Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Side 16
Helgarblað 10.–13. mars 201716 Fréttir
S
tyrking krónunnar undan-
farið virðist hafa skilað sér í
lægra vöruverði á innflutt-
um matvælum í verslunum.
Á móti kemur að verð á ís-
lenskum matvælum, sumum hverj-
um, hefur hækkað verulega á sama
tíma, í mörgum tilfella langt umfram
verðlag. Launahækkunum á vinnu-
markaði hefur verið velt út í verðlag-
ið og íslenskir neytendur súpa seyðið
af því. Formaður Neytendasamtak-
anna segir mikla verðhækkun inn-
lendrar matvöru að verulegu leyti
í boði ofurvaxtastefnu Seðlabank-
ans. Staðan í dag sé óásættanleg frá
sjónarhorni neytenda og innlendra
framleiðenda, sem líði fyrir.
Erlent niður, innlent upp
DV ákvað að skoða hvernig og hvort
styrking krónunnar hefði í raun skil-
að sér í lægra verði á innfluttum
matvælum í verslunum. Til þess
var stuðst við verðkannanir ASÍ á
tilteknu tímabili, annars vegar í
febrúar 2014 og nú í febrúar 2017. Í
ljós kom að innfluttar vörur höfðu
lækkað verulega í verði en íslenska
framleiðslan hækkað.
Ákveðið var að miða við verð Hag-
kaupa í könnunum ASÍ þar sem vöru-
verð þar fetar ákveðinn meðalveg, er
að jafnaði hvorki lægst né hæst.
Þar sem ekki eru alltaf sömu
vörur milli kannana hjá verðlags-
eftirliti ASÍ voru sömu vörur milli
verðkannana bornar saman. Þar sem
verð á vöru fyrir árið 2017 vantaði
voru þær fundnar í vefverslun Hag-
kaupa í einstaka tilfellum. Aðeins er
um dæmi að ræða og listinn hvergi
nærri tæmandi. Hins vegar sýna
dæmin mjög greinilega tilhneigingu.
Eins og sjá má í meðfylgjandi töflum
er eina innlenda varan í úttekt DV á
verðkönnunum ASÍ sælgætið Völu
froskabitar. Mesta verðhækkunin á
innlendri vöru er á samlokubrauði
frá Myllunni, 26% hækkun milli
kannana, og rjómaosti frá MS, 24,5%.
Af innfluttu vörunum sem teknar
voru út lækkar Merrild-kaffi mest,
um 30%, Sun lolly frostpinnar og
Kornax hveiti, báðar um og yfir 22%.
Til samanburðar ber að geta að
frá febrúar 2014 til febrúar 2017
hækkaði vísitala neysluverðs um 5%,
og hækkanirnar því umfram verðlag.
En hvað skýrir þessar hækkanir þá?
DV leitaði svara.
Hækkun kemur ekki á óvart
Vörur frá MS eru áberandi í verð-
könnunum ASÍ og fjórar mjólkur-
vörur að finna í úttekt DV. Þær hafa
allar hækkað í verði á tímabilinu, um-
fram verðlag, en mismikið þó. Rjóma-
ostur hefur þannig hækkað um 24,5%
sem fyrr segir en hálfur lítri af Skyr.is
með bláberjum aðeins um 6,2%.
Ari Edwald, forstjóri MS, bendir
á að opinber nefnd, Verðlagsnefnd
búvöru, ákveði heildsöluverð á flest-
um mikilvægari söluvörum MS og
að aðrar verðbreytingar frá MS hafi
verið nálægt þeim. Smásöluverð og
smásöluálagning á þessum vörum
er síðan frjáls svo verðmyndun
þegar heildsöluverði sleppir byggi á
ákvörðun hverrar verslunar fyrir sig.
„Það kemur mér ekki á óvart að
innlend framleiðsla sé að hækka
umfram verðlag. Launahækkanir
hafa t.d. verið miklar en gengi krón-
unnar styrkst mikið.“
Skaðleg ofurvaxtastefna
Ólafur Arnarson, formaður Neyt-
endasamtakanna, skellir skuldinni á
vaxtastefnu Seðlabanka Íslands, sem
bæði íslenskir neytendur og inn-
lendir framleiðendur líði fyrir. Sam-
anburður DV nú staðfesti það sem
samtökin hafi bent á.
„Að helstu áhrif ofurvaxta Seðla-
banka Íslands til varnar verðbólgu
hér á landi koma fram í því að gengi
krónunnar hækkar, sem leiðir til verð-
lækkunar á innfluttum vörum. Tals-
verð undirliggjandi verðbólga er hins
vegar þegar innlend framleiðsla er
skoðuð. Ofurvextir Seðlabankans eru
raunar kostnaðarauki fyrir innlenda
framleiðendur og ýta undir verð-
hækkanir og þar með verðbólgu. Við
þetta má bæta að ofur vextir Seðla-
bankans gera ekkert til að slá á verð-
hækkanir á fasteignamarkaði því
enginn liður í vísitölu neysluverðs
hefur hækkað meira en einmitt hús-
næðisliðurinn. Án húsnæðisliðarins
hefði vísitala neysluverðs farið lækk-
andi allt frá árinu 2015.“
Ólafur segir að svo virðist sem
ofurvaxtastefna Seðlabankans hafi
lítil áhrif á verðlag á Íslandi, önnur
en þau að koma í veg fyrir lækkun
vísitölu neysluverðs og standa
þannig í vegi fyrir því að höfuðstóll
húsnæðis lána heimilanna og verð-
tryggðra lána fyrirtækjanna lækki.
En nokkrar augljósar skýringar
eru á ólíkri verðþróun íslenskrar
framleiðslu og innfluttra vara. „Ofris
krónunnar vegna of hárra vaxta
Seðlabankans veldur lækkun á inn-
kaupsverði innfluttra vara í krónum.
Sömu áhrif hefur niðurfelling tolla
og vörugjalda, sem nokkuð hefur
verið um. Raunar ættu innflutt mat-
væli að hafa lækkað enn frekar en
raun ber vitni ef einungis er horft til
áhrifa af gengisþróun.“
Launaþróun innanlands hafi síð-
an haft áhrif til hækkunar á fram-
leiðslukostnaði innlendra matvæla.
Ofurvextir Seðlabankans valdi því
svo að öll fjármögnun innlendra
framleiðenda og fjárfesting sé mun
dýrari en hjá erlendum framleiðend-
um sem búi við vaxtakostnað sem
nemi einungis broti af þeim kostn-
aði sem innlendir framleiðendur og
íslenskir neytendur búi við.
„Þá hefur húsnæðiskostnaður
bæði íslenskra neytenda og fyrir-
tækja hækkað mjög ört undanfarin
ár vegna skorts á húsnæði og títt-
nefndra ofurvaxta Seðlabankans,
sem hækka mjög kostnað á
byggingarstigi fasteigna. Þessi kostn-
aðarauki fer inn í verðlag.“
Í boði ofurvaxta Seðlabankans
Ólafur segir Neytendasamtökin ítrek-
að hafa ályktað gegn verðtryggingu
neytendalána og ofurvaxtastefnu
Seðlabankans og telja ábyrgð Seðla-
bankans á þeirri verðlagsþróun inn-
lendrar framleiðslu mjög mikla.
„Þá er það einnig að háir vextir
Seðlabankans auka mjög kostnað
neytenda til að koma sér þaki yfir höf-
uðið og eru þannig ein rót þess að
launþegar þessa lands hafa séð sig
knúna til að sækja kauphækkanir um-
fram það sem tíðkast í nágrannalönd-
um okkar. Því má segja að hin mikla
verðhækkun innlendrar matvöru sé
að verulegu leyti í boði ofurvaxta-
stefnu Seðlabankans. Sú verðlækkun
innfluttra matvæla, sem fæst með
gengishækkun krónunnar, sem stafar
að verulegu leyti af þessum sömu of-
urvöxtum, er síðan ekki sjálfbær þar
sem vaxtamunurinn við útlönd laðar
hingað spákaupmenn, sem fyrr eða
síðar forða sér og þá hrynur krónan.“
Óásættanlegt
Ólafur segir aðspurður að þessi þróun
sé óásættanleg út frá sjónarmiði neyt-
enda. „Ástandinu í dag má líkja við
alvarleg sjúkdómseinkenni í íslensku
hagkerfi. Reynslan hefur sýnt okkur
að svona ástand leiðir að lokum óhjá-
kvæmilega til kollsteypu í hagkerfinu
með tilheyrandi verðbólguholskeflu
sem mun reynast neytendum þungbær
í verðtryggingarumhverfi þar sem öll
áhætta af efnahagsóstöðugleika er flutt
af fjármálafyrirtækjum yfir á neytendur
og atvinnufyrirtækin í landinu.“ n
n Krónan styrkist og launahækkunum velt út í verðlag n Ofurvextir refsa neytendum
Íslensk framleiðsla
Vara kr. 2014 kr. 2017 +hækkun/-lækkun
Myllan samlokubrauð 770 g. 385 485 +26%
MS rjómaostur til matargerðar 400 g. 477 594 +24,5%
Kaffitár Morgundögg 400 g. (1) 799 979 +22,5%
MS AB mjólk 1 l. 267 319 +19,4%
SS hamborgarhryggur í sneiðum kílóverð 3.900 4.390 +12,5%
Royal karamellubúðingur 90 g. 215 239 +11%
MS Skyr.is bláberja 500 g. 369 392 +6,2%
MS ostur Ljótur 200 g. 659 699 +6%
Stjörnupopp osta 100 g. 184 189 +2,7%
Völu froskabitar 150 g. 388 339 -12,6%
(1) Morgundögg frá Kaffitári var í 500 g. pakkningum árið 2014 en 400 g. pakkningum árið
2017. Verðið frá 2014 hefur því verið umreiknað miðað við verð á grammi yfir í 400 g. pakkn-
ingu til að bera saman sama magn.
Innfluttar vörur
Vara kr. 2014 kr. 2017 +hækkun/-lækkun
Merrild kaffi mellemristet 103 (500 g.) 849 689 -30%
Sun lolly appelsínubragð 10 stk. 339 439 -22,7%
Kornax hveiti 2 kg. rauður pk. 319 249 -22%
Melroses te, 25 stk. rauður pk. 329 229 -18,8%
Burger spelt hrökkbrauð 195 169 -13%
Bertolli viðbit 250 g. 249 219 -12%
Miðað við verð í verslunum Hagkaupa í verðlagskönnunum ASÍ í febrúarbyrjun 2017 og
marsbyrjun 2014 þar sem sömu vörur voru milli kannana. Þar sem verð á vörum fyrir árið
2017 vantaði voru þær fundnar í vefverslun Hagkaupa. (7. mars 2017)
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Ólafur Arnarson Formaður
Neytendasamtakanna.
Ari Edwald Forstjóri MS.
Sífellt dýrara að kaupa innlent
Á meðan styrking krónunnar hefur
skilað sér í lægra matvöruverði á
innfluttum vörum til neytenda hefur
innlend framleiðsla hækkað í verði.
Íslenskt orðið miklu dýrara