Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Page 56
40 menning Helgarblað 21.–24. apríl 2017
Þ
jóðleikhússtjóri réð Þorleif
Örn Arnarsson til þess að
setja á svið leikritið Aftur
á kreik, um endurkomu
Adolfs Hitlers, á stóra svið
leikhússins. En Þorleifur fann fyrir
samfélagslegri og listrænni nauðsyn
til þess að gera eitthvað annað.
Hann taldi brýnt að Þjóðleik-
húsið og listamenn þess endurnýj-
uðu umboð sitt frá þjóðinni, eins
og hann hefur sagt í viðtölum, og
fékk því leyfi leikhússtjóra til þess
að henda fyrri plönum og setja þess
í stað upp verk eftir sjálfan sig. Þetta
er spennandi staða og óljóst hvað
gerist ef þetta meinta umboð fæst
nú ekki endurnýjað.
Allur heimurinn er leiksvið
Leikritið hófst á þekktum línum
Shakespeares en aðstandendur sýn-
ingarinnar virðast gera sér far um að
þakka ekki höfundum þeirra texta-
brota sem flutt eru í sýningunni
eða notuð sem innblástur. Því næst
tók við upprifjun á byggingarsögu
leikhússins og kynning á leikurum
sýningarinnar. Þá tóku við lang-
dregnir bútar og umfjöllun um
Fjalla-Eyvind, Stundarfrið, Sjálf-
stætt fólk, Elínu, Helgu, Guðríði,
Þetta er allt að koma, Inuk – Mann-
inn og Pétur Gaut að ógleymdum
sigurleik íslenska landsliðsins í fót-
bolta gegn Englendingum síðasta
sumar.
Um sviðið rambaði líka trúður í
líki Ronalds McDonalds sem öskr-
aði gjarnan línur sínar út í sal. Af-
skaplega þreytandi stíll og oft
ómögulegt að greina orðaskil. Ef
til vill skipti textinn og skilningur
áhorfenda leikstjórann engu máli.
Það voru líka þuldar upp hinar
ýmsu fyrirsagnir úr fjölmiðlum í
gríð og erg. Mjög leiðinlegt. Og leik-
ararnir öskruðu líka stundum allir
saman til áhorfenda, bæði hátt og
lengi. Aftur mjög leiðinlegt.
Hafi einhver samfelldur tónn
verið í gegnum sýninguna þá kem-
ur einna helst upp í hugann háð,
óvirðing, heimska og hroki gagnvart
leikhúsinu, áhorfendum og öllum
öðrum en þeim sem að sýningunni
standa. En samt er eiginlega á mörk-
unum að hægt sé að staðhæfa eitt-
hvað slíkt. Þetta var hvorki fugl né
fiskur, bara ótrúlega leiðinleg og
löng sýning. Korterið sem fór í að
velja 10 áhorfendur úr sal til þess að
skipta kökunni sem táknaði eign-
ir landsmanna, var eitt skýrasta
dæmið um þokkalegar hugmyndir,
en slappa og ófrumlega úrvinnslu.
Pólitískt leikhús fyrir
markaðsdeildina
Skásti hlutinn var þó frásögn Ólafíu
Hrannar um fátækt á Íslandi. Efni-
viðurinn var hjartaskerandi en öll
úrvinnsla einstaklega máttlaus. Það
er ömurlegt hlutskipti að vera fá-
tækur og ná ekki endum saman. Að
vera í sömu stöðu í næsta mánuði,
á næsta ári og á næsta áratug. Að
eiga enga von um betri tíð. Að lifa í
stöðugu nei-i, neita öllu, dag eftir
dag eftir dag. Berja niður allar lang-
anir til þess að gleðja börnin sín og
sjálfan sig eða bara kaupa svolítið
hollari mat. Að geta ekki einu sinni
sent börnin sín í afmæli bekkjarfé-
laganna. Ekki núna, ekki á morgun,
ekki í næsta mánuði, ekki á næsta
ári. Fátæktin bítur í sálina og skaðar
alla sem hún nær í.
Álfahöllin var kannski einhvers
konar spegill samfélagsins að því
leyti að hún þóttist ætla að vera póli-
tískt leikhús og hafa mikilvægt erindi
við þjóðina. Höfundar sóttu bensín
fyrir markaðsdeildina til verst settu
þegna samfélagsins, gáfu þeim
sviðið í stutta stund en unnu ekkert
af viti úr sögu þeirra, grófu í raun
bara höfuðið í sandinn, rétt eins og
samfélagið sjálft. Til að slá einhvern
botn í þetta fékk Arnar Jónsson að
lokum að flytja texta úr Pétri Gaut
eftir Henrik Ibsen með yfirdrifnum
dramatískum tilþrifum.
Það má vera að það hafi verið
mikill kjarkur hjá Ara Matthíassyni að
gefa Þorleifi fullt listrænt leyfi til þess
að setja á svið stóra leiksýningu eftir
eigin höfði en slíku leyfi hefði jafn-
framt þurft að fylgja hugrekki leik-
hússtjórans til að blása sýninguna af
ef hún ekki stæðist kröfur um gæði.
Því miður var það hugrekki ekki til
staðar. n
Bryndís Loftsdóttir
ritstjorn@dv.is
Leikhús
Álfahöllin
Höfundar handrits: Þorleifur Örn Arnars-
son, Jón Atli Jónason og fleiri.
Leikstjóri: Þorleifur Örn Arnarsson
Leikarar: Aldís Amah Hamilton, Arnar
Jónsson, Atli Rafn Sigurðarson, Baldur
Trausti Hreinsson, Hallgrímur Ólafsson, Lára
Jóhanna Jónsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Ólafur Egill Egilsson, Sigurður Þór Óskars-
son, Vigdís Hrefna Pálsdóttir
Leikmynd: Börkur Jónsson
Búningar, hönnun og gervi: Sunneva Ása
Weisshappel
Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson
Sýnt í Þjóðleikhúsinu
„Hafi einhver sam-
felldur tónn verið
í gegnum sýninguna þá
kemur einna helst upp
í hugann háð, óvirðing,
heimska og hroki gagn-
vart leikhúsinu, áhorfend-
um og öllum öðrum en
þeim sem að sýningunni
standa.
Flatneskja
og sjálfumgleði
á stóra sviðinu
Mynd Hörður SveinSSon
Mynd Hörður SveinSSonMetsölulisti
Eymundsson
13.– 19. apríl 2017
Allar bækur
1 Í skugga valdsinsViveca Sten
2 LögganJo Nesbø
3 Sterkari í seinni hálfleik
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
4 Risasyrpa Glóandi gull Walt Disney
5 Ævinlega fyrirgefiðAnne B. Ragde
6 Iceland flying highÝmsir höfundar
7 Sagas of the Icelanders
Ýmsir höfundar
8 Ör kilja Auður Ava Ólafsdóttir
9 Leyndarmál eigin-mannsins
Liane Moriarty
10 Iceland In a BagÝmsir höfundar
Handbækur / Fræði-
bækur / Ævisögur
1 Sterkari í seinni hálfleik
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
2 Undur MývatnsUnnur Þóra Jökulsdóttir
3 Leitin að svarta víkingnum kilja
Bergsveinn Birgisson
4 Svefn Dr. Erla Björnsdóttir
5 Garðrækt í sátt við umhverfið
Bella Linde/Lena Granfelt/Halla
Kjartansdóttir
6 Gæfuspor - Gildin í lífinu Gunnar Hersveinn
7 FjallvegahlaupStefán Gíslason
8 Náttúrulega sætt Tobba Marinós
9 Volcano SudokuÝmsir höfundar
10 Fléttur IV Margar myndir ömmu
Irma Erlingsdóttir o.fl.