Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Blaðsíða 23
umræða 23Helgarblað 21.–24. apríl 2017 aðallega til Minnesota í Bandaríkj­ unum, og stofnuðu meðal annars ís­ lenska kaupstaðinn „Minneota“ sem ég hef heimsótt, en þar bjó Vestur­ íslenska skáldið Bill heitinn Holm. Rolluhokur fremur en kornrækt Eins og ég hef sagt frá í skáldsögun­ um Stormi og Passíusálmunum þá er þessi staður, þar sem íslenski bær­ inn „Minneota“ stendur, að mörgu leyti afar óheppilegur til búsetu, og kemur ýmislegt til: skordýraplág­ ur, geysilegar hitasveiflur, og fleira. Samt munu Íslendingarnir, aðal­ lega af Jökuldalsheiðinni og víðar af Norðausturlandi, hafa valið sér þann stað umfram ýmsa hagfelldari, því að þeir voru að leita að stað hent­ ugum fyrir sauðfjárrækt, sem var sá landbúnaður sem þeir þekktu. Þarna eru geysifrjósamar sléttur, upplagðar fyrir kornrækt, en við fólkið héðan þekktum bara rolluhokur. Víðar á sléttunum í landnámi komandi ára leituðu Íslendingar að hæðardrög­ um, eða í það minnsta litlum hól­ um á gresjunni, og völdu sér þar búsetu; þannig varð til einn af ís­ lensku bæjunum vestra sem heitir „Mountain“. Meðan nýkomnir Þjóð­ verjar, Svíar, Úkraínumenn, Belgar og margar fleiri þjóðir hófu ábata­ sama kornrækt, hírðust Íslendingar uppi á hólunum sínum. En fóru brátt að einbeita sér öðru en því að stúss­ ast í kringum ásauð; í íslensku ný­ lendunum var mikið sungið og lesið, menn fóru út í að skrifa skáldskap, stofna blöð, boða guðsorð, stunda lög eða stjórnmál. Um þetta er til stórmerkileg ritgerð eftir Bill heitinn Holm sem ég nefndi áðan, hún heit­ ir The Music Of Failure, og má finna í bók eftir hann sem heitir The Heart Can Be Filled Anywhere On Earth, auk þess sem mig minnir að hún hafi birst á íslensku í TMM. Vilji menn fræðast nánar um Kitta í Selinu þá bendi ég á bók Bergsveins Skúlasonar: Þarablöð – þættir frá Breiðafirði. Að auki er um Selið góð og ýtarleg grein eftir Kjartan Ólafsson, í árbókinni Breið­ firðingur ­ 1916. Og svo ættu menn að leita uppi á Sarpinum hinn stór­ góða endurflutta þátt Finnboga Her­ mannssonar sem ég gat um í upphafi þessa pistils. n eldofninn.is Eldofninn, pizzeria • Bústaðavegi • sími 533 1313 • eldofninn.is Kaffit ími - ekta Íta lskt Eldofninn flytur in n eðal kaffi frá Ítal íu „Að því sögðu er engin ástæða til að efa þau orð að hug- mynd hins unga Halldórs um að skrifa bók um líf fólks í íslensku sveitakoti hafi að einhverju leyti kviknað þegar hann heimsótti þau í Selinu. Erindi okkar Tómasar „Að gera okkar til að láta spádóm Jóns frá Skáleyjum rætast.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.