Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Blaðsíða 33
vikublað 7.–9. mars 2017 Kynning - Veitingar 29
Óviðjafnanleg stemning
í morgunverðinum
Kaffivagninn, Grandagarði 10
Þ
að er geysileg aukning hjá
okkur í morgunverðinum.
Þar spilar inn í að það
eru svo fáir staðir opn-
ir snemma á morgnana en
hérna er opnað klukkan hálf átta.
Hér er stundum fullt út úr dyrum
og gestahópurinn spannar alla flóru
mannlífsins, hér eru erlendir ferða-
menn, ungt námsfólk og fjölmargir
fastagestir í eldri kantinum. Þessi
fjölgun hefur orðið án þess að við
höfum verið að auglýsa morgun-
verðinn sérstaklega, orðsporið hef-
ur borist víða og frábærar umsagn-
ir á TripAdvisor hafa haft sín áhrif.“
Þetta segir Mjöll Daníelsdóttir
sem rekur hinn fornfræga stað Kaffi-
vagninn úti á Granda. Morgun-
verðarstemningin á Kaffivagninum
þykir einstök og stundum er salur-
inn fullsetinn strax upp úr klukk-
an hálf átta á morgnana. Eitt af því
sem gerir stemninguna einstaka er
hópur fastagesta sem ávallt drekkur
saman kaffi á morgnana:
„Þetta eru afskaplega flottir
karlar, fágætir fuglar. Til dæmis
hann Dagfinnur flugmaður sem er
orðinn 91 árs. Svo er það lögreglu-
stjóri úr Keflavík og hér er líka hann
Bjössi Króna, Kristján Knútsson og
margir aðrir gamlir og frægir spek-
ingar,“ segir Mjöll.
Morgunverðarúrvalið er afar fjöl-
breytt: „Við erum með venjulegan
gamaldags hafragraut og síðan lúxus
hafragraut með chia-fræjum, jarðar-
berjum og bláberjum; við erum með
reyktan lax með eggjahræru, egg
og beikon, nýbökuð hveitihorn og
rúnnstykki og margt fleira.
Kaffivagninn er opnaður klukkan
hálf átta á morgnana og lokar
klukkan 18. Segja má að dagur-
inn á Kaffivagninum skiptist í þrjá
kafla: Morgunverðinn, hádegis-
verðinn og síðdegiskaffið. Töluverð
endurnýjum hefur orðið á matseðl-
inum eftir að Mjöll og eiginmað-
ur hennar, Guðmundur Viðars-
son, tóku við rekstri staðarins árið
2013, en Guðmundur er matreiðslu-
meistari staðarins. Hádegisverður-
inn hefur verið nútímavæddur:
„Við leggjum mikla áherslu á fisk-
rétti og erum á þessum skandin-
avísku nótum. Flestir fiskréttirnir
okkar eru bornir fram á pönnum.
Einn af þessum pönnuréttum má
kalla aðalsmerki Kaffivagnsins en
það er þorskhnakki, gratíneraður
með rækjum og béarnaise-sósu,
Julian-grænmeti og kartöflum. Þetta
er afar vinsæll réttur. Síðan erum við
með gömlu góðu réttina sem við för-
um með upp á næsta stig. Þar má
nefna plokkfisk, fiskibollur, bleikju
og fiskisúpu. Þá erum við með smur-
brauð með rauðsprettu en fyrir þá
sem alls ekki vilja fisk þá bjóðum við
líka upp á smurbrauð með roast beef
sem við poppum dálítið upp.“
En jafnframt þessu heldur
Kaffivagninn í sínar gömlu hefðir
og hefur því yfir sér „retro“ yfir-
bragð sem mörgu yngra fólki þykir
mjög eftir sóknarvert. Þannig er til
dæmis vinsælt að fá sér uppáhellt
kaffi og kleinu í eftir miðdaginn og
„hvar annars staðar en hér færðu
rjómapönnukökur,“ segir Mjöll.
Enn fremur eru allar kökur á
Kaffivagninum bakaðar á staðnum
fyrir utan tvær tegundir sem eru sér-
bakaðar fyrir Kaffivagninn. n
Kaffivagninn er að Grandagarði
10. Opið er virka daga frá kl. 07.30 til
18.00 og um helgar frá 09.00 til 18.00.
Heimasíðan er www.kaffivagninn.is
og Facebook-síða er www.facebook.
com/kaffivagninn.
Fastagestir Hópur
fastagesta gefur staðnum
skemmtilegan blæ á
morgnana. Myndir Sigtryggur Ari