Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Blaðsíða 8
Helgarblað 20.–23. janúar 20178 Fréttir Glæsibær · Sími: 571 0977 · Opið 10-18 · www.deluxe.is Fjölbreyttar vörur og úrval meðferða Andlitsbað með lúxusmaska eftir húðgerð hvers og eins, þar sem leitast er eftir því að ná fram því besta fyrir húðina þína með hágæða vörum. Frábær slökun og vellíðan. Leigubílstjórinn Kristján Magnússon varð fyrir hrottalegri líkamsárás É g er að sjálfsögðu hvekkt- ur eftir þetta atvik. Ég er hins vegar bæði þrjóskur og ákveðinn og ætla ekki að láta þetta stöðva mig,“ segir Krist- ján Magnússon leigubílstjóri í sam- tali við DV. Kristján varð fyrir hrotta- legri líkamsárás síðastliðna helgi sem olli því að hann rifbeinsbrotn- aði, hlaut heilahristing og tognaði á hálsi og baki. Hans upplifun er sú að slík atvik séu að færast í vöxt og að þeir sem eru eldri og reyndari í faginu veigri sér við því að keyra um helgar. Kristján hefur lagt fram kæru vegna árásarinnar. Vildi borga ferðina í blíðu Kristján byrjaði að keyra leigubíl í afleysingum fyrir tæpum tveimur mánuðum og er því í raun nýbyrj- aður í faginu. Hann var á ferð rétt fyrir miðnætti síðastliðinn föstudag þegar hann fékk boð um að ná í farþega í Hafnarfjörð. Um karlmann á miðj- um aldri var að ræða og var förinni heitið að ótilgreindu húsi í Kópavogi. „Hann byrjaði á því að bjóða mér inn og vildi ólmur borga ferðina í blíðu. Ég afþakkaði það og benti honum á að ég vildi fá greitt með korti. Hann dró upp tvö kort en ég taldi augljóst að hann væri vísvitandi að stimpla inn rangt PIN-númer,“ segir Kristján. Hann leit þá örstutt af manninum til þess að setja posann á mælaborðið. Vankaðist við árásina Maðurinn réðst þá umsvifalaust til atlögu við Kristján sem vissi ekki hvaðan á hann stóð veðrið. „Hann lét olnbogaskotunum rigna yfir mig og ég reyndi eftir fremsta megni að verja mig,“ segir Kristján. Hann telur sig hafa vankast eitthvað við árásina því næst man hann eftir sér með bakið klesst upp að hurðinni bíl- stjóramegin og með árásarmann- inn ofan á sér. „Hann þrýsti olnbog- anum í bringuna á mér og spyrnti fótunum í farþegahurðina. Þannig lagði hann allan þungann á mig og ég heyrði rifbeinin í mér brotna,“ segir Kristján. Rifjaði upp gamla bardagalistartakta Við sársaukann kviknaði á sjálfs- bjargarviðleitninni. „Ég æfði brasil- ísku bardagalistina jiu jitsu um skeið og kann því nokkur tök. Ég náði því að krækja löppunum í manninn og notaði svo hendurnar til þess að snúa honum við þannig að ég var kominn með hann í fangið,“ segir Kristján. Hann tók því næst vinstri hönd mannsins og dró hana upp yfir hægri öxl og bað hann um að hætta allri mótspyrnu. „Hann var ekki á þeim buxunum og því togaði ég í höndina á honum þar til hann lof- aði að hætta,“ segir Kristján. Hann hafi því næst tilkynnt manninum að hann ætlaði að hringja í lögreglu og að hann ætti að hafa sig hægan. Kristján náði sambandi við lög- reglu en þá byrjaði árásarmaðurinn að hrópa á hjálp eins og hann væri sjálfur fórnarlambið. „Ég lagði á og þá fór maðurinn að gráta og biðj- ast afsökunar á hegðun sinni. Stuttu seinna byrjaði hann samt að berj- ast aftur um á hæl og hnakka,“ seg- ir Kristján. Meirihluti viðskipta- vina yndislegt fólk Lögreglan kom loks á vettvang og leiddi manninn í burtu. Kristján telur að slagsmálin hafi varað í að minnsta kosti fimmtán mínútur. „Ég fór því næst upp á spítala til þess að láta líta á mig og þeir staðfesta rif- beinsbrotið. Síðan fer ég heim og reyni að hvílast,“ segir Kristján Hann náði að sofa í tæpa tvo tíma en vakn- aði þá með dúndrandi höfuðverk, var flökurt og svimaði. „Konunni minni leist ekki á blikuna og hún ákvað að keyra mig upp á spítala. Á leiðinni þangað var ég farinn að rugla út í eitt,“ segir Kristján. Á spítalanum var hann greindur með heilahristing og tognun í hálsi og baki. „Þetta var slæm reynsla en ég mun jafna mig og halda ótrauður áfram. Yfirgnæfandi meirihluti við- skiptavina minna eru yndislegt fólk og ég ætla ekki að láta örfáa svarta sauði skemma fyrir,“ segir Kristján, sem hefur, sem áður sagði, kært árásina. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is „Ég heyrði rifbeinin brotna“ „Hann var ekki á þeim buxunum og því togaði ég í höndina á honum þar til hann emjaði af sársauka og lofaði að hætta Kristján Magnússon Kristján er óðum að jafna sig eftir árásina. Hannhlaut heilahristing, brotin rifbein og tognun í hálsi og baki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.