Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Side 54

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Side 54
Helgarblað 10.–13. mars 201750 Fólk Atvinna í boði á einum skemmtilegasta vinnustað landsins Á markaðsdeild DV er í boði starf fyrir góðan og harðduglegan starfsmann. Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera skemmtilegur, jákvæður, harðduglegur, samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur, úrlausnamiðaður, hafa áhuga á sölumennsku og markaðsmálum. Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann. Umsóknir sendist á steinn@dv.is Þ etta er búið að vera algjör geðveiki,“ segir tónlistar­ konan Greta Salóme um síð­ asta ár sem hefur vægast sagt verið viðburðaríkt í lífi söng­ konunnar. Á milli þess sem hún tók þátt í Eurovision á síðasta ári, útsetti verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og flutti sína eigin tónlist á tónleikum víðs vegar um heiminn, sigldi hún um heimsins höf með skemmtiferðaskip­ um úr flota Disney þar sem hún heill­ aði gesti upp úr skónum kvöld eftir kvöld. Þá lauk Greta árinu 2016 með því að taka 40 „gigga“ desember. Uppbókuð næsta árið „Þetta eru bara keðjuáhrif svo er ég líka með frábæran umboðsmann sem hefur hjálpað mikið til,“ segir Greta aðspurð hvernig öll þessi verk­ efni komu til. Þá hefur hún sjálf verið dugleg að skapa sér verkefni við góð­ ar undirtektir en Greta er uppbók­ uð þar til í febrúar 2018. Næsta stóra verkefni eru stórtónleikar, 17. og 18. mars næstkomandi, með norska tónlistarmanninum og lagahöfund­ inum Alexander Rybak, en hann vann Eurovision árið 2009 með lagið Fairytale. Hópurinn, sem kemur fram á tónleikunum í Hörpu og í Hofi og samanstendur af Gretu, Alexander, rokkbandi, strengjasveit og dönsur­ um, mun flytja helstu smelli Gretu Salóme og Alexanders og auk þess spennandi bræðing af klassískum verkum, poppi og rokki, flugelda­ sýningum á hljóðfærin, Disney og Eurovision svo eitthvað sé nefnt. Um þessar mundir er dagskrá Gretu svo þétt að hún segist aðeins hugsa um einn dag í einu. „Mér líð­ ur best og vinn líka betur þegar það er mikið að gera hjá mér svo ég get ekki kvartað.“ Hræðist ekki að mistakast Þá er mottó hennar í lífinu er einfald­ lega „Get Shit Done.“ Greta kveðst eftir fremsta megni reyna að lifa eftir þessari tilvitnun. „Ég hef líka lúmskt gaman af því að taka áhættu. Auðvitað fer ég ekki út í hvað sem er en ég hræðist ekki að mistakast.“ Gretu er mjög umhugað að vera femínísk fyrirmynd fyrir ungar kon­ ur og stúlkur í tónlistarheiminum og hennar markmið er að skilja eftir sig fallegt fingrafar í íslenskri tónlist­ arsögu. „Það er mér mjög hugleikið að fá að greiða veginn fyrir íslenskar tónlistarkonur. Það eru heldur ekki margar konur í tónleikahaldi á Ís­ landi, þær mættu vera mun fleiri.“ n Kristín Clausen kristin@dv.is Nóg að gera Gretu líður best og vinnur betur þegar mikið er að gera eins og um þessar mundir. MyNd SigtryggUr Ari Hver fer til Úkraínu? Ú rslitakvöld Eurovision fer fram á laugardag og er ljóst að raf­ mögnuð spenna verður í loft­ inu þegar í ljós kemur hver full­ trúi Íslands í Kænugarði í Úkraínu verður. Keppnin á laugardag hefst klukk­ an 19.45 og verður sýnd í beinni út­ sendingu í Sjónvarpinu. Fyrstur á svið verður Aron Hannes með lagið Tonight, næst á svið verða þau Arnar Jónsson og Rakel Pálsdóttir með lagið Again og þriðji á svið verður Aron Brink með lagið Hypnotised. Hildur Kristín Stefánsdóttir, sem komst nokkuð óvænt áfram, er fjórða á svið með lagið Bammbaramm. Akureyringurinn Rúnar Eff er svo fimmti í röðinni með lagið Make Your Way Back Home og Svala Björg­ vinsdóttir, með lagið Paper, er svo sjötta á svið. Daði Freyr Pétursson með lagið Is this Love? er svo síð­ astur á svið. Úrslitakvöldið fer fram í Laugar­ dalshöllinni og mun hinn sænski Måns Zelmerlöw, sem bar sig­ ur úr býtum í Eurovision árið 2015, með laginu Heroes, koma fram. Lag hans vann keppnina árið 2015 með nokkrum yfirburðum, en lagið fékk meðal annars tólf stig frá íslenskum almenningi. n Líður best Þegar mikið er að gera greta Salóme ætlar að skilja eftir sig fallegt fingrafar á íslenskri tónlistarsögu „Það er mér mjög hugleikið að fá að greiða veg- inn fyrir íslenskar tónlistarkonur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.