Gúmmí-
hellur
Jóhann Helgi & Co ehf, „Stofnað 1990“
Sími 565 1048 - 820 8096
jh@johannhelgi.is – www.johannhelgi.is
Útileiktæki: Rólur, vegasölt,
gormatæki, rennibrautir,
leikkastalar ofl. Frá viðurkenndum
framleiðendum eins og Lappset,
Wicksteed, Stilum, Dynamo, Huck
ofl.
Járnrimlagirðingar fyrir
skóla- og leikskólalóðir, íþróttavelli,
fjölbýlishús og einkalóðir. Þýsk gæði
frá Legi.
Hjólabrettapallar frá Rhino
Ramps í Belgíu, komnir upp víða
um land við frábærar undirtektir
notenda.
Fallvarnarefni: Gúmmíhellur
frá Þýskalandi og gúmmímottur á
gras, þar sem grasið vex upp í gegn
um motturnar og motturnar hlífa
grasinu og virka sem fallvörn.
Leikföng, húsgögn og
búnaður fyrir leikskóla frá
stærsta dreifingaraðila Danmörku,
Lekolar (áður Rabo - Brio).
Mörk og körfur,
útiþrektæki og ýmsar
gerðir af sparkvöllum frá
viðurkenndum framleiðendum eins
og t.d. Sure Shot, Lappset, Wicksteed
og Saysu.
Bekkir, ruslafötur,
stubbahús, skýli,
reiðhjólagrindur,
trjágrindur, pollar,
ljósastaurar, blómaker ofl.
frá GH Form, Vekso, Nifo, Orsogril
Vestre o.fl.
Bændur og hestamenn:
Nótuð plastborð, fjárhúsgólf,
búgarðagirðingar (Dallas), gerði
og girðingarstaurar. úr plasti,
básamottur og fóðurgangamottur.
BJóðuM HeiLdarLausnir á
LeiksvæðuM. uppsetning,
viðHaLd og þJónusta
Leitið tiLBoða
w
w
w
.jo
ha
nn
he
lg
i.i
s
Sumarhúsið og garðurinn 2. 2009 33
M
yn
di
r f
rá
F
er
ða
þj
ón
us
tu
nn
i V
at
ns
ho
lti
w
w
w
.s
ta
yi
ni
ce
la
nd
.is
Þ
að slær óhug að manni.“
Þetta segir Helgi Gunn-
laugsson, afbrotafræðing-
ur og prófessor í félagsfræði
við Háskóla Íslands, í tengsl-
um við hvarf Birnu Brjánsdóttur sem
sást síðast í miðborg Reykjavíkur
aðfaranótt 14. janúar síðastliðinn.
Helgi segir hörð viðbrögð lands-
manna í málinu skiljanleg þar sem
við búum í svo litlu samfélagi. Þá tel-
ur hann ekki ástæðu til að óttast að
mál Birnu sé til marks um nýja tíma í
afbrotasögu þjóðarinnar
„Það að ung stúlka ein á gangi í
sínu daglega lífi í miðborginni hverfi
með þessum hætti er eitthvað sem
við erum ekki vön í okkar umhverfi
sem betur fer. Í framhaldinu birtast
myndbandsupptökur sem sýna síð-
ustu andartökin sem við vitum af
henni í umhverfi sem við öll þekkj-
um svo vel. Þær settu málið í sterkara
samhengi og enn meiri óhugur fer
um okkur öll.“
Vanalegt að fólk sé
ölvað á þessum tíma
Líkt og aðrir landsmenn hefur Helgi
skoðað myndbandsupptökurnar
sem sýna Birnu ganga upp Lauga-
veginn, þessa örlagaríku nótt, gaum-
gæfilega. Honum virðist eins og hún
sé á leiðinni heim og ekkert óvenju-
legt virðist í raun og veru vera á
ferðinni.
„Birna lítur út fyrir að vera reikul
í spori en það er ekkert nýtt að fólk
sé ölvað úti á lífinu um þetta leyti
dags um helgar. Það er bara hluti af
menningu unga fólksins að fara út að
skemmta sér um helgar,“ segir Helgi
og bætir við:
„Síðan er eins og hún gangi bara
út úr myndinni og ekki söguna meir.
Þegar þessar upplýsingar bárust tók
málið nýja stefnu og varð enn dular-
fyllra fyrir vikið.“
Upplifir sig óöruggt í miðbænum
Helgi telur að myndbandsupp-
tökurnar gefi sterkt til kynna að Birna
hafi ekki horfið af sjálfsdáðum. Þá
hafi almenning byrjað að gruna að
um manndráp hafi verið að ræða eft-
ir að skóparið fannst við birgðastöð
Atlantsolíu við Hafnarfjarðarhöfn.
„Í framhaldinu fara alls konar
hugsanir á flug í samfélaginu. Hvað
hafi komið fyrir stúlkuna og hvar hún
sé niðurkomin.“
Helgi bendir á að mælingar sín-
ar síðustu ár, á því hvort almenn-
ir borgarar telji sig örugga eina á
gangi í miðborginni að kvöld- og
næturlagi, hafi sýnt að 70 til 80 pró-
sent kvenna telja sig ekki öruggar við
þessar aðstæður og gjalda varhug við
því að vera einar á ferli í miðborginni
á þessum tíma sólarhrings. Í sömu
mælingum kemur fram að þriðjung-
ur karlmanna telur sig ekki öruggan
í miðborg Reykjavíkur að kvöld- og
næturlagi.
„Að sama skapi er mikill fjöldi
fólks sem telur sig öruggan í sínu eig-
in umhverfi og yfirleitt erum við ör-
ugg hvar sem við erum í okkar sam-
félagi.“
Auka öryggi fólks í almannarýmum
Þá telur Helgi að myndavélar og
myndatökur í almannarými hafi í
tengslum við rannsóknina á hvarfi
Birnu sýnt gildi sitt. Hann telur að á
næstunni verði farið í aðgerðir til að
meta hvort endurnýja eigi mynda-
vélakerfið í miðborginni og fjölga
myndavélum.
„Stundum gagnrýna menn
myndavélar í almannarými og telja
þær brjóta gegn persónufrelsi og
friðhelgi einkalífs. En eins og við sjá-
um nú þá komu myndavélarnar að
góðu gagni. Gögn af þessu tagi geta
hjálpað okkur að varpa ljósi á atburði
eins og við sjáum í þessu máli.“
Helgi telur ekki ástæðu til að ótt-
ast að mál Birnu sé til marks um
nýja tíma í afbrotasögu þjóðarinnar.
„Ýmis alvarleg ofbeldismál hafa oft
komið upp í miðborginni. Til dæmis
í kringum síðustu aldamót voru þau
býsna mörg. Þó hefur ekki verið mik-
ið af þeim undanfarin ár, sem betur
fer. Samt er nauðsynlegt fyrir okkur
að huga sífellt að því hvernig hægt sé
að auka öryggi fólks í almannarým-
inu.“
Eðlileg viðbrögð í litlu samfélagi
Inntur svara við því hvað honum þyki
um viðbrögð þjóðarinnar í þessu
hörmulega máli segir Helgi það full-
komlega eðlilegt að fólk bregðist svo
sterkt við.
„Þetta snertir okkur öll. Birna gæti
verið systir okkar, dóttir eða frænka.
Ísland er svo lítið samfélag og við
finnum til samkenndar með henni
og nánustu aðstandendum með
enn sterkari hætti heldur en gengur
og gerist í löndum þar sem fólk býr í
fjölmennari samfélögum.“
Leyfir sér að vona það besta
Helgi bendir jafnframt á að margir
tengi mál af þessu tagi við erlendan
veruleika. „Við verðum að gera okk-
ur grein fyrir því að allt sem gerist í
útlöndum gerist líka hérna. Kannski
ekki í jafnmiklum mæli en við erum
með öll þau afbrot hérna sem gerast
annars staðar í heiminum líka.“
Að lokum segir Helgi: „Ég vona
svo heitt og innilega a málið leysist
og við séum ekki að f an að Guð-
mundar- og Geirfinnsmál yfir okkur
sem hefur legið eins og mara á þjóð-
inni frá árinu 1974.“
Þá vonast hann til þess að Birna
finnist og málið leysist sem allra fyrst.
„Á meðan hún er ekki fundin leyfir
maður sér að vona það besta.“ n
„Snertir okkur öll“
n Afbrotafræðingur segir hvarf Birnu einstaklega óhugnanlegt
Kristín Clausen
kristin@dv.is
„Birna
gæti
verið systir
okkar, dóttir
eð frænka.
Eðlileg viðbrögð Helgi Gunnlaugsson af-
brotafræðingur segir eðlilegt að fólk í litlum
samfélögum verði snortið af máli sem þessu.
Leiddir frá borði Sak-
borningar voru yfirheyrðir
aðfaranótt fimmtudags. Hér
er lögregla að flytja þá frá
Polar Nanoq. Mynd SigtryggUr AriBirna Brjánsdóttir Birnu hefur verið saknað
frá því aðfaranótt sunnudags.