Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Side 4
Helgarblað 10.–13. mars 20174 Fréttir Greiði 5.200 milljónir Bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir voru í vikunni dæmdir, ásamt Guðmundi Óla­ syni, til að greiða þrotabúi Mile­ stone rúmlega fimm milljarða króna í skaðabætur. Þeir bræð­ ur létu Milestone kaupa hlut Ingunnar, systur þeirra, út úr fyrir­ tækinu fyrir hrun. Ingunn vildi út úr eignarhalds­ félaginu, sem þau systkinin áttu saman, og bræðurnir keyptu hana út fyrir rúmlega fimm milljarða króna. Milestone greiddi fyrir þau kaup og en Milestone, sem var fyr­ irferðarmikið á hlutabréfmarkaði fyrir hrun, varð síðar gjaldþrota. Karl var í Hæstarétti í fyrra dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar en DV greindi frá því nýlega að hann væri kominn í opið úrræði. Steingrímur fékk tvö ár og Guðmundur, sem var forstjóri Milestone, þrjú ár í fang­ elsi. Þeir dómar byggðu á bók­ haldsbrotum og rangfærslum í ársreikningum en sérstakur sak­ sóknari ákærði í því máli. Að þessu sinni er um að ræða einkamál sem þrotabú Milestone höfðar á hendur mönnunum. Niðurstaðan varð, eins og áður segir, sú að bræðurnir og Guð­ mundur eru dæmdir til að greiða um fimm þúsund og tvö hundruð milljónir, auk dráttarvaxta frá ár­ inu 2011, í skaðabætur. Verð á íbúð ráðherra hækkaði um 61 prósent Fjölmörg tilboð bárust og seldist íbúðin á rúmum þremur milljónum yfir ásettu verði E ins og greint var frá á helstu fjölmiðlum landsins auglýsti Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þá nýskipaður ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar, íbúð sína til sölu um miðjan febrúarmánuð. Íbúð­ in er staðsett í fjölbýlishúsi í Furu­ grund í Kópavogi, fjögurra herbergja og 91 fermetri að stærð. Samkvæmt heimildum DV var barist um íbúðina og til marks um það var endanlegt söluverð rúmum þremur milljónum hærra en ásett verð. Óhætt er að full­ yrða að fasteignaviðskipti ráðherrans hafi verið farsæl því á 22 mánuðum hækkaði íbúðin um 61% í verði. Fasteignaverð rýkur upp Fasteignaverð hefur hækkað mikið undanfarin misseri og er ekkert lát á þeirri þróun. Um miðjan febrúar síð­ astliðinn var greint frá því að síðustu 12 mánuði hefði heildarhækkun fasteignaverðs verið 16,3%. Greindi Hagsjá Landsbankans frá því að hækkanirnar væru svo miklar að fara þyrfti allt aftur til ársins 2007 til þess að sjá álíka tölur. Þá vekur athygli að á sama tíma er verðbólga lítil og stöðug. Helsta ástæðan fyrir þessari þróun er einfaldlega skortur á íbúðarhúsnæði. Samkvæmt annarri skýrslu Hagsjár Landsbankans kem­ ur fram að meðalfermetraverð í norðurhluta Kópavogs hafi verið 359 þúsund krónur í lok árs 2016. Umfangsmiklar endurbætur Þórdís Kolbrún keypti íbúðina í Furu grund þann 15. maí 2015 ásamt manni sínum, Hjalta S. Mogensen. Að auki var móðir hennar, Fjóla Katrín Ásgeirsdóttir, skráð fyrir litlum hlut, eins og gjarnan er raunin þegar ungt fólk er að stækka við sig á íbúða­ markaði. Kaupverð eignarinnar var 25,5 milljónir króna en seljandi var dánarbú aldraðrar konu sem hafði búið í íbúðinni frá fyrstu tíð. Því var kominn tími á umfangsmiklar og kostnaðarsamar endurbætur á íbúð­ inni og í það verkefni réðust Þórdís Kolbrún og Hjalti. Skipt var um inn­ réttingar á baði og eldhúsi auk þess sem skipulagi hennar var breytt með því að rífa niður veggi. Þá var öll­ um gólfefnum skipt út auk þess sem íbúðin var máluð. 3 milljónum hærra en ásett verð Rétt eftir að Þórdís Kolbrún hafði tekið við lyklunum í ráðuneytinu var íbúðin í Furugrund auglýst til sölu. Fasteignasalan sem sá um verk­ efnið var Fasteignamarkaðurinn og var ásett verð 37,9 milljónir króna. Eins og vaninn er var skipulagt svo­ kallað „opið hús“ og þar var vel mætt. Mátti sjá þar margt ungt fólk í samfloti við foreldra sína að spá og spekúlera. Óhætt er að fullyrða að slegist hafi verið um íbúðina því samkvæmt heimildum DV bárust allmörg tilboð. Endanlegt kaupverð var 41 milljón króna, rúmum þrem­ ur milljónum yfir ásettu verði. Á 22 mánuðum hafði því íbúð ráðherrans hækkað úr 25,5 millj­ ónum í 41 milljón. Það gera 15,5 milljónir króna og hækkun upp á tæplega 61% sem er umtalsvert yfir meðalhækkun á markaði. Miðað við þetta verð þá er fermetraverð íbúðarinnar í Furugrund 450 þús­ und krónur, sem er um 30% hærra en meðalfermetraverð í þessum hluta Kópavogs. Kaupsamningur vegna viðskiptanna var undirrit­ aður þann 3. mars síðastliðinn og á ráðherrann að afhenda eignina þann 15. maí eða fyrr ef kostur er. n Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Ráðherrann getur verið alsæll með söluna á íbúð fjölskyldunnar í Furugrund. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Stal áfengi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í vikunni karlmann í 60 daga fangelsi fyrir þjófnað­ arbrot. Maðurinn var ákærð­ ur fyrir að hafa í þrígang, á tímabilinu ágúst til október í fyrra, stolið áfengi úr verslunum Vínbúðanna á höfuðborgar­ svæðinu. Maðurinn mætti ekki við þingfestingu málsins og var því sakfelldur samkvæmt ákæru. Dómurinn er skilorðs­ bundinn til tveggja ára. Mikill vafi lék á að þeir hefðu veitt samfanga áverka B örkur Birgisson og Annþór Kristján Karlsson voru sýknaðir af Hæstarétti í dag af ákæru fyrir að hafa veitt Sigurði Hólm Sig­ urðssyni, fanga á Litla­Hrauni, áverka sem leiddu til dauða hans í maí 2012. Hæstiréttur staðfesti með úr­ skurði sínum niðurstöður Héraðs­ dóms Suðurlands frá því í fyrra. Í úr­ skurði lægra dómstigs kom fram að mikill vafi léki á því hvort þeir Börkur og Annþór væru sekir um að hafa veitt Sigurði áverkana. Ákæruvaldið áfrýj­ aði þeim úrskurði og er nú komin end­ anleg niðurstaða í málið. Annþór og Börkur hafa ávallt neit­ að sök en farið var fram á 12 ára fang­ elsisdóm yfir þeim. Þeir sitja báðir inni fyrir grófa líkamsárás sem átti sér stað í janúar 2012. Dæmt var í því máli haustið 2013 og fékk Annþór sjö ára dóm en Börkur sex ára. n Annþór og Börkur sýknaðir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.