Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Page 30
BLÚS Þorsteinn G. Gunnarsson er í stjórn Blúshátíðarinnar, sem alltaf er haldin í dymbilvikunni og hátíðin í ár er sú fjórtánda. „Við leggjum áherslu á tvennt, að breiða út blúsinn með því að fá þekkta og athyglisverða tónlistarmenn til okkar og að styðja við unglingastarfið í tónlistinni á Íslandi.“ Sú hefð hefur skapast á Músíktilraunum sem haldnar eru stuttu fyrir Blúshátíðina að þar er valið blúsaðasta band Músíktilraunina. „Það band setur síð- an hátíðina með því að stíga fyrst á svið,“ segir Þorsteinn. Hver sem er getur spilað eftir tónleika Hátíðin er mjög vel sótt og segir Þorsteinn að það sé gaman að geta skipulagt tónlistarhátíð fyrir þennan aldurshóp, en flestir gesta eru á aldrinum 40–60 ára, þó að yngra fólk mæti líka. „Gestir eru mjög þakklátir og þegar tónleikum lýkur þá er klúbbur fyrir framan tónleikasalinn og þar er djammað frá því að tónleikum lýkur klukkan 23 og fram eftir nóttu. Og þar má hver sem áhuga hefur spila, og kemur fyrir að stóru og frægu gestirnir okkar, tónlist- armenn sem hafa fengið Grammy-verð- laun eru að skemmta sér þar með unga fólkinu sem er í háskóla og í tónlistar- námi.“ Þorsteinn segir að ástæðan fyrir því að Blúshátíð sé haldin á páskum sé sú að upphaflega hafi ekkert mátt gera á pásk- um og í raun hafi verið um að ræða leiðin- legustu viku ársins, hvað skemmtanahald varðar. „Síðan tók guðfaðir hátíðarinnar, Halldór Bragason, sem leiðir Vini Dóra, sig til og þeir byrjuðu að halda tónleika að kvöldi skírdags á Hótel Borg. Það sem er heillandi við blúsinn er í raun og veru frelsið sem býr í tónlistinni, spuninn og flugið sem listamenn taka gjarnan á sviðinu,“ segir Þorsteinn sem er heillaður af blús. Þorsteinn G. Gunnarsson (56) býður á blúshátíð: „FRELSIÐ Í TÓNLISTINNI ER ÞAÐ SEM HEILLAR VIÐ BLÚSINN“ Blúshátíð var haldin á Hilton um páskana. Hátíðin hefur vaxið með hverju ári og er vel sótt af blúsaðdáendum á öllum aldri, sem hlýða á íslenska og erlenda blúsara og skemmta sér með þeim fram á nótt. KÁRI KANN ÞETTA Kári, sonur hjónanna Sigurveigar Káradóttur, eiganda Matarkistunnar, og Egils Helgasonar fjölmiðlamanns, er einstaklega hæfileik­ aríkur. Kári er 15 ára og gerði sér lítið fyrir í Klúbbnum eftir tónleika og heillaði gesti hátíðarinnar. GUÐFAÐIRINN Halldór Bragason sem jafnan er kallaður guðfaðir blústónlistarinnar hér á landi, er einnig listrænn stjórnandi Blúshátíðarinnar. EINN SÁ BESTI Bandaríski blúsarinn Noah Wotherspoon, sem valinn var besti gítarleik­ arinn á International Blues Challenge árið 2015, var stórkostlegur á sviði ásamt The Blue Ice Band. UNG NEMUR ELDRI TEMUR Hæfileikarnir ekki fjarri. Ung dóttir Davíðs Þór Jónssonar leikur sér á trommurnar ásamt föður sínum, stuttu fyrir tónleika. BLÚSFÍLINGUR Óskar Logi Ágústsson, söngvari og gítarleikari The Vintage Caravan, var sem í leiðslu á sviðinu. VELKOMIN Á BLÚS Þorsteinn G. Gunnarsson bauð gesti velkomna á hátíðina og er hæst­ ánægður með hvernig til tókst. KK KLIKKAR ALDREI Kristján Kristjánsson, sem best er þekktur sem KK, klikkaði ekki á sviði frekar en fyrri daginn. Strákurinn er með 'etta. NORÐURLANDABLÚS Það fór vel á með sænska gítarleikaranum Göran Svenningsson, en hann hefur spilað blús frá unga aldri með helstu blúsmönnum Svíþjóðar og munn­ hörpuleikaranum Þorleifi Gauki Davíðssyni. BLÚS MEÐ MÖNNUM Andrea Gylfadóttir og hljómsveit hennar Blúsmenn Andreu kom fram á lokakvöldinu og setti kommuna yfir u­ið í velheppnaðri blúshátíð. GÍTARSNILLINGUR AF GUÐS NÁÐ Guðmundur Péturs­ son er einn af færari gítarleikurum landsins og þótt víðar væri leitað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.