Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Blaðsíða 23
Helgarblað 20.–23. janúar 2017 Kynningarblað - Bílasölur 3 Splunkunýr bíll á sama verði og notaður Sparaðu með Sparibíl B ílasalan Sparibíll er aðal- lega í bílainnflutningi og hefur síðan árið 2003 boð- ið viðskiptavinum sínum upp á töluvert betra verð en aðrir á nýjum og nýlegum notuð- um bílum. Eigandi Sparibíls, Vikt- or Urbancic, er með yfir þrjátíu ára reynslu í faginu og veit sitthvað um bílasöluumhverfið hér heima og í Evrópu. Ódýrari en internetið Undanfarið hefur verið nokkur um- fjöllun um að hægt sé að fá mun betri kjör á ýmsum vörum með því að versla þær sjálfur á netinu og láta senda heim. Þannig getur ver- ið töluvert ódýrara að versla bíl á netinu heldur en við bílaumboð- in hérna heima. „En við skulum ekki gleyma því að þegar verslað er á netinu er tekin ákveðin áhætta. Sú áhætta eykst eftir því sem var- an er dýrari og því eru ekki allir sem treysta sér í það að kaupa heila bif- reið á internetinu. Margt getur vafist fyrir fólki í sambandi við tryggingar og skilmála og ekki alltaf víst að slíkt sé innifalið í verði. Við hjá Sparibíl bjóðum upp á að sjá um þetta allt fyrir kúnnann,” segir Viktor. Vikt- or er mikill reynslubolti í faginu og því með góð sambönd við ýmsa bílaheildsala úti í heimi. „Við versl- um við trausta bílasala í Evrópu sem bjóða bifreiðar á heildsölu- verði. Okkur býðst svo enn betra verð á bílunum þar sem við kaup- um fleiri bifreiðar en einstaklingur- inn. Að auki fáum við betri kjör á flutningi vegna þess að við flytjum inn meira magn. Síðast en ekki síðst bjóðum við upp á greiðsluþjónustu þannig að viðkomandi getur borg- að bílinn í áföngum. Án þess að það komi niður á kaupöryggi getum við svo lagt örlítið á heildsöluverðið, en náum jafnframt að halda verðinu niðri fyrir viðskiptavininn. Því get- ur það í mörgum tilfellum verið ódýrara að versla við okkur heldur en að gera það sjálfur á netinu,“ seg- ir Viktor. Flytjum inn það sem viðskipta- vinurinn vill “Við reynum að eiga á lager það sem er vinsælast hverju sinni og selst vel. Núna eigum við til dæmis um fjöru- tíu bíla á lager. Fólk getur líka komið til okkar með séróskir um bifreiðar. Þannig nýtum við sambönd okkar til þess að flytja inn þá bifreið sem viðskiptavinurinn óskar sér, en kjör- in eru auðvitað mismunandi eft- ir atvikum. Á heimasíðunni okkar er ennfremur hægt að sjá myndir af um 350 bílum sem við getum fullyrt að þú sparir á með því að kaupa hjá okkur,“ segir Viktor. Náðum að dekka sendibíla- markaðinn „Við höfum verið að sérhæfa okk- ur í sendibílum og undanfarið höf- um við verið að selja mjög mik- ið af þeim, bæði nýjum og líka nýlegum notuðum. Á tímabili var nær ómögulegt fyrir iðnaðar- menn að fá notaða sendibíla þar sem bílasölurnar áttu þá einfald- lega ekki. Lítið hafði selst af nýjum sendibílum árin áður vegna þess að lítið var að gera í iðnaðarbrans- anum. Þess vegna var minna um að menn væru að skipta þeim út. Þar náðum við hjá Sparibíl að dekka þann markað þar sem við gátum flutt inn nýja sendibíla á 700.000 til milljón króna lægra verði en um- boðin voru að bjóða,“ segir Viktor. Splunkunýr og ónotaður bíll hjá Sparibíl á sama verði og tveggja ára notaður Aðspurður hvort Sparibíll taki not- aða bíla upp í kaup á nýjum bíl þá segir Viktor að hann geri það í sum- um tilfellum, en að eðlilega fái menn yfirleitt lægra verð fyrir bílinn en hjá öðrum bílasölum, þar sem Sparibíll bjóði bifreiðar á miklu betra verði en aðrir. „Í sumum tilfellum hef ég ver- ið að bjóða nýjan bíl á svipuðu verði og aðrar bílasölur gefa fyrir til dæm- is tveggja ára gamlan notaðan bíl af sömu tegund. Að sjálfsögðu get ég ekki tekið tveggja ára notaðan bíl í sléttum skiptum fyrir splunkunýjan,“ segir Viktor. Sparibíll er nýfluttur í stórglæsilegt húsnæði í Hátún 6a. Opið er í versl- uninni alla virka daga frá 12.00-18.00. Hægt er að hafa samband í síma: 577- 3344. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Sparibíls, sparibill.is n Bílasalan Sparibíll Hér er Sparibíll staðsettur. Sparibíll Nýtt og glæsilegt hús- næði að Hátúni 6a. MyNdir Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.