Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Blaðsíða 54
30 sakamál Helgarblað 18. ágúst 2017
Í
búar franska þorpsins
Authon- du-Perche í Norður-
Frakklandi vissu ekki hvað
þeir áttu að halda þegar tveir
menn fundust andvana á ver-
önd heimilis Lucien Perot að
morgni fimmtudagsins 3. ágúst
síðastliðinn. Af verksummerkj-
um að dæma höfðu mennirnir
notið kvöldverðar daginn áður
og ekkert benti til þess að til
átaka hefði komið.
Endaslepp máltíð
Þetta þótti allt hið dularfyllsta
mál. Lík Olivers Boudin, 38
ára, lá á bakinu á jörðinni og lík
Luciens, 69 ára, var í stólnum
við borðið. Á borðinu fyrir fram-
an Lucien var diskur og hafði
Lucien ekki tekist að klára nema
helming matarins áður en hann
skildi við.
Á borðinu var einnig camem-
bert-ostur, snittubrauð sem
búið var að narta í og rauðvíns-
glas. Sem fyrr segir benti ekk-
ert til þess að átök hefðu átt sér
stað, brotist hefði verið inn eða
nokkru rænt af heimili Luciens
Perot.
Liðin lík
Nágrannakona þeirra hafði séð
þá um sex leytið á fimmtudags-
morgninum, en dregið þá álykt-
un að þeir væru að sofa úr sér
áfengisvímuna eftir að hafa tek-
ið vel á drykkju kvöldið áður.
Konan ákvað að trufla þá ekki.
Um hádegisbil sá sama kona
að þeir höfðu ekki hreyft sig og
leist ekki á blikuna. Hún reyndi
að vekja þá en þeir sýndu ekkert
lífsmark.
Matarföng rannsökuð
Í ljósi alls og alls var ekki að undra
að sjónir lögreglunnar beindust
að matnum. Niðursoðnar baun-
ir þóttu grunsamlegri en margt
annað matarkyns á vettvangi
en ekkert var útilokað. Var allt;
baunirnar, osturinn, kjötið,
brauðið og vínið, sent til rann-
sóknar á Pasteur-stofnunina í
París. Rannsóknin leiddi í ljós að
maturinn var í hinu besta lagi og
matareitrun var því útilokuð.
Hafði bæjarstjórinn á orði
að engu líkara væri en „tíminn
hefði skyndilega stöðvast“.
Eðlilegar skýringar
Um viku síðar varð ljóst að
sannleikurinn í málinu var
óspennandi svo ekki sé vægar
til orða tekið. Eldri maður-
inn, Lucien, sem hafði innbyrt
ósköpin öll af víni, reyndi að
kyngja helst til stórum kjötbita
án þess að tyggja hann nægilega
vel – hugsanlega vegna þess að
hann vantaði nokkrar tennur. En
kjötbitinn stóð sem sagt í Lucien
með banvænum afleiðingum.
Oliver Boudin var með með-
fæddan hjartagalla og töldu
læknar að hann hefði fengið
hjartaáfall við að horfa upp á vin
sinn deyja.
Í hnotskurn má því segja að
Lucien hafi gerst sekur um að
reyna að sporðrenna of stórum
kjötbita og það hafi orðið bana-
biti félaganna beggja. n
Banabitinn
n Tveir menn hlutu dularfullan dauðdaga n Viku síðar skýrðust málin„Hafði bæjar-
stjórinn á orði
að engu líkara væri en
„tíminn hefði skyndilega
stöðvast“.
Authon-du-Perche Dauði tvímenninganna
olli þorpsbúum miklum heilabrotum.