Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Síða 20
20 Helgarblað 21.–24. apríl 2017fréttir - erlent
Í
tuttugu og sex ár töldu banda-
rísk löggæsluyfirvöld að Gustavo
Falcon, sem talinn er hafa átt
þátt í smygli á fleiri tonnum
af kókaíni til Bandaríkjanna á
níunda áratug liðinnar aldar, væri í
felum í Mexíkó eða Kólumbíu.
Gustavo þessi var hins vegar
handtekinn á dögunum í Bandaríkj-
unum, 26 árum eftir að ákæra var
gefin út á hendur honum. Handtak-
an markar ákveðin þáttaskil enda
hefur lögreglu nú tekist að hafa
hendur í hári allra hinna svokölluðu
„kókaínkúreka“ sem báru ábyrgð á
þeirri flóðbylgju kókaíns sem reið
yfir Bandaríkin, Flórída þá sérstak-
lega, á árum áður.
75 tonn á rúmum áratug
Gustavo var ákærður árið 1991
fyrir aðild að umfangsmiklu kóka-
ínsmygli. Fleiri voru ákærðir í mál-
inu, þar á meðal bróðir hans, Aug-
usto „Willie“ Falcon, sem dæmdur
var í 20 ára fangelsi. Ákæran varðaði
innflutning á 75 tonnum af kóka-
íni á árunum 1978 til 1991, en verð-
mæti efnanna er talið hafa hlaupið
á tveimur milljörðum Bandaríkja-
dala.
„Það bjóst enginn við því að
hann héldi til í Bandaríkjunum,“
segir Barry Golden, talsmaður lög-
reglunnar í Miami, í samtali við
Miami Herald. Gustavo var hand-
tekinn skammt frá Orlando á dögun-
um, en þá hafði lögregla fylgst með
ferðum hans í nokkurn tíma. Við
yfir heyrslur sagði hann lögreglu frá
því að hann hefði búið á Flórída síð-
astliðin tuttugu ár eða svo.
Í frétt Miami Herald kemur fram
að Falcon hefði notast við fölsuð
persónuskilríki og eiginkona hans
einnig. Hann verður að líkindum
framseldur til Miami þar sem hans
bíður dómur.
Mútuðu kviðdómendum
Bróðir Gustavo, Willie Falcon, var
sem fyrr segir dæmdur í tuttugu ára
fangelsi í kringum aldamótin eftir
að hafa verið sýknaður í undirrétti.
Til stendur að veita honum reynslu-
lausn í júní næstkomandi. Salvador
Magluta, félagi þeirra bræðra, var
einnig sýknaður en síðar kom á
daginn að kviðdómendur höfðu
þegið mútur fyrir að sýkna þá fé-
laga. Magluta var að lokum dæmdur
í 205 ára fangelsi. Hann dvelur enn
í fangelsi í Colorado og berst fyrir
endurupptöku á máli sínu.
Willie og Magluta gengu undir
viðurnefninu Strákarnir (e. The
Boys) og fóru þeir að láta til sín
taka í undirheimum Suður-Flór-
ída eftir að hafa hætt í skóla ungir
að árum. Þeir byrjuðu smátt og not-
uðu hraðbáta til að flytja
kókaín frá Kólumbíu að
ströndum Suður-Flórída
þar sem þeir þénuðu fúlgur
fjár á sölu efnanna. Gustavo
er talinn hafa tekið þátt í
starfseminni og var ákærð-
ur fyrir hlutdeild í smygl-
inu. Að sögn Miami Her-
ald var lögreglu það ljóst að
Magluta var höfuðpaurinn í
smyglhringnum. n
n „Kókaínkúrekinn“ Gustavo Falcon handtekinn n Stóð fyrir smygli á fleiri tonnum af kókaíni
Gómaður eFtir
26 ár á Flótta
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Kókaín í tonnavís
Kókaíninu var meðal
annars smyglað með
hraðbátum til Flórída.
Handtekinn Gustavo Falcon hafði verið á
flótta undan réttvísinni í 26 ár.
„Það bjóst enginn
við því að hann
héldi til í Bandaríkjunum.
tvísýnustu kosningar í áratugi
Macron og Le Pen líklegust til að fara áfram í frönsku forsetakosningunum á sunnudaginn
F
yrri umferð frönsku forseta-
kosninganna fara fram næst-
komandi sunnudag og hafa
þær ekki verið eins tvísýnar í
áratugi. Spútnik-frambjóðandinn
Emmanuel Macron hefur sótt í sig
veðrið frá því í byrjun mars síðast-
liðinn og hefur síðustu daga mælst
með mest fylgi frambjóðenda, þetta
um og yfir 23 prósent. Marine Le
Pen, frambjóðandi Þjóðfylkingar-
innar, leiddi lengi vel í könnunum
en kemur nú rétt á hæla Macron og
mikið þarf að breytast til að þau tvö
komist ekki í síðari umferðina sem
fram fer 7. maí.
Breytt landslag
Gott gengi Le Pen, ekki síst fram-
an af, vakti áhyggjur margra en
flokkur hennar, Þjóðfylkingin, er
þjóðernispopúlistaflokkur sem er
andsnúinn innflytjendum, múslim-
um, talar gegn Evrópusambandinu
og evrusamstarfinu og hvetur til
einangrunarhyggju í Frakklandi.
Macron, sem fer fram fyrir flokk
sinn En Marche !, hefur aftur á móti
verið sakaður um að vera popúlisti,
hann hafi í raun ekki stefnu í neinu
svo heitið geti. En svo sem fyrr segir,
mestar líkur eru til að þau tvö kom-
ist áfram í seinni umferð kosning-
anna og það yrði sögulegt. Venjan
er sú að frambjóðendur til forseta í
Frakklandi, í það minnsta annar ef
ekki báðir, séu fulltrúar gömlu valda-
flokkanna, hvor á sínum pólitíska
vængnum, íhaldsmanna í Lýðveldis-
flokknum og vinstri manna í Sósíal-
istaflokknum.
Mikilvægasta breytan í kosninga-
baráttunni var þegar François Fillon,
fyrrverandi forsætisráðherra Lýð-
veldisflokksins, var ásakaður fyrir að
hafa misfarið með fjármuni með því
að hafa greitt konu sinni og tveimur
börnum yfir 100 milljónir króna fyr-
ir störf sem þau sinntu ekki í raun og
veru. Fillon var í forystu framan af
en eftir að ásakanirnar komu fram
hrapaði fylgi hans en á sama tíma
sótti Le Pen í sig veðrið. Leiddi Le
Pen í könnunum eftir það en í byrjun
mars byrjaði stjarna Macron að risa
hægt og örugglega og um miðjan
marsmánuð mátti vart á milli hans
og Le Pen sjá. Þau hafa síðan verið
tölfræðilega jöfn í könnunum.
Ótryggt fylgi
Hvað gerist á sunnu-
daginn kemur í ljós en helsti óvissu-
þátturinn nú er sá að fylgi Macron er
að hluta ótryggt en allt að þriðjungur
kjósenda, sem segjast styðja hann,
er samt ekki sannfærður um að hann
verði fyrir valinu þegar til kastanna
kemur. Fylgi frambjóðanda
vinstra bandalagsins, Jean-Luc
Mélenchon, hefur aukist verulega
frá því í síðari hluta marsmánaðar,
hefur farið úr tólf prósentum í nítján.
Verði kjörsókn dræm gæti það orðið
vatn á myllu Mélenchon en dregið
úr fylgi Macron. Hvort það myndi
duga til kemur í ljós á sunnudag. n
freyr@dv.is
Spútnik-frambjóðandi
Emmanuel Macron hefur
skotist hratt upp í forystu
fyrir komandi forsetakosn-
ingar í Frakklandi. Mynd EPA
Líkleg í aðra
umferð Mar-
ine Le Pen er
afar líkleg til að
ná í aðra um-
ferð í frönsku
forsetakosn-
ingunum á
sunnudaginn.
Mynd EPA