Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Blaðsíða 39
Helgarblað 20.–23. janúar 2017 Menning 31 Þú færð fallega borð- búnaðinn og fullt af fíneríi frá greengate hjá okkur Austurvegi 21, Selfoss / Sími 482 3211 facebook.com/sjafnarblom Höfðabakka 3, Reykjavík / Sími 587 2222 facebook.com/litlagardbudin Liggur alltaf talsvert á hjarta n Jónína Leósdóttir sendir frá sér nýja glæpasögu n Með aðra bók í smíðum n Jóhanna yfirlesari númer eitt og svo var ég send á ótal fundi, með- al annars á stórum vinnustöðum. Það var nú meiri martröðin! Þótt ég væri hrifin af hugmyndum Banda- lags jafnaðarmanna var ég sko ekki efni í pólitíkus, ég hafði ekki hunds- vit á efnahagsmálum eða öðru sem kunna þurfti skil á. Samt er ég óendanlega þakklát fyrir að hafa stokkið út í þetta, þvert á alla skynsemi. Þessi óvænta þátt- taka mín í stjórnmálum varð nefni- lega til þess að ég hitti Jóhönnu sem ég hef átt samleið með upp frá því, eða í rúm þrjátíu ár. Ég er sannfærð um að leiðir okkar hefðu aldrei leg- ið saman ef Vilmundur hefði ekki lent í vandræðum með framboðs- listann og fengið mig, konu sem hann þekkti ekki baun, til liðs við sig. Við Jóhanna lifðum og hrærðu- mst í svo ólíkum heimum, hún í pólitíkinni og ég í bókum. Tilvera okkar skaraðist bara fyrir þessa til- viljun og í mjög skamman tíma. Ég var fljót að snúa til baka úr heimi stjórnmálanna, það var ekki mín hilla í lífinu. En ég var orðin jafnaðarmann- eskja til frambúðar og jafnvel sjálf- stæðiskonan, hún mamma, varð eldheitur stuðningsmaður Jóhönnu í prófkjörum og þingkosningum í ellinni. Hún notaði hvert tækifæri til að hvetja fólk til að kjósa rétt, reyndi meðal annars að kristna bílstjóra þegar hún tók leigubíla í Kringluna og var ekkert feimin við að upplýsa þá um að Jóhanna væri sko tengdadóttir sín. Svona geta hlutirnir breyst. Mamma féllst aldrei á að kjósa Alþýðuflokkinn fyrir pabba, sem hún elskaði þó út af lífinu, en Jóhönnu studdi hún af miklum krafti.“ Jóhanna yfirlesari númer eitt Berðu það sem þú skrifar undir Jó- hönnu eða les hún bækur þínar fyrst eftir að þær eru komnar á prent? „Á meðan Jóhanna var í stjórn- málunum hafði hún ekki tíma til að lesa handrit yfir fyrir mig. En núna er hún yfirlesari númer eitt og ég tek mikið mark á athugasemdum hennar.“ Ertu með fastar vinnuvenjur, skrifarðu til dæmis á einhverjum sérstökum tíma? „Ég vinn eins mikið og ég kemst upp með. Vildi helst skrifa allan daginn, sjö daga vikunnar. En stundum segir skrokkurinn stopp, aðallega bakið, og þá neyðist ég til að taka mér hlé. Oft fer ég út í Þjóðminjasafn og fæ mér eftirmið- dagskaffi og vinn síðan í nokkra tíma í viðbót. Þessi kaffibolli á safn- inu er sá eini sem ég drekk yfir daginn. Heima drekk ég bara te og mér er alls ekki sama hvaða te. Það verða að vera laus lauf, ekki pokate, og helst frá Kenía eða Assam á Ind- landi. Ég get verið pínulítið sérvit- ur.“ Lestu mikið af glæpasögum, og ef svo er, hverjir eru þínir eftirlætis glæpasagnahöfundar? „Ég las glæpasögur í kílóavís þegar ég bjó í Bretlandi og ferðaðist í fjóra tíma á dag til og frá vinnu. Þá fór ég í gegnum allar bækur Agöthu Christie, Ngaio Marsh og fleiri höfunda. Það eru aðeins nokkur ár síðan ég byrjaði aft- ur í glæpasögunum af krafti og núna held ég sérstaklega upp á bæk- ur eftir Ann Cleeves, Sophie Hannah, Nicci French, Val McDermid og Louise Millar. Ég á mér líka upp- áhaldshöfunda sem ekki skrifa um glæpi og þar er fremst í flokki bresk kona sem fáir virðast þekkja. Hún heitir Mavis Cheek og skrifar mjög skemmti- lega um samskipti fólks, meðal annars í sætum enskum þorp- um. Ég mæli eindreg- ið með henni.“ Áttu þér uppá- halds spæjara eða leynilögreglumann? „Já, hún Vera er í miklu uppá- haldi – bæði í bókunum eftir Ann Cleeves og í túlkun Brendu Blethyn í sjónvarpsþáttunum. Dásamleg týpa. Sömuleiðis finnst mér löggan Simon Waterhouse, sem Sophie Hannah skrifar um, áhugaverð persóna. Hann á augljóslega að vera á einhverfurófinu og með ein- hverjar greiningar en alveg eitur- snjall að leysa sakamál.“ Að lokum, hver er skoðun þín á listamannalaunum? „Listsköpun er mjög mikilvæg fyrir öll þjóðfélög. Fæstir myndu væntanlega vilja lifa í menningar- snauðu samfélagi. En það er erfitt að lifa af listinni í landi þar sem fáir búa, ekki síst fyrir rithöfunda sem skrifa á tungumáli sem örfáir tala, svona á heimsmælikvarða. Mark- aðurinn hér er svo smár. En einmitt þess vegna er enn brýnna að hlúa að íslenskum bókmenntum." Sækir þú um listamannalaun? „Ég byrjaði að sækja um starfs- laun í kringum 1990, minnir mig, en það liðu um tveir áratugir þar til ég fékk loks jákvætt svar. Ég hef þrisvar fengið starfslaun í þrjá mánuði en í ár fékk ég í fyrsta sinn úthlutað starfslaunum í sex mánuði og er afar þakklát fyrir það.“ n Jónína Leósdóttir „Ég er með þriðju bókina í smíðum og við Edda höfum ekki enn fengið leiða hvor á annarri.“ Mynd Sigtryggur Ari„Á meðan Jó- hanna var í stjórn- málunum hafði hún ekki tíma til að lesa handrit yfir fyrir mig. En núna er hún yfirlesari númer eitt og ég tek mikið mark á athugasemdum hennar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.