Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Page 10
Helgarblað 10.–13. mars 201710 Fréttir Ekki færri líkamsárásir frá árinu 2011 Árið 2016 var tilkynnt um 283 líkamsárásir í miðborg Reykja­ víkur. Lögreglunni á höfuð­ borgarsvæðinu hafa ekki borist jafn fáar tilkynningar á einu ári frá því árið 2011 þegar tilkynnt var um 261 brot. Lögreglan sagði frá þessu á vef sínum á fimmtudag. Flestar eru tilkynningarnar vegna minni­ háttar líkamsárása, sem varða 217. grein almennra hegn­ ingarlaga. Flest brotanna koma upp í tengslum við skemmtana­ líf í miðborginni um helgar. Um það bil tvö af hverjum þremur tilkynntum ofbeldisbrotum árið 2016 áttu sér stað á tímabilinu frá miðnætti til klukkan 7 að morgni laugardags og sunnudags og voru tæp 80 prósent þessara brota skráð inni á skemmtistöðum eða utandyra á þessu svæði. Þá segir lögregla að karlmenn séu um 90 prósent gerenda í of­ beldismálum í miðborginni og um 80 prósent brotaþola. Tæp­ lega helmingur grunaðra var á aldrinum 21 til 30 ára og um helmingur brotaþola var á sama aldri. Ekki er algengt að sömu aðilar séu grunaðir í mörgum ofbeldismálum á sama árinu. Um níu prósent grunaðra báru ábyrgð á tveimur eða fleiri of­ beldisbrotum árið 2016. Þegar á heildina er litið hef­ ur ofbeldisbrotum á höfuð­ borgarsvæðinu öllu fjölgað frá árinu 2011. Það ár bárust lög­ reglunni 679 tilkynningar um ofbeldisbrot, en árið 2015 voru tilkynningarnar aftur á móti orðnar 1.186 og 1.169 árið 2016. Að sögn lögreglu skýrist þessi fjölgun af breyttu verklagi Lög­ reglunnar á höfuðborgarsvæðinu í heimilisofbeldis málum sem tók gildi í janúar 2015. Allt til ársins 2015 var hlutfall heimilisofbeldis­ mála í ofbeldisbrotum um það bil 25 prósent, en jókst nokkuð árin 2015 og 2016 eða í rúmlega 40 prósent. Á næstu dögum og vikum mun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fara af stað með ný verkefni með það að leiðarljósi að fækka of­ beldisbrotum og auka öryggi í miðborginni. Til að mynda er nú unnið að uppsetningu á um 30 nýjum eftirlitsmyndavélum í miðborginni auk þess sem Lög­ reglan á höfuðborgarsvæðinu mun vera með aukið eftirlit á svæðinu um helgar. Landsbyggðarþingmenn Pírata andsnúnir frumvarpi samflokksmanna sinna Þ ingmenn Pírata í Norðvestur­ og Norðausturkjördæmi, Eva Pandóra Baldursdóttir og Einar Brynjólfsson, eru andvígir frumvarpi sam­ flokksmanna sinna sem gengur út á breytingu á skiptingu þingsæta. Eva segist myndi greiða atkvæði gegn því kæmi það til afgreiðslu í þeirri mynd sem það er nú. Hið sama er að segja um varaþingmann Evu, Gunn­ ar Ingiberg Guðmundsson, sem nú situr á Alþingi. Vilja fækka landsbyggðarþingmönnum Frumvarpið gerir ráð fyrir að þing­ sætum í landsbyggðarkjördæmun­ um verði fækkað og skal það gert í því skyni að ná fram jöfnu vægi at­ kvæða. Þingmönnum Norðvestur­ kjördæmis myndi þannig fækka úr átta í sex, þingmönnum Norðaust­ urkjördæmis úr tíu í átta og þing­ mönnum Suðurkjördæmis myndi fækka úr tíu í níu. Að sama skapi myndi þingsætum Reykjavíkurkjör­ dæmanna tveggja fjölga úr ellefu í tólf í hvoru kjördæmi og þingsætum í Suðvestur kjördæmi myndi fjölga um þrjú, verða sextán en eru þrettán nú. Viktor Orri Valgarðsson, vara­ þingmaður Pírata, er fyrsti flutnings­ maður frumvarpsins en auk hans eru sex aðrir þingmenn Pírata með­ flutningsmenn. Af þremur lands­ byggðarþingmönnum Pírata er að­ eins einn meðflutningsmaður að frumvarpinu, Smári McCarthy, þing­ maður Suðurkjördæmis. Sex þingmenn að lágmarki Samkvæmt núgildandi lögum um kosningar til Alþingis skal landskjör­ stjórn reikna út eftir hverjar alþingis­ kosningar hvort kjósendur á kjörskrá að baki hverju þingsæti séu í ein­ hverju kjördæmi helmingi færri en í einhverju öðru kjördæmi. Sé svo skal færa til þingsæti fyrir næstu kosn­ ingar. Á þetta hefur tvisvar reynt, í bæði skiptin í Norðvesturkjördæmi, eftir kosningarnar 2003 og kosn­ ingarnar 2009. Miðað við mann­ fjöldaþróun er ekki ólíklegt að enn þurfi að fækka þingsætum í Norð­ vesturkjördæmi að afloknum næstu reglulegu kosningum en sáralitlu munaði að það þyrfti að gera eftir síðustu kosningar. Í greinargerð með frumvarp­ inu kemur fram að það sé lagt fram til að ná fram jöfnun atkvæða að fullu. Þó kemur fram í frumvarp­ inu að ekkert kjördæmi geti feng­ ið færri en sex kjördæmasæti í sinn hlut við skiptingu þingsæta. Er það í samræmi við ákvæði stjórnarskrár­ innar sem kveða á um það lágmark. Verði mannfjöldaþróun með sama hætti og verið hefur má því búast við að þrátt fyrir að frumvarpið yrði að lögum myndi engu að síður mynd­ ast ójafnvægi milli kjósenda, þar eð þingmönnum má ekki fækka niður fyrir sex talsins. Myndi ekki leggja nafn sitt við frumvarpið Eva Pandóra Baldursdóttir, þingkona Pírata í Norðvesturkjördæmi, segir í samtali við DV að eins og frumvarpið líti út núna hefði hún ekki getað lagt nafn sitt við það. Eva er sem stend­ ur í fæðingarorlofi og var það einnig þegar frumvarpið var lagt fram. „Það skiptir ekki máli þó að frumvarpið snerti mína stöðu sem þingmanns í Norðvesturkjördæmi. Ég skil alveg hugsunina um jöfnun atkvæðavægis en mér finnst að það þurfi að horfa á málið í víðara samhengi. Gæti verið að landsbyggðin, sem staðið hefur höllum fæti, þurfi einfaldlega á fleiri þingmönnum að halda? Ég gæti ekki lagt nafn mitt við þetta frumvarp eins og það er,“ segir Eva og spurð hvort hún myndi greiða atkvæði gegn frumvarpinu í því formi sem það er svarar hún því játandi, þó með því fororði, að hennar sögn, að eðlilegt sé að frumvarpið fái þinglega meðferð. Gunnar Ingiberg Guðmundsson, varaþingmaður Evu, segir liggja í augum upp hvers vegna hann sé ekki meðflutningsmaður að frumvarp­ inu. „Ég er landsbyggðarþingmað­ ur,“ segir Gunnar. Gunnar segir það sína skoðun að kjördæmakerfið eins og það er sé ónýtt og telji að gera eigi landið allt að einu kjördæmi. Spurn­ ingu um hvort hann hafi verið beðinn um að vera meðflutningsmaður að frumvarpinu svaraði hann játandi. Vill nýja stjórnarskrá Þingmaður Pírata í Norðaustur­ kjördæmi, Einar Brynjólfsson, segir að honum hafi verið boðið að vera meðflutningsmaður að frumvarp­ inu en ekki þegið það boð. „Ég er ekki meðflutningsmaður að þessu frumvarpi af þeirri einföldu ástæðu að það felur í sér breytingu á kerfi sem er ekki gott. Ég hefði viljað taka upp nýja stjórnarskrá, sem myndi breyta þessum málum verulega, bæði hvað varðar kjördæmaskip­ an og varðandi möguleika kjósenda til að velja fulltrúa, af landslistum, kjördæmalistum og með persónu­ kjöri. Þetta frumvarp er bara plástur á ónýtt kerfi og það mun fyrst og fremst verða til þess íbúar í þeim kjördæmum þar sem þingmönnum myndi fækka verði ósáttir.“ n Freyr Rögnvaldsson freyr@dv.is Plástur á ónýtt kerfi Einar Brynjólfsson, þingmaður Pírata í Norðausturkjördæmi, segir að frumvarpið sé bara til þess fallið að valda óánægju í kjördæmunum. Mynd PíRataR Er á móti Eva Pandóra Baldursdóttir, þingmaður Pírata í Norðvesturkjördæmi, segir að hún myndi greiða atkvæði gegn frumvarpinu. Mynd alþingi Vilja fækka landsbyggðarþing- mönnum Hluti þingflokks Pírata vill fækka landsbyggðarþingmönnum í því skyni að jafna atkvæðavægi. Mynd SigtRygguR aRi „Plástur á ónýtt kErfi“ fáir reykja Árið 2015 var hlutfall fólks á Íslandi sem aldrei reykir með því hæsta sem gerist í Evrópu. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofan birti í vikunni. Rúmlega 81% fólks á Ís­ landi reykja aldrei, en það er þriðja hæsta hlutfall í Evrópu. Hæst er hlutfall reyklausra í Svíþjóð, rúmlega 83%, og í Bretlandi, tæp 83%. Evrópska heilsufarsrann­ sóknin er samræmd rannsókn á heilsufari og heilsutengdri hegðun sem er framkvæmd af hagstofum á Evrópska efna­ hagssvæðinu. Rannsóknin fór fram á Íslandi haustið 2015.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.