Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Page 54
30 sakamál Helgarblað 18. ágúst 2017 Í búar franska þorpsins Authon- du-Perche í Norður- Frakklandi vissu ekki hvað þeir áttu að halda þegar tveir menn fundust andvana á ver- önd heimilis Lucien Perot að morgni fimmtudagsins 3. ágúst síðastliðinn. Af verksummerkj- um að dæma höfðu mennirnir notið kvöldverðar daginn áður og ekkert benti til þess að til átaka hefði komið. Endaslepp máltíð Þetta þótti allt hið dularfyllsta mál. Lík Olivers Boudin, 38 ára, lá á bakinu á jörðinni og lík Luciens, 69 ára, var í stólnum við borðið. Á borðinu fyrir fram- an Lucien var diskur og hafði Lucien ekki tekist að klára nema helming matarins áður en hann skildi við. Á borðinu var einnig camem- bert-ostur, snittubrauð sem búið var að narta í og rauðvíns- glas. Sem fyrr segir benti ekk- ert til þess að átök hefðu átt sér stað, brotist hefði verið inn eða nokkru rænt af heimili Luciens Perot. Liðin lík Nágrannakona þeirra hafði séð þá um sex leytið á fimmtudags- morgninum, en dregið þá álykt- un að þeir væru að sofa úr sér áfengisvímuna eftir að hafa tek- ið vel á drykkju kvöldið áður. Konan ákvað að trufla þá ekki. Um hádegisbil sá sama kona að þeir höfðu ekki hreyft sig og leist ekki á blikuna. Hún reyndi að vekja þá en þeir sýndu ekkert lífsmark. Matarföng rannsökuð Í ljósi alls og alls var ekki að undra að sjónir lögreglunnar beindust að matnum. Niðursoðnar baun- ir þóttu grunsamlegri en margt annað matarkyns á vettvangi en ekkert var útilokað. Var allt; baunirnar, osturinn, kjötið, brauðið og vínið, sent til rann- sóknar á Pasteur-stofnunina í París. Rannsóknin leiddi í ljós að maturinn var í hinu besta lagi og matareitrun var því útilokuð. Hafði bæjarstjórinn á orði að engu líkara væri en „tíminn hefði skyndilega stöðvast“. Eðlilegar skýringar Um viku síðar varð ljóst að sannleikurinn í málinu var óspennandi svo ekki sé vægar til orða tekið. Eldri maður- inn, Lucien, sem hafði innbyrt ósköpin öll af víni, reyndi að kyngja helst til stórum kjötbita án þess að tyggja hann nægilega vel – hugsanlega vegna þess að hann vantaði nokkrar tennur. En kjötbitinn stóð sem sagt í Lucien með banvænum afleiðingum. Oliver Boudin var með með- fæddan hjartagalla og töldu læknar að hann hefði fengið hjartaáfall við að horfa upp á vin sinn deyja. Í hnotskurn má því segja að Lucien hafi gerst sekur um að reyna að sporðrenna of stórum kjötbita og það hafi orðið bana- biti félaganna beggja. n Banabitinn n Tveir menn hlutu dularfullan dauðdaga n Viku síðar skýrðust málin„Hafði bæjar- stjórinn á orði að engu líkara væri en „tíminn hefði skyndilega stöðvast“. Authon-du-Perche Dauði tvímenninganna olli þorpsbúum miklum heilabrotum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.