Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Qupperneq 58
34 lífsstíll Helgarblað 18. ágúst 2017
É
g hafði lesið alls kyns fræði-
greinar í náminu og sá að
sjónum er lítið beint að full-
orðnu fólki. Það er alltaf ver-
ið að skoða símanotkun krakka og
unglinga. Mér fannst því tilvalið að
skoða hegðun fullorðinna,“ segir
Erna Kristín Kristjánsdóttir sem
skoðaði snjallsímanotkun kvenna
í meistaraprófsritgerð sinni í fjöl-
miðla- og boðskiptafræðum;
Böl eða blessun: viðhorf og um-
fang snjallsímanotkunar kvenna í
kringum fertugt.
Nota samfélagsmiðla mikið
Erna Kristín ræddi við sex konur
á aldrinum 39–45 ára sem allar
eru mæður og starfa allar innan
grunnskólanna. „Þær nota símana
mikið en notkunin er ekki endi-
lega gagnslaus. Þær nota símana
til að sinna vinnu, athuga með
tómstundir barna, skipuleggja fé-
lagsskap og þess háttar en eru
einnig í leikjum en þá oftast ekki
nema þær séu í bið eða hafi dauða
stund,“ segir Erna Kristín sem
segir konurnar sem hún ræddi
við einnig nota samfélagsmiðlana
mikið. „Þær nota Snapchat, eru
á Facebook og nota Messenger í
samskiptum. Facebook er augljós-
lega notað til að halda sambandi
við fólk sem þær myndu annars
ekki vera í tengslum við en það
sem kom mér á óvart er hvað þær
nota Facebook mikið til að sinna
vinnunni.“
Ekki gagnslaus notkun
Erna Kristín ákvað að skoða hóp-
inn, mæður í grunnskólum, þar
sem umræða innan þess hóps um
snjallsímanotkun barna og ung-
linga sé mikil. „Því er oft haldið
fram að það hangi allir í símanum,
fólk kunni sig ekki og að notkunin
sé orðin of mikil. Mig langaði að
kanna hvort það væri rétt. Mögu-
lega er þessi hópur meðvitaðri um
eigin snjallsímanotkun þar sem
áhyggjur og umræða um notkun
barna og unglinga getur verið mikil
og dramatísk innan hópsins,“ segir
hún en bætir við að niðurstaðan
hafi verið sú að notkunin sé mikil
en ekki endilega gagnslaus. „Allar
konurnar sem ég ræddi við gengust
við ábyrgð sinni og gerðu sér grein
fyrir að það er fullorðið fólk sem
setur viðmiðið. Þær lýstu allar yfir
einhverjum áhyggjur en sáu einnig
allar gagnsemina og hvernig sím-
inn getur nýst í skólanum. Við vilj-
um oft stökkva á neikvæða vagninn
í umræðunni en það er margt já-
kvætt þarna líka, okkur þarf bara að
takast að finna meðalveginn.“
Neikvæð umræða
Erna Kristín segir flestar konurnar
kunna á tæknina sem snjallsíminn
býður upp á. „Þær vildu þó, allar
nema ein, meina að þær væru
mjög seinar til að tileinka sér bæði
Facebook og Snapchat. Hins vegar
virðast þær nota tæknina af full-
um krafti eftir að hafa kynnt sér
hana,“ segir Erna Kristín og bætir
við að það hafi verið áberandi að
konurnar væru að réttlæta snjall-
símanotkun sína. „Og það er í sam-
ræmi við umræðuna í þjóðfélaginu.
Hún getur verið ansi neikvæð. Við
vitum hins vegar ekki við hvað við
ættum að miða. Hvað er ásættan-
leg notkun? Líkt og ég hafði lesið
í rannsóknum komst ég að því að
símanotkun tengist vana. Við tök-
um upp símann þegar við erum
á biðstofu, þegar það koma aug-
lýsingar í sjónvarpinu eða þegar
við komum heim úr vinnunni og
setjumst í sófann. Jafnvel líka þegar
það er dauð stund á kaffistofunni.“
Fullorðnir veita aðgengi
Sjálf viðurkennir Erna Kristín að
nota sinn snjallsíma umtalsvert.
„Það er ástæða fyrir því að það
kviknaði á þessari peru. Ég nota
símann mikið en þar sem ég hef
verið í námi undanfarið vil ég meina
að ég sé meira í afþreyingunni en
konurnar sem ég ræddi við. Ég held
að ég muni nota símann meira til
gagns eftir að ég fer að vinna.“
En gæti hún hugsað sér lífið án
snjallsíma? „Ég gæti það sennilega
en ég er ekki viss um að ég myndi
vilja það. Mikið af mínum samskipt-
um fer fram í gegnum Messenger
og svo nota ég Facebook til að halda
tengslum við gamla skóla félaga og
ættingja. Snjallsíminn auðveldar
ýmislegt og hefur í för með sér mik-
il þægindi. Maður verður samt að
kunna sér hóf og setja reglur og ekki
bara fyrir börnin. Líkt og ein konan
sem ég talaði við sagði; það erum
við fullorðna fólkið sem kaupum
símana handa börnunum og veit-
um netaðgengi. Það er alltaf hægt
að bölsótast út í börnin, en við
verðum að gera okkur grein fyrir
að það erum við sem veitum að-
gengið.“ n
Snjallsímanotkun
mikil en oft gagnleg
n Erna Kristín skoðaði snjallsímanotkun kvenna á fertugsaldri n Umræðan oft neikvæð„Því er oft haldið
fram að það hangi
allir í símanum, fólk kunni
sig ekki og að notkunin sé
orðin of mikil.
Erna Kristín Meistaraprófsritgerð Ernu Kristínar fjallar um viðhorf og umfang snjall-
símanotkunar kvenna í kringum fertugt.