Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Blaðsíða 20
Helgarblað 10.–13. mars 201720 Fréttir Erlent Finnar í sjöunda himni með að fá borgaralaun n Atvinnulausir fá reisn n Engar áhyggjur af skerðingum n Þrír mánuðir liðnir af tilrauninni F rá áramótum hafa tvö þúsund Finnar fengið greidd borgara­ laun, eða það sem kallað er skilyrðislaus grunnfram­ færsla. Um er að ræða tilraun sem felur í sér að þátttakendur fá greitt sem nemur tæpum 65 þúsund krónum, eða 560 evrur, inn á reikn­ ing sinn, burtséð frá því hvort þeir séu í vinnu eða atvinnulausir. Launin hafa verið greidd út þrisvar og er því komin reynsla á tilraunina sem mun standa í tvö ár. Ef vel tekst til verður það tekið til skoðunar að allir Finnar fái greidd borgaralaun, en með því er talið að hægt væri að spara umtals­ verða fjármuni sem að öðrum kosti færu í fjárfrekar stofnanir landsins. Hér á landi hafa borgaralaun verið nokkuð í umræðunni, en árið 2015 lögðu Píratar fram þingsálykt­ unartillögu um borgaralaun. Hug­ myndin var sú að launin myndu leysa almannatryggingakerfið af hólmi, eða í það minnsta einfalda það verulega, auk þess að uppræta ójöfnuð í samfélaginu. Þátttakendur í finnsku tilrauninni eru sem fyrr segir tvö þúsund talsins og eru þeir á aldrinum 35 til 58 ára. Þeir sem áður þáðu atvinnuleysis­ bætur fá borgaralaun í staðinn, en að­ standendur tilraunarinnar sögðu að markmiðið væri að þátttakendur í at­ vinnuleit gætu tekið að sér hlutastörf, gengi illa að finna fullt starf, án þess að launin myndu skerðast að nokkru leyti. Það er einmitt markmiðið með borgaralaununum; að kerfið geri ekki ráð fyrir neinum skerðingum og allar aðrar tekjur leggjast ofan á borgara­ launin. Hér á eftir má sjá hvernig þátttak­ endur telja að tilraunin hafi heppn­ ast til þessa. n Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Borgaralaun Tvö þúsund Finnar fá sem nemur 65 þúsund krónum á mánuði í tvö ár. Finnar gera tilraun með borgaralaun og virðist almenn ánægja ríkja með kerfið. Mynd EPA „Ókeypis peningur“ „Fyrir mig er þetta í raun eins og ókeypis peningur sem bætist ofan á launin,“ segir Mika Ruusunen í samtali við Guardian. Hann trúði því vart þegar hann fékk tilkynningu þess efnis í desember að hann hefði verið valinn til þátttöku í tilrauninni. Mika, sem er tveggja barna faðir og búsettur í Kangasala, missti vinnuna fyrir tveimur árum en þá starfaði hann sem bakari. Honum gekk illa að finna vinnu en fékk þó stöðu starfsnema nýlega í upplýsingatæknigeiranum. Þó að hann vanti ekki beinlínis pen- ingana segir hann að þeir veiti ákveðið öryggi – og þá sérstaklega þeim sem eru atvinnu- lausir eða í atvinnuleit. Þá komi þeir að góðum notum fyrir þá sem vilja reyna fyrir sér á sviði nýsköpunar þar sem fyrstu mánuðirnir geta oft verið erfiðir. „Ef einhver vill stofna fyrirtæki fær hann ekki atvinnuleysisbætur, jafnvel þótt tekjurnar séu engar fyrstu mánuðina. Þú verður að hafa sparifé, annars er þetta ómögulegt.“ Gat ekki tekið að sér vinnu Juha Järvinen er annar þátttakandi í verkefninu en hann er búsettur í vesturhluta Finnlands. Hann hefur verið atvinnulaus í fimm ár eftir að fyrirtæki hans fór á hausinn. Hann segir að borgaralaunin geri það að verkum að einstaklingar í hans stöðu öðlist meira frelsi til athafna í atvinnu- lífinu. Juha þykir flinkur ljósmyndari auk þess sem hann býr yfir þekkingu til að setja upp heimasíður. Á þeim fimm árum sem liðin eru síðan fyrirtæki hans fór á hausinn hefur hann sinnt þessu áhuga- máli sínu en ekki þegið nein laun fyrir því þá myndu atvinnuleysisbæturnar skerðast. „Ég hef gert margt án þess að þiggja greiðslu fyrir, einfaldlega af því ég hef gaman af því. Áður en að borgara- laununum kom hefði ég lent í vandræð- um hefði ég þegið greiðslu fyrir.“ Atvinnulausir fá reisn „Núna get ég einbeitt mér að því sem mig langar að gera, í stað þess að eiga við skrifræðið,“ segir hin 34 ára Sini Marttinen sem er í hópi þeirra sem fá borgaralaun. Bakgrunnur Sini liggur í félagsstarfi og hefur hún verið að leita að starfi við hæfi undanfarin misseri. Hún segir að borgaralaunin létti fjárhagslegar byrðar en segir að einn stærsti kosturinn sé sá að atvinnulausir endurheimti ákveðna reisn. Sini var í fastri vinnu þar til í fyrravor er staða hennar var lögð niður og flutt til Kaupmanna- hafnar. Í stað þess að flytja þangað ákvað Sini að freista gæfunnar í Finnlandi, en hefur ekki haft erindi sem erfiði með að finna starf. Undanfarna mánuði hefur hún starfað sem sjálfboðaliði fyrir tekjulágar fjölskyldur auk þess sem hún hefur hjálpað hælisleitendum. Engar áhyggjur af skerðingu „Núna getur maður náð andanum og einbeitt sér að því að fá þá vinnu sem er í boði, án þess að hafa áhyggjur af skerðingu atvinnuleysisbóta,“ segir Mari Saarenpää, þrítug kona sem býr í afskekktu þorpi, Paltamo, í miðhluta Finnlands. Mari er garðyrkjufræðingur að mennt en atvinnuleysi er talsvert á svæðinu og þurfa margir íbúanna að reiða sig á hlutastörf eða sinna verktakavinnu. Áður en Mari fékk borgaralaunin fékk hún sem nemur 77 þúsund krónum á mánuði í atvinnu- leysisbætur. En hver króna sem Mari þénaði, til dæmis í verktakavinnu eða aukavinnu, skerti bæturnar. Nú eru þær áhyggjur úr sögunni. Mari flutti til Paltamo fyrir þremur árum ásamt unnusta sínum, Tuomas, sem er nemandi í verkfræði. Samhliða námi starfar hann í varahlutaverslun fyrir bíla. Mari vill búa áfram í sveitinni, meðal annars vegna þess að sonur hennar, Veeti, 10 ára, er með Aspergers-heil- kennið og nýtur sín best í rólegu umhverfi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.