Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Blaðsíða 72
Helgarblað 18. ágúst 2017
49. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Skál í botn!
Ótrúlegur
tvískinnungur
n Þeir félagar í Harmageddon,
Frosti og Máni, áttu sterka inn-
komu í ritstjóraþætti Hring-
brautar í vikunni. Þar var fjallað
um þann ótrúlega tvískinnung,
að íslenskir fjölmiðlar séu hund-
eltir af fjölmiðlanefnd og dóm-
stólum fyrir áfengisauglýsingar
á meðan erlendir fjölmiðlar og
íslenskir fjölmiðlar á ensku birta
allt sem þeim dettur í hug um
sama málefni. „Ef fjölmiðillinn
er íslenskur má hann alls ekki
fjalla um áfengi, en ef hann er
útlenskur má hann ausa úr vín-
skálum sínum eins og enginn sé
morgundagurinn,“ sögðu
þeir fé-
lagar.
Þórunn Antonía
syngur og selur
fötin sín
n Söngkonan hæfileikaríka,
Þórunn Antonía, mun troða
upp á Menningarnótt í versl-
uninni Reykjavik Outlet við
Laugaveg og ætlar líka ásamt
fleiri skvísum að setja nokkur
valin föt af sér á slá og selja
ódýrt á götumarkaði í tilefni
dagsins. Anna Lilja Johansen
verður einnig á staðnum í
sömu erindagjörðum og má
því eiga von á glæsiflíkum
á góðu verði, þar sem þær
stöllur eru báðar annálaðar
smekkmanneskjur þegar kem-
ur að fatavali og stíl.
Ljótar gjafir í tvo áratugi
Systurnar Íris og Þóra og eiginmenn þeirra leita uppi forljóta minjagripi og gefa
Í
21 ár hafa systurnar Íris og
Þóra Emilsdætur og eigin-
menn þeirra, Sigurður og Helgi,
hrekkt hvert annað með því að
gefa forljóta minjagripi sem þau
hafa fundið á ferðalögum sínum
um heiminn.
„Þetta byrjaði með bjánalegri
gjöf sem þau gáfu manninum
mínum. Þetta var einhvers konar
föndrað altari með helgimynd
og kerti eins og þú setur á kök-
ur í barnaafmælum. Þau keyptu
þetta í Barcelona og gáfu honum
einfaldlega af því að þeim fannst
þetta svo svakalega ljótt,“ segir Íris
um upphaf hefðarinnar.
„Næst þegar við fórum til
útlanda ákváðum við að launa
þeim þetta og kaupa jafn ljóta gjöf.
Þá komumst við að því að það er
rosalega gaman að finna ljótar
gjafir. Nú eru allir vinir okkur farn-
ir að taka þátt í leitinni þegar við
erum á ferðalögum.“
Á rúmum tveimur áratugum
hefur safnast mikið magn forljótra
og smekklausra gjafa alls staðar að
úr heiminum: „Það er miserfitt að
finna ljótar gjafir á mismunandi
stöðum, Spánn er algjört himna-
ríki en Ítalía er erfið, það margt
ljótt í London en lítið í París. Mjög
fáar gjafir eru keyptar hér á landi
þótt það sé sífellt að aukast fram-
boð á ljótum gjöfum hér á landi.
Það er bara svo ótrúlegt að fólk
skuli leggja vinnu í að búa til þetta
ósmekklega plastdrasl með ekkert
notagildi – og ótrúlegt að einhver
skuli kaupa þetta.“
Eftir ítrekaðar fyrirspurnir frá
vinum og
ættingjum
ætla vina-
hjónin
loksins að
halda sýn-
ingu með
gjöfunum
ljótu og
verður
hún haldin
í vinnurými hjá móður systr-
anna við Flókagötu 41 á Menn-
ingarnótt. n
Ósmekklegt draslÞetta er
ein þeirra fjölmörgu forljótu gjafa
sem Íris og Þóra og eiginmenn
þeirra hafa gefið hvert öðru á
síðustu tveimur áratugum.
Mynd ÞÓra EMilsdÓttir
Helluhraun 4, Hafnarfirði / Sími 565 2727 & 892-7502 / www.rag.is
Allar rúturnar frá RAG Import-Export
eru með fullri verksmiðju ábyrgð.
Við erum þeir einu sem eru með full
leyfi frá Mercedes Benz verksmiðjunum
til að framleiða 4x4 21 manna bíla.
Allar rútur eru ríkmannlega útbúnar.
Hátt og lágt drif, brekkuhemill, sjálfskipting,
cruse control, ísskápur, tvö sjónvörp,
leiðsögumannakerfi, USB-tengi o.fl.
Mercedes Benz 519
4x4 Arctic Edition
DEluxE rútur
á góðu vErði!