Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Blaðsíða 20
20 umræða
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurvin Ólafsson ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur Guðjónsson
aðstoðarritstjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
aðalnúmer: 512 7000
auglýsingar: 512 7050
ritstjórn: 512 7010
fréttaskot
512 70 70
Heimilisfang
Kringlan 4-12, 4. hæð
103 Reykjavík
Sandkorn
Helgarblað 18. ágúst 2017
Allir á völlinn?
Ingu Auðbjörgu finnst Frjálslyndir jafnaðarmenn ekki eiga við um flokkinn. - Facebook Gunnar Smári Egilsson um ummæli Söruh Palin vegna Downs-heilkennisins. – FacebookÞorsteinn Guðmundsson leikari. – Twitter
Ekki nota það til að
ríbranda Samfylkinguna
Eins og við séum tækni-
væddir súper-nasistar
Aumingja skátarnir. Búnir að safna fyrir
ferð til Íslands með sölu á klósettpappír
Hvað á barnið að heita?
Til umræðu er innan Sam-
fylkingarinnar að breyta nafni
flokksins. Eva H. Baldursdóttir
varaborgarfulltrúi vakti máls á
þessu á Facebook-síðu sinni á
miðvikudaginn og sköpuðust
talsverðar umræður um málið
sem fjölmiðlar greindu einnig
frá. Svo sem við var að búast
gerðu ýmsir, einkum pólitískir
andstæðingar flokksins, stólpa-
grín að hugmyndinni. Þannig
skrifaði Friðjón R. Friðjónsson, al-
mannatengill og áhrifamaður
í Sjálfstæðisflokknum, eftirfar-
andi: „Þetta verður stórkostlegt
ferli, flokkurinn má ekki heita
Jafnaðarmannaflokkur Íslands
því það er of þjóðernislegt og
ekki Jafnaðarmannaflokkurinn
því það er of karllægt. Svo mun
einhverjum finnast það of gam-
aldags að hafa þessa flokks
endingu. Ég spái því að þau
endi á Samfylkingin.“
Svartipétur í borginni
Halldór Halldórsson, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í borginni,
batt enda á heldur langdregið
dauðastríð þegar hann lýsti því
yfir í vikunni að hann hygðist
ekki gefa kost á sér til setu á
framboðslista flokksins fyrir
kosningar næsta vor. Það hef-
ur ekki verið neitt leyndarmál
að Sjálfstæðismenn hafa leitað
logandi ljósi að nýjum odd-
vita enda hefur ekki tekist að
hífa flokkinn upp í skoðana-
könnunum undir forystu Hall-
dórs. Sumum þykir þó að þetta
hafi verið snjallt útspil hjá
Halldóri, með þessu hafi hann
tryggt að aðrir sitji uppi með
svartapétur og leit er hafin að
næsta oddvita – manninum
eða konunni sem ætlað er að
fella meirihlutann.
Aðstoðarmenn undir
feldi
Áður hefur verið vikið að því að
margir vonist eftir því að Davíð
Oddsson snúi aftur í borgarmálin,
en ómögulegt er að segja hvort
það rætist. Á kantinum skoðar
Eyþór Arnalds líka málin og tveir
aðstoðarmenn ráðherra íhuga
áskoranir um að bjóða sig fram.
Það eru þau Svanhildur Hólm Vals-
dóttir, aðstoðarmaður Bjarna
Benediktssonar forsætisráðherra,
og Borgar Þór Einarsson, aðstoðar-
maður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar
utanríkisráðherra. Borgar Þór
er sonur Ingu Jónu Þórðardóttur,
fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins, og stjúpsonur
Geirs H. Haarde, fyrrverandi for-
sætisráðherra og nú sendiherra.
N
æsti heimaleikur ís-
lenska karlalandsliðsins í
knattspyrnu fer fram þann
5. september næstkom-
andi. Gengi liðsins síðustu ár hef-
ur verið með ólíkindum, liðið situr
sem dæmi núna í 20. sæti styrk-
leikalista FIFA, sem er líklega enn
eitt heimsmetið miðað við höfða-
tölu. Flug strákanna upp listann
hefur verið lygilegt, fyrir aðeins
rúmum fimm árum sat liðið í 131.
sæti.
Þessar framfarir hafa ekki farið
framhjá neinum. Erlendir fjöl-
miðlar gera sér reglulega ferð
hingað til lands til að reyna að átta
sig á því hvernig svo fámenn þjóð
geti náð svo langt í þessari vin-
sælustu íþrótt jarðar. Þá fjölgar sí-
fellt íslenskum atvinnumönnum
erlendis og í vikunni var okkar
skærasta stjarna, Gylfi Sigurðsson,
seldur til Everton fyrir um hálfan
sjöunda milljarð króna, í met-
viðskiptum hjá einu frægasta fót-
boltaliði enska boltans.
Þessi uppgangur er jákvæð-
ur að svo gott sem öllu leyti.
Liðið gaf þjóðinni til dæmis einn
eftirminnilegasta mánuð sem hún
hefur upplifað, með frammistöð-
unni á EM í Frakklandi í fyrra.
Þá má telja líklegt að þessi upp-
sveifla liðsins muni skila sér í
fjölda góðra knattspyrnumanna
og kvenna í framtíðinni í gegnum
þau börn og unglinga sem dýrka
og dá strákana og stelpurnar okk-
ar þegar þeim gengur svona vel.
Einn fylgifiskur árangursins
er hin mikla aukning aðsóknar á
leiki karlaliðsins hér heima. Það
er auðvitað gleðiefni en felur jafn-
framt í sér það eina sem skyggir á;
hversu erfitt það er orðið að mæta
á völlinn og horfa á og styðja
strákana. Laugardalsvöllurinn
rúmar tæplega tíu þúsund áhorf-
endur og síðastliðin þrjú ár hef-
ur verið uppselt á alla leiki liðsins
í undankeppni stórmóta. Miða-
sala á völlinn hefur í samræmi
við tækniþróun færst úr trékofum
við völlinn og yfir á netið og þar
seljast allir lausir miðar jafnan á
nokkrum mínútum. Jafnvel þótt
miðasalan fari fram um miðja
nótt. Miklu færri komast því að
en vilja og margir stuðningsmenn
sitja eftir með sárt ennið við tölv-
una.
Það blasir því við að Laugar-
dalsvöllur er alltof lítill miðað við
eftirspurnina, við þurfum nýjan
völl. Undirbúningur við gerð nýs
þjóðarleikvangs er raunar hafinn.
Þannig hafa KSÍ, borgaryfirvöld
og menntamálaráðuneytið í sam-
einingu látið gera skýrslu um
frumhönnun og kostnaðargrein-
ingu vegna byggingar nýs vallar.
Þar ku vera miðað við að byggður
verði leikvangur sem rúmar á bil-
inu 16 til 20 þúsund áhorfendur.
En þangað til þar að kem-
ur mætti athuga hvort hægt væri
að auka aðgengi hins almenna
borgara að leikjum liðsins. Oftast
eru til sölu um 4.000 miðar í
almennri miðasölu og liggur því
fyrir að meira en helmingi sæta
vallarins er ráðstafað með öðrum
hætti. Vitað er að eitthvað um
1.000 miðar renna til mótsmiða-
hafa, þeirra sem hafa fyrirfram
keypt miða á alla leiki liðsins í
viðkomandi keppni. Þá er 1.000
miðum ráðstafað til áhangenda
aðkomuliðsins. Eftir standa þá
tæplega 4.000 miðar sem fara
ekki í almenna sölu. Væntanlega
eru þeir miðar teknir frá fyrir fjöl-
miðla, önnur knattspyrnusam-
bönd, styrktaraðila eða vildar-
vini samkvæmt samningum. Það
væri ánægjulegt ef KSÍ hefði ein-
hver tök á að endurskoða slíka
samninga svo hin venjulegu Jón
og Gunna eigi betra tækifæri til að
berja goðin berum augum.
Þetta er því það eina sem var
gott við það að sitja í 131. sætinu
fyrir fimm árum, þá komust allir á
völlinn sem vildu. n
Leiðari
Sigurvin Ólafsson
sigurvin@dv.is
Myndin Borgin böðuð kvöldsól Íbúar höfuðborgarinnar gátu vel við unað í blíðunni sem var ríkjandi á fimmtudaginn.
„Væntanlega eru
þeir miðar teknir
frá fyrir fjölmiðla, önnur
knattspyrnusambönd,
styrktaraðila eða vildar-
vini samkvæmt samn-
ingum.