Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Blaðsíða 16
16 sport Helgarblað 18. ágúst 2017
G
ylfi Þór Sigurðsson varð á
miðvikudag dýrasti leik
maður í sögu Everton
þegar félagið borgaði 45
milljónir punda eða 6,3 millj
arða íslenskra króna fyrir kapp
ann sem kom frá Swansea. Hjá
Swansea hafði Gylfi átt þrjú mjög
góð ár en nú tekur hann skref
ið upp á við, Everton er klúbbur
sem er í mikilli sókn og ætlar sér
stóra hluti á næstu árum.
„Loksins er þetta komið. Nú
er kominn tími til að koma sér
í alvöru leikform og spila leiki,“
sagði Gylfi um málið þegar 433.is
ræddi við hann rétt eftir að hann
hafði skrifað undir samninginn.
Á tímapunkti leit út fyrir að
félagaskiptin myndu ekki fara
í gegn enda tóku viðræðurnar
mikinn tíma, mun meiri tíma en
menn höfðu átt von á. Gylfi seg
ir að það hafi tekið mikið á þolin
mæðina að sitja og bíða þess að
eitthvað gerðist.
„Þetta er búið að taka þvílíkt
langan tíma, þetta er búið að taka
rosalega á þolinmæðina og búið
að vera erfitt ferli síðustu vikur;
hvort þetta færi loksins í gegn
eða hvort ekkert yrði úr þessu.
Það voru dagar þar sem maður
hélt að það yrði ekkert úr þessu,
sem betur fer var Everton mjög
þolinmótt og gafst aldrei upp,“
sagði Gylfi en það segir margt
um það hversu mikinn áhuga
Everton hafði, að þrátt fyrir að
viðræðurnar hafi tekið fleiri
vikur þá gafst félagið aldrei
upp.
„Það er frábært hversu mik
inn áhuga þeir höfðu, það er
góðs viti að þeir gáfust aldrei
upp og sýndu mikinn áhuga.
Þeir ætluðu aldrei að hætta við
þrátt fyrir að viðræður hefðu
gengið illa. Ef ég á að segja alveg
eins og er þá var Everton það eina
sem heillaði mig frá byrjun, það
var áhugi frá þeim síðasta sumar.
Eftir það var Everton í raun eina
liðið sem ég hafði áhuga á að fara
í.“
Mikill metnaður Í Everton
Everton ætlar sér stóra hluti á
næstu árum en félagið hefur
verslað mikið í sumar og þar á
meðal Wayne Rooney, marka
hæsta leikmann í sögu Man
chester United og enska lands
liðsins. „Það er mikill metnaður
hérna, þú sérð það á leik
mannakaupunum að
það er mikill metn
aður. Það er verið
að kaupa leikmenn
til að styrkja allan
hópinn, það verða
fleiri leikir hjá
liðinu í ár ef það
kemst í riðlakeppni
Evrópudeildarinnar.
Þú þarft því breiðari
hóp, það er búið að
kaupa mjög góða leik
menn og vonandi
heldur
klúbburinn áfram að styrkja sig
eins og þarf.“
Fékk loksins samning hjá
Everton
Ronald Koeman, knattspyrnu
stjóri Everton, hefur lengi reynt
að kaupa Gylfa, fyrst til South
ampton og nú til Everton. Gylfi
þekkir einnig til hjá Everton en
13 ára gamall æfði hann í tvígang
hjá félaginu en fékk ekki samn
ing. „Þjálfarinn heillaði mig mik
ið, hann er búinn að hafa áhuga
á mér í nokkur ár. Klúbburinn
heillaði svo líka. Það er mikil upp
bygging í kringum klúbbinn og
liðið, það allt hélst í hend
ur. Ég kom á reynslu til
Everton þegar ég var
12 eða 13 ára, ég var
í FH á þeim tíma.
Ég kom tvisvar
hingað á reynslu
á þeim tíma en
fékk loksins samn
ing hjá þeim núna.
Everton hafði áhuga
fyrir ári en á því augna
bliki fannst mér best
í stöðunni að taka eitt
ár í viðbót með
Swansea,
spila
vel
annað tímabil og það gekk vel
persónulega. Mér fannst núna
réttur tími til að taka næsta skref
ið á ferlinum.“
Gengur sáttur frá borði hjá
Swansea
Gylfi lék í þrjú ár með Swansea
og hefur skrifað nafn sitt í sögu
bækur félagsins, hann er líklega
besti leikmaðurinn sem félag
ið hefur haft en hann er marka
hæsti leikmaður í sögu ensku úr
valsdeildarinnar hjá Swansea.
„Þrátt fyrir að það hafi ekki geng
ið neitt sérstaklega vel, eins og
við höfðum vonast til á síðustu
tveimur tímabilum, þá gekk mér
vel persónulega. Ég held að það
hafi verið mjög góð ákvörðun að
fara til Swansea og spila reglu
lega. Koma mér í gang og það hef
ur gengið vel.“
Erfitt að æfa þegar
maður vill ekki meiðast
Gylfi hefur æft með Swansea síð
ustu vikur án þess að spila æf
ingarleiki en allir aðilar vildu að
þetta færi í gegn, miklir peningar
voru í húfi fyrir Swansea en það
hefur tekið á fyrir Gylfa að halda
sér í formi. „Það hefur verið erfitt
en ég hef æft á fullu með liðinu og
U23 ára liðinu þegar aðalliðið fór
til Bandaríkjanna. Það er erfitt að
æfa á fullu þegar maður vill alls
ekki meiðast, það hefur gengið
ágætlega. Ég er í fínu æfingar
formi en þarf að spila leiki.“
Pressan kemur
frá honum sjálfum
Gylfi segir að hann finni ekki fyrir
auka pressu þrátt fyrir að vera
dýrasti leikmaður í sögu Everton,
hann segir að samkeppnin hjá
Everton muni bæta hann sem
leikmann. „Þannig séð finnst mér
ekki vera pressa, ég hef lítið um
þetta að segja. Ég set sjálfur á mig
mikla pressu um að standa mig
eins og ég hef gert síðustu ár, ég
vil halda því áfram. Það er eina
pressan sem kemur. Ég held að
það geri ekkert annað en að bæta
mann að vera í svona samkeppni
og það er kannski ekkert of gott
að vera í umhverfi þar sem þú er
of öruggur með sjálfan þig. Það er
gott að komast í mikla samkeppni
og spila með mjög góðum leik
mönnum.“
Frumraunin á mánudag
Gylfi mun á mánudag spila sinn
fyrsta leik fyrir Everton þegar liðið
mætir Manchester City en það er
þó ekki líklegt að Gylfi verði með
frá byrjun. „Ég held að ég verði eitt
hvað með, ég býst ekki við að byrja.
Ég held að það sé aðeins of snemmt
en maður sér til hvað gerist.“
Fagnar því að
peningurinn fari heim
Með félagaskiptum Blika koma
miklir fjármunir heim, Breiðablik
fær um 57 milljónir í samstöðu
bætur og FH um 31 milljón. Þessu
fagnar Gylfi. „Það er frábært að
þessi peningur fari heim og von
andi geta þessi félög nýtt þetta í
eitthvað gott, það er gott að þessi
peningur fari heim í tvö félög. Ég
held að þetta sé mjög jákvæður
hlutur.“ n
„Góðs viti að þeir
gáfust aldrei upp“
Blátt fer Gylfa vel
Gylfi Þór mun leika í blárri
treyju hjá Everton en það
þekkir hann vel frá íslenska
landsliðinu. Mynd EPAÍtarlegt viðtal við Gylfa
n Gylfi er dýrasti leikmaður í sögu Everton n Setur pressuna á sig sjálfur
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is „Nú er
kominn tími
til að koma sér í
alvöru leikform og
spila leiki