Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Blaðsíða 34
Helgarblað 10.–13. mars 201730 Sport Þ að hefur verið bjartara út- lit yfir íslenskum lands- liðsmönnum en akkúrat þessa dagana. Þann 24. mars er mikilvægur leikur við Kósóvó í undankeppni HM, leik- ur sem þarf að vinnast svo íslenska liðið eigi möguleika á að komast á HM í Rússlandi 2018. Staðan á lykilmönnum Íslands er ekki góð en fjórir leikmenn sem hafa allir leikið mjög stórt hlutverk síðustu ár verða líklega ekki með í leiknum. Útilokað er að Kolbeinn Sigþórsson verði með en þessi frábæri framherji hefur ekki spilað leik síðan í ágúst og óvíst er hvenær hann spilar aftur. Birkir Bjarnason verður frá næstu tvo mánuðina en hann hefur leikið stórt hlutverk í landsliðinu síðustu ár. Mjög ólíklegt er að Jóhann Berg Guð- mundsson, kantmaður Burnley, verði með en hann glímir við hnémeiðsli. Hann og Birkir Bjarnason hafa átt fast sæti hvor á sínum kantinum síð- ustu ár. Alfreð Finnbogason, fram- herji Augsburg í Þýskalandi, hefur ekki spilað síðan í september og óvíst er hvenær hann snýr aftur á völlinn. Þetta eru stór skörð sem þjálfarinn, Heimir Hallgrímsson, þarf að fylla. Hver á að skora mörkin? Þegar þessir fjórir leikmenn eru teknir út úr dæminu sést að 46 mörk hverfa á einu bretti. Mestu munar þar um Kolbein sem hefur skorað 22 mörk fyrir landsliðið. Ef mögu- legt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Kósóvó er skoðað má sjá að þar hafa þeir tíu útileikmenn sem líkleg- astir eru til að byrja leikinn skorað 32 mörk, 14 mörkum minna en þeir fjórir sem frá eru vegna meiðsla. Gylfi Þór Sigurðsson er langlík- legastur til þess að skora fyrir lands- liðið, hann hefur skorað 14 mörk fyrir landsliðið sem er níu mörkum meira en næsti maður. Arnór Ingvi Traustason hefur skorað fimm mörk fyrir landsliðið á stuttum tíma og ætti að fá tækifæri í þessum leik vegna meiðsla Birkis og Jóhanns. Ískaldur Jón Daði Jón Daði Böðvarsson, framherji Wolv- es, hefur ekki skorað mark í leik síðan í ágúst og hans styrkleiki fyrir lands- liðið hefur ekki verið markaskor- un. Nú þegar Kolbeinn og Alfreð eru meiddir er langlíklegast að Viðar Örn Kjartansson fái tækifæri. Hann hefur ekki fengið mörg af þeim með lands- liðinu en spilamennska hans í Ísrael ætti að gefa honum sénsinn. Viðar hefur skorað mikið undanfarið og ætti að vera líklegur til afreka gegn Kósóvó. Viðar hefur þó aðeins skorað eitt mark fyrir Ísland. Miðverðirnir Ragnar Sigurðsson og Kári Árna- son hafa átt þessar stöður síðustu ár en báðir hafa verið á betri stað en einmitt þessa stundina, Kári hefur verið að glíma við meiðsli en er að ná sér og ætti að spila næstu leiki Omonia á Kýpur. Ragnar Sigurðsson er hins vegar úti í kuldanum hjá Ful- ham á Englandi, Ragnar hefur ekkert fengið að spila síðustu vikur. Ólíklegt er þó að Heimir Hallgrímsson breyti einhverju í hjarta varnarinnar enda hafa Ragnar og Kári átt góðu gengi að fagna með landsliðinu. Ekki bara dökkar hliðar Það eru þó ekki bara dökkar hliðar sem blasa við landsliðinu nú um stundir. Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson eru líklega mikil- vægustu leikmenn liðsins og þeir eru báðir í sínu besta formi á ferlinum, Gylfi hefur verið frábær með Swansea í ensku úrvalsdeildinni á sama tíma og Aron Einar hefur reynst Cardiff frá- bærlega í næstefstu deild Englands. Emil Hallfreðsson hefur einnig verið frábær með Udinese á Ítalíu og hann ætti að fá langþráð tækifæri í alvöru landsleik. Mörgum þykir Emil ekki fá það hrós sem hann hefur átt skilið á Íslandi og nú gæti hann fengið tæki- færi til að minna rækilega á sig. n Hver á að skora mörkin? n Gylfi þarf hjálp gegn Kósóvó n Fær Viðar langþráð tækifæri? n Meiddir með 46 mörk Meiddir Kolbeinn Sigþórsson 22 mörk Alfreð Finnbogason 11 mörk Jóhann Berg Guðmundsson 5 mörk Birkir Bjarnason 8 mörk 46 mörk samtals Hannes Þór Halldórsson 0 mörk Birkir Már Sævarsson 1 mark Arnór ingvi Traustason 5 mörk Viðar Örn Kjartansson 1 mark Jón daði Böðvarsson 2 mörk Gylfi Þór Sigurðsson 14 mörk Aron einar Gunnarsson 2 mörk emil Hallfreðsson 1 mark Kári Árnason 3 mörk ragnar Sigurðsson 3 mörk Ari Freyr Skúlason 0 mörk Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is LíKLeGT ByrJunArLið 32 mörk samtals
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.