Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Blaðsíða 6
6 Helgarblað 18. ágúst 2017fréttir
Þ
rjú alvarleg mál hafa
komið upp á einung-
is rúmum mánuði sem
tengjast ökumönn-
um og öðrum starfsmönnum
ferðaþjónustufyrir tækisins Kynn-
isferða/Reykjavík Excursions. Í
tveimur tilvikum er um að ræða
mál sem ógnuðu öryggi farþega í
hópflutningabifreiðum en í hinu
er um hugsanlega umsvifamikla
smygl-starfsemi að ræða. Sam-
kvæmt heimildarmönnum DV er
það altalað meðal rútubílstjóra hjá
BSÍ og víðar að fyrirtækið taki ekki
á þessum málum.
Bílstjóri mjög ölvaður
Hópferðabílstjóri frá Kynnisferðum
var stöðvaður af lögreglu sunnu-
daginn 6. ágúst, um verslunar-
mannahelgina, við Fosshótel Jökuls-
árlón í Öræfum. Tilkynning barst frá
hóteli við Freysnes í Skaftafelli um
að bílstjórinn hefði setið að drykkju
áður en hann hélt út í bifreiðina
með erlenda ferðamenn.
Bílstjórinn, sem er íslenskur
maður um fimmtugt, sýndist ekki
mjög ölvaður í fyrstu en eftir mæl-
ingar kom í ljós að hann hafði
drukkið töluvert magn áfengis.
Þegar lögreglan stöðvaði manninn
var einn erlendur ferðamaður eftir
í bílnum hjá honum, á leiðinni til
Hornafjarðar. Aðrir farþegar voru
þá farnir úr bifreiðinni.
Aðrar reglur gilda um ölvunar-
brot atvinnubílstjóra en annarra
ökumanna. Maðurinn var sviptur
ökuréttindum sínum á staðnum
og hann handtekinn. Hann hefur
verið kærður vegna gruns um ölv-
un við akstur hópferðabifreiðar en
enn eiga eftir að koma niðurstöð-
ur úr blóðsýnisrannsókn. Það tekur
yfirleitt á bilinu 2–3 vikur að fá þau
gögn.
Lögregla hafði samband við
Kynnisferðir vegna atviksins og
annar ökumaður tók við áætlunar-
ferðinni. Kristján Daníelsson, for-
stjóri Kynnisferða, sagði að búið
væri að vinna úr þessu máli: „Hann
er ekki starfsmaður okkar lengur.“
Glæfraakstur
Þann 25. júní síðastliðinn náð-
ist myndbandsupptaka úr fólks-
bifreið þar sem ökumaður hóp-
ferðabíls frá Kynnisferðum sást
aka mjög hratt og glæfralega.
Atvikið átti sér stað við Hjör-
leifshöfða á Mýrdalssandi.
Ökumaður hópferðabíls-
ins tók fram úr á ofsahraða og
minnstu munaði að hann lenti
framan á annarri bifreið sem
kom úr gagnstæðri átt. Ólafur
Ísleifsson, sem náði atvikinu á
myndband, sagði í samtali við
Vísi: „Ökumaðurinn var nærri
því búinn að drepa okkur báða.
Þú sérð að þegar rútan fer fram
hjá hinum bílnum þá er hún
enn hálf inn á akreininni hans.“
Ólafur sagðist sjálfur hafa
þurft að hemla harkalega og
sveigja út í kant til þess að hóp-
ferðabíllinn kæmist aftur inn
á rétta akrein. Hann var sjálfur
með fellihýsi og því áhættusamt
að hemla svo snögglega. Öku-
maður bifreiðarinnar sem kom
úr gagnstæðri átt þurfti að sama
skapi að nauðhemla og keyra út
í vegöxlina.
Eftir að atvikið kom upp tjáði
Kristján fjölmiðlum að bún-
aður væri til staðar sem gerði
stjórnendum kleift að fylgjast
með hraða allra hópferðabif-
reiða fyrirtækisins. Þessi um-
rædda bifreið hafi ekki verið í
eigu Kynnisferða en ökumað-
urinn var á vegum þeirra. Sagði
hann þá að hart yrði tekið á at-
vikinu. Nú segir Kristján málinu
lokið. „Við erum búnir að klára
þetta mál og hann er ekki starfs-
maður fyrirtækisins lengur.“
Smyglað til lands
með nýjum rútum
Þann 25. júlí greindi DV frá því
að töluvert magn áfengis, bæði
vodka og bjórs, hefði fundist
í nýrri hópferðabifreið í eigu
Kynnisferða. Bifreiðum fyrirtæk-
isins er breytt í Póllandi og þær
síðan fluttar til Íslands frá Dan-
mörku eða Hollandi.
Málið er talið tengjast pólsk-
um starfsmanni Kynnisferða sem
fer með mannaforráð og sér um
að flytja bílana. Witold Jankowski
sem er yfir rútuflutningadeildinni
neitaði því að nokkuð áfengi væri
í bílunum. Hann segir: „Það
er ekkert [vín] í bílunum. Bara
varahlutir og allt með reikningi.“
Hann sagðist einnig ekki sjá
um að flytja bílana frá Póllandi
heldur aðeins sækja þá frá höfn-
inni í Þorlákshöfn og flytja þá til
Reykjavíkur. Samkvæmt upplýs-
ingum frá forstjóra Kynnisferða
hefur hann örugglega flutt bíl-
ana frá Póllandi til hafnar í Dan-
mörku eða Hollandi.
Samkvæmt heimildarmanni
DV hefur smygl með rútum stað-
ið yfir lengi innan fyrirtækisins og
ekki einungis á áfengi. Með bíl-
unum komi eldhúsinnréttingar,
bílvélar, bílskúrshurðir og fleira.
Þegar áfengismálið kom upp
sagði Kristján að málið yrði skoð-
að innan fyrirtækisins og mjög
líklega yrði haft samband við lög-
reglu ef þetta reyndist rétt. Krist-
ján segir nú að enn hafi ekkert
fundist varðandi þetta mál en
rannsókn innan fyrirtækisins
hefur eingöngu farið fram með
samtölum við starfsmenn. „Það
eru ekki komnar neinar niður-
stöður úr því. Við höfum ekkert
til að sýna lögreglunni.“
Kristján staðfesti þó að rætt
verði við umræddan starfsmann
um atvikið þegar hann snýr aftur
til vinnu en hann er nú í sumarfríi
erlendis.
Ánægðir með starfsmannamálin
Lögreglan á Suðurlandi staðfestir
að það sé ávallt ökumaður sem
beri refsiábyrgðina gagnvart lögum
nema hvað varðar þætti sem snerta
akstur og hvíldartíma ökumanna.
Þá segir yfirmaður tollgæslunnar á
Suðurlandi að mál Kynnisferða hafi
ekki komið inn á sitt borð og bætir
við: „Ef fyrirtæki sem ætlar sér að
gera rétt varðandi tilkynningar þá
ætti það að leita til okkar.“ Hann
staðfestir einnig að eftir að fréttir
bárust af þessu máli í júlí muni bílar
fyrirtækisins kannaðir sérstaklega.
Kristján segir að ekki sé þörf á að
endurskoða starfsmanna- og ráðn-
ingarmál hjá fyrirtækinu. „Við erum
nokkuð ánægð með okkar ráðn-
ingarferli. Þegar þú ert með stóran
hóp af fólki þá ertu með fjölbreyttan
hóp.“ Um 600 manns starfa nú hjá
fyrirtækinu sem hefur vaxið mjög
að undanförnu vegna aukins ferða-
mannastraums hér á landi.
Hann segist þó ekki taka þessum
málum af léttúð. „Allar ábendingar
eru skoðaðar hjá okkur og ákvarð-
anir teknar í framhaldi af því. Svona
mál eru tekin mjög alvarlega.“ Til
að mynda hafa ökumennirnir tve-
ir verið leystir frá störfum. Þá hafi
verkferlum fyrirtækisins varðandi
rútuflutninga verið breytt til að
auka gagnsæi og koma í veg fyrir að
smygl geti átt sér stað. n
Ölvaður rútubílstjóri
Kynnisferða handteKinn
n Þriðja stóra málið stuttum tíma n Glæfraakstur og smygl
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
„Ef fyrirtæki sem
ætlar sér að gera
rétt varðandi tilkynningar
þá ætti það að leita til
okkar.
Kynnisferðir Hópferðabílstjóri tekinn ölvaður við Jökulsárlón. Mynd SiGtryGGur Ari