Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Qupperneq 54
Helgarblað 10.–13. mars 201750 Fólk
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
Á markaðsdeild DV er í
boði starf fyrir góðan og
harðduglegan starfsmann.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera
skemmtilegur, jákvæður, harðduglegur,
samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur,
úrlausnamiðaður, hafa áhuga á
sölumennsku og markaðsmálum.
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði
fyrir góðan og duglegan sölumann.
Umsóknir sendist á steinn@dv.is
Þ
etta er búið að vera algjör
geðveiki,“ segir tónlistar
konan Greta Salóme um síð
asta ár sem hefur vægast sagt
verið viðburðaríkt í lífi söng
konunnar. Á milli þess sem hún tók
þátt í Eurovision á síðasta ári, útsetti
verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands
og flutti sína eigin tónlist á tónleikum
víðs vegar um heiminn, sigldi hún um
heimsins höf með skemmtiferðaskip
um úr flota Disney þar sem hún heill
aði gesti upp úr skónum kvöld eftir
kvöld. Þá lauk Greta árinu 2016 með
því að taka 40 „gigga“ desember.
Uppbókuð næsta árið
„Þetta eru bara keðjuáhrif svo er ég
líka með frábæran umboðsmann
sem hefur hjálpað mikið til,“ segir
Greta aðspurð hvernig öll þessi verk
efni komu til. Þá hefur hún sjálf verið
dugleg að skapa sér verkefni við góð
ar undirtektir en Greta er uppbók
uð þar til í febrúar 2018. Næsta stóra
verkefni eru stórtónleikar, 17. og 18.
mars næstkomandi, með norska
tónlistarmanninum og lagahöfund
inum Alexander Rybak, en hann
vann Eurovision árið 2009 með lagið
Fairytale.
Hópurinn, sem kemur fram á
tónleikunum í Hörpu og í Hofi og
samanstendur af Gretu, Alexander,
rokkbandi, strengjasveit og dönsur
um, mun flytja helstu smelli Gretu
Salóme og Alexanders og auk þess
spennandi bræðing af klassískum
verkum, poppi og rokki, flugelda
sýningum á hljóðfærin, Disney og
Eurovision svo eitthvað sé nefnt.
Um þessar mundir er dagskrá
Gretu svo þétt að hún segist aðeins
hugsa um einn dag í einu. „Mér líð
ur best og vinn líka betur þegar það
er mikið að gera hjá mér svo ég get
ekki kvartað.“
Hræðist ekki að mistakast
Þá er mottó hennar í lífinu er einfald
lega „Get Shit Done.“ Greta kveðst
eftir fremsta megni reyna að lifa eftir
þessari tilvitnun.
„Ég hef líka lúmskt gaman af því
að taka áhættu. Auðvitað fer ég ekki
út í hvað sem er en ég hræðist ekki
að mistakast.“
Gretu er mjög umhugað að vera
femínísk fyrirmynd fyrir ungar kon
ur og stúlkur í tónlistarheiminum
og hennar markmið er að skilja eftir
sig fallegt fingrafar í íslenskri tónlist
arsögu. „Það er mér mjög hugleikið
að fá að greiða veginn fyrir íslenskar
tónlistarkonur. Það eru heldur ekki
margar konur í tónleikahaldi á Ís
landi, þær mættu vera mun fleiri.“ n
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Nóg að gera Gretu líður best
og vinnur betur þegar mikið
er að gera eins og um þessar
mundir. MyNd SigtryggUr Ari
Hver fer til Úkraínu?
Ú
rslitakvöld Eurovision fer fram
á laugardag og er ljóst að raf
mögnuð spenna verður í loft
inu þegar í ljós kemur hver full
trúi Íslands í Kænugarði í Úkraínu
verður.
Keppnin á laugardag hefst klukk
an 19.45 og verður sýnd í beinni út
sendingu í Sjónvarpinu.
Fyrstur á svið verður Aron
Hannes með lagið Tonight, næst
á svið verða þau Arnar Jónsson og
Rakel Pálsdóttir með lagið Again og
þriðji á svið verður Aron Brink með
lagið Hypnotised.
Hildur Kristín Stefánsdóttir, sem
komst nokkuð óvænt áfram, er fjórða
á svið með lagið Bammbaramm.
Akureyringurinn Rúnar Eff er svo
fimmti í röðinni með lagið Make
Your Way Back Home og Svala Björg
vinsdóttir, með lagið Paper, er svo
sjötta á svið. Daði Freyr Pétursson
með lagið Is this Love? er svo síð
astur á svið.
Úrslitakvöldið fer fram í Laugar
dalshöllinni og mun hinn sænski
Måns Zelmerlöw, sem bar sig
ur úr býtum í Eurovision árið 2015,
með laginu Heroes, koma fram. Lag
hans vann keppnina árið 2015 með
nokkrum yfirburðum, en lagið fékk
meðal annars tólf stig frá íslenskum
almenningi. n
Líður best Þegar
mikið er að gera
greta Salóme ætlar að skilja eftir sig fallegt fingrafar á íslenskri tónlistarsögu
„Það er mér
mjög hugleikið
að fá að greiða veg-
inn fyrir íslenskar
tónlistarkonur