Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Blaðsíða 13
Helgarblað 20.–23. janúar 2017 Fréttir 13
V
ið erum að takast á við illsk-
una sem stökk inn í hefð-
bundið líf ungrar konu,“
segir sjúkrahúspresturinn
Vigfús Bjarni Albertsson.
Hann upplifir íslenskan veruleika
töluvert óhugnanlegri eftir atburða-
rás síðustu daga í tengslum við hvarf
Birnu Brjánsdóttur sem hefur verið
saknað frá aðfaranótt laugardagsins
14. janúar.
Nýr veruleiki
Vigfús segir að okkur Íslendingum
finnist að mál af þessu tagi eigi ekki
að eiga sér stað í okkar samfélagi.
„Þegar svona gerist rennur upp nýr
veruleiki fyrir fólki sem hræðir okkur
líka. Maður hugsar öðruvísi um sitt
samfélag sem er orðið mun alvar-
legra en maður gerði sér almenni-
lega grein fyrir.“
Þá bendir Vigfús á að áföll af
mannavöldum séu þess eðlis að þau
koma nærri manni. „Við erum mörg
foreldrar, systkini og ekki síst ung-
menni sem finnum mikið til með
fjölskyldu sem er að takast á við
svona mikið áfall.“
Illskan stökk inn í veruleikann
Hann segir að öll áföll sem við verð-
um vitni að eða höfum lent í áður kalli
fram fyrri áföll. Í þessu tilfelli eigi það
við þá einstaklinga sem eiga beina
reynslu af áföllum af mannavöldum.
„Það sem manni finnst gott í
þessu hörmulega máli og ég sé svo
oft í minni vinnu er að við sem þjóð
stöndum saman þegar svona gerist.“
Vigfús segir að aðstæður sem
þessar krefjist þess að við tölum um
líðan okkar. „Sú tjáning þarf að sjálf-
sögðu að taka mið af þeim sem eru
þolendur málsins, það eru stúlkan
sjálf, foreldrar hennar og nánir að-
standendur.“
Hann telur mikilvægt að atburða-
rás síðustu daga skapi samtöl inni á
heimilum, á vinnustöðum sem og í
öðrum hópum þar sem fólk hefur færi
á að tjá sínar tilfinningar og skoðanir.
Þá segir Vigfús það hættulegt að
leggja mat á líferni fólks.
„Við erum að tala um illsku sem
stekkur inn í veruleikann. Það er svo
vont þegar við reynum að útskýra af
hverju áfallið átti sér stað. „Við höf-
um flest prófað að vera undir áhrif-
um, verið á röngum stað á röng-
um tíma. Það er hluti af því að vera
manneskja.“
Segjum börnun-
um sannleikann
Að sama skapi
ráðleggur Vig-
fús foreldrum að
segja börnunum
sínum satt og rétt
frá því sem gerð-
ist í tengslum við
rannsóknina á
hvarfi Birnu.
„Við gerum
börnunum okkar
ekki greiða með
því að segja ósatt.
Það skapar van-
traust gagnvart foreldrum og þeim
sem börnin eiga að treysta. Þeim er
enginn greiði gerður með því að fá
upplýsingar um eitthvað sem á ekki
við rök að styðjast. Þau eiga eftir að
lesa eða heyra það frá öðrum.“
Vigfús telur mikilvægt að foreldr-
ar viðurkenni ótta barnsins, tali við
það og hlusti á það sem barnið er að
hugsa. „Um leið er mikilvægt að lofa
barninu eins mikilli vernd og við get-
um lofað í þessu lífi.“ n
„Illskan
stökk inn í
hefðbundið líf
ungrar konu“
Vigfús Bjarni Albertsson segir íslenskan veruleika vera orðinn óhugnanlegri
Kristín Clausen
kristin@dv.is
„Við höfum
flest prófað
að vera undir áhrif-
um, verið á röngum
stað á röngum tíma
Vigfús Bjarni
Albertsson
sjúkrahúsprestur.
Sími: 562 5900
www.fotomax.is
Ömmu og
afa bollar í
miklu úrvali
Fæst í vefverslun og í verslun
okkar að Höfðabakka 3
Bláuhúsin v. Faxafen
s: 568 1800 s: 588 9988 s: 511 2500
Kringlunni Skólavördustíg 2
Bestir í sjónmælingum
Tímapantanir í síma