Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Blaðsíða 58
34 lífsstíll Helgarblað 18. ágúst 2017 É g hafði lesið alls kyns fræði- greinar í náminu og sá að sjónum er lítið beint að full- orðnu fólki. Það er alltaf ver- ið að skoða símanotkun krakka og unglinga. Mér fannst því tilvalið að skoða hegðun fullorðinna,“ segir Erna Kristín Kristjánsdóttir sem skoðaði snjallsímanotkun kvenna í meistaraprófsritgerð sinni í fjöl- miðla- og boðskiptafræðum; Böl eða blessun: viðhorf og um- fang snjallsímanotkunar kvenna í kringum fertugt. Nota samfélagsmiðla mikið Erna Kristín ræddi við sex konur á aldrinum 39–45 ára sem allar eru mæður og starfa allar innan grunnskólanna. „Þær nota símana mikið en notkunin er ekki endi- lega gagnslaus. Þær nota símana til að sinna vinnu, athuga með tómstundir barna, skipuleggja fé- lagsskap og þess háttar en eru einnig í leikjum en þá oftast ekki nema þær séu í bið eða hafi dauða stund,“ segir Erna Kristín sem segir konurnar sem hún ræddi við einnig nota samfélagsmiðlana mikið. „Þær nota Snapchat, eru á Facebook og nota Messenger í samskiptum. Facebook er augljós- lega notað til að halda sambandi við fólk sem þær myndu annars ekki vera í tengslum við en það sem kom mér á óvart er hvað þær nota Facebook mikið til að sinna vinnunni.“ Ekki gagnslaus notkun Erna Kristín ákvað að skoða hóp- inn, mæður í grunnskólum, þar sem umræða innan þess hóps um snjallsímanotkun barna og ung- linga sé mikil. „Því er oft haldið fram að það hangi allir í símanum, fólk kunni sig ekki og að notkunin sé orðin of mikil. Mig langaði að kanna hvort það væri rétt. Mögu- lega er þessi hópur meðvitaðri um eigin snjallsímanotkun þar sem áhyggjur og umræða um notkun barna og unglinga getur verið mikil og dramatísk innan hópsins,“ segir hún en bætir við að niðurstaðan hafi verið sú að notkunin sé mikil en ekki endilega gagnslaus. „Allar konurnar sem ég ræddi við gengust við ábyrgð sinni og gerðu sér grein fyrir að það er fullorðið fólk sem setur viðmiðið. Þær lýstu allar yfir einhverjum áhyggjur en sáu einnig allar gagnsemina og hvernig sím- inn getur nýst í skólanum. Við vilj- um oft stökkva á neikvæða vagninn í umræðunni en það er margt já- kvætt þarna líka, okkur þarf bara að takast að finna meðalveginn.“ Neikvæð umræða Erna Kristín segir flestar konurnar kunna á tæknina sem snjallsíminn býður upp á. „Þær vildu þó, allar nema ein, meina að þær væru mjög seinar til að tileinka sér bæði Facebook og Snapchat. Hins vegar virðast þær nota tæknina af full- um krafti eftir að hafa kynnt sér hana,“ segir Erna Kristín og bætir við að það hafi verið áberandi að konurnar væru að réttlæta snjall- símanotkun sína. „Og það er í sam- ræmi við umræðuna í þjóðfélaginu. Hún getur verið ansi neikvæð. Við vitum hins vegar ekki við hvað við ættum að miða. Hvað er ásættan- leg notkun? Líkt og ég hafði lesið í rannsóknum komst ég að því að símanotkun tengist vana. Við tök- um upp símann þegar við erum á biðstofu, þegar það koma aug- lýsingar í sjónvarpinu eða þegar við komum heim úr vinnunni og setjumst í sófann. Jafnvel líka þegar það er dauð stund á kaffistofunni.“ Fullorðnir veita aðgengi Sjálf viðurkennir Erna Kristín að nota sinn snjallsíma umtalsvert. „Það er ástæða fyrir því að það kviknaði á þessari peru. Ég nota símann mikið en þar sem ég hef verið í námi undanfarið vil ég meina að ég sé meira í afþreyingunni en konurnar sem ég ræddi við. Ég held að ég muni nota símann meira til gagns eftir að ég fer að vinna.“ En gæti hún hugsað sér lífið án snjallsíma? „Ég gæti það sennilega en ég er ekki viss um að ég myndi vilja það. Mikið af mínum samskipt- um fer fram í gegnum Messenger og svo nota ég Facebook til að halda tengslum við gamla skóla félaga og ættingja. Snjallsíminn auðveldar ýmislegt og hefur í för með sér mik- il þægindi. Maður verður samt að kunna sér hóf og setja reglur og ekki bara fyrir börnin. Líkt og ein konan sem ég talaði við sagði; það erum við fullorðna fólkið sem kaupum símana handa börnunum og veit- um netaðgengi. Það er alltaf hægt að bölsótast út í börnin, en við verðum að gera okkur grein fyrir að það erum við sem veitum að- gengið.“ n Snjallsímanotkun mikil en oft gagnleg n Erna Kristín skoðaði snjallsímanotkun kvenna á fertugsaldri n Umræðan oft neikvæð„Því er oft haldið fram að það hangi allir í símanum, fólk kunni sig ekki og að notkunin sé orðin of mikil. Erna Kristín Meistaraprófsritgerð Ernu Kristínar fjallar um viðhorf og umfang snjall- símanotkunar kvenna í kringum fertugt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.