Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Side 18
18 sport Helgarblað 18. ágúst 2017
Þ
að er farið að síga á
seinni hlutann í íslensku
knattspyrnusumri og lín-
ur eru farnar að skýr-
ast í Pepsi-deild karla. Ljóst er
að mörg lið munu ganga svekkt
af velli þegar keppni lýkur í lok
september. Deildin hefur verið
afar fjörug það sem af er en þrátt
fyrir það hefur mætingin á völl-
inn ekki verið góð. Nokkrir þjálf-
arar eiga á hættu að missa starf-
ið enda kröfurnar um árangur hjá
mörgum félögum miklar.
Stjarnan, KR, FH og Breiðablik
munu að öllum líkindum horfa
á þetta tímabil sem vonbrigði ef
fram heldur sem horfir en Valur
er með fimm stiga forskot á toppi
deildarinnar. Fátt virðist líklegt
til að hindra að titillinn endi á
Hlíðarenda.
Endar FH án Evrópusætis?
Það þyrfti að stokka vel upp í leik-
mannahópi FH og líklega í þjálf-
arateyminu ef FH endaði í fjórða
sæti deildarinnar eða neðar,
það yrði til þess að FH yrði ekki
í Evrópukeppni á næstu leiktíð
sem myndi verða til þess að félag-
ið yrði af miklum fjármunum. FH
hefur verið í Evrópukeppni mörg
ár í röð og fjármunirnir sem þar
koma inn eru stór hluti af rekstri
deildarinnar á ári hverju. Ljóst
er að Heimir Guðjónsson ætti í
vandræðum með að halda starf-
inu ef FH tækist ekki að tryggja sér
Evrópusæti. Heimir hefur stýrt
FH frá haustinu 2007 með mögn-
uðum árangri. Tapið í bikar-
úrslitum hjá FH um síðustu helgi
setti meiri pressu á Heimi um að
eiga góðan endasprett í deildinni.
FH getur enn orðið Íslandsmeist-
ari og það myndi breyta hlutun-
um mikið.
Sama staða hjá KR
KR er í sömu stöðu og FH, liðið
á á hættu á að missa af Evrópu-
sæti og það gæti kostað Willum
Þór Þórsson starfið. KR-ingar eru
þekktir fyrir kröfur og vilja sjá ár-
angur innan vallar, ef Willum
myndi mistakast að ná í Evrópu-
sæti er ljóst að pressan yrði mikil
og starfið í hættu. KR hefur spilað
fínan fótbolta í sumar en í Vest-
urbænum spyrja menn ekki að
því, þar eru ávallt gerðar mikl-
ar kröfur. Willum vann frábært
starf á síðustu leiktíð þegar hann
kom KR í Evrópukeppni en það
telur lítið í ár. KR getur þó enn
horft á þann möguleika að ná
Evrópusæti og með möguleika á
að endurnýja liðið talsvert fyrir
næstu leiktíð gæti Willum haldið
starfinu áfram.
Er tími Rúnars í
Garðabæ á enda?
Ef Stjörnunni mistekst að verða
Íslandsmeistari á þessu tímabili
er ekki ólíklegt að liðið íhugi þjálf-
araskipti. Rúnar Páll vann krafta-
verk með Stjörnuna árið 2014
þegar liðið vann sinn fyrsta og
eina stóra titil í karlaknattspyrnu.
Síðan þá hefur gengið verið langt
undir væntingum, Stjarnan er
með eitt allra dýrasta lið lands-
ins en hefur þrátt fyrir það ekki
barist um neinn titil á síðustu
árum. Liðið á enn möguleika á
að verða Íslandsmeistari og það
myndi breyta stöðunni mikið, ef
Stjörnunni tekst ekki að veita Val
samkeppni á toppi deildarinn-
ar út tímabilið er ljóst að menn í
Garðabænum fara að hugsa mál-
in. Þrjú ár í röð án þess að landa
titli eða berjast um slíkan gætu
talist mikil vonbrigði. Rúnar hef-
ur fengið að smíða liðið algjörlega
eftir sínu höfði, hann hefur losað
sig við stóra og sterka karaktera
og sett saman skemmtilegt lið.
Það þarf að fara að skila árangri
svo Rúnar haldist í starfi.
Miklar líkur á að Breiðablik
fari í breytingar
Það hefur mikið gengið á í Kópa-
vogi í sumar, Arnar Grétars son
var rekinn í upphafi tímabils og
voru margir sem furðuðu sig á
þeirri ákvörðun. Arnar hafði sterk
tengsl við félagið og hafði sýnt að
í honum býr gríðarlega öflugur
þjálfari. Stjórn Breiðabliks taldi
hins vegar að Arnar væri kominn
á endastöð í Kópavoginum og því
tóku menn þá ákvörðun að reka
hann. Milos Milojevic var ráðinn
í starfið en í Kópavoginum hef-
ur Milos lítið gert til að sannfæra
menn þar á bæ um að hann eigi
að halda áfram með liðið. Milos
hefur gengið erfiðlega að finna
stöðugleika í Kópavoginum og
þá hefur spilamennska liðsins á
stórum köflum verið slök. Í Kópa-
vogi telja flestir að breytingar
verði gerðar á þjálfarateyminu
eftir tímabilið og að Milos verði
ekki áfram. Breiðablik er félag
sem hefur alla burði til að vera á
meðal þeirra bestu á Íslandi en
stjórnunarhættir utan vallar síð-
ustu ár hafa orðið til þess að liðið
er nú langt á eftir þeim bestu.
Tvö lið í neðri hlutanum sem
gætu gert breytingar
Þrátt fyrir að KA sé nýliði í deild
þeirra bestu er ekki horft á liðið
sem slíkt. KA er með dýrt lið og
leikmenn sem vita hvað þarf til að
ná árangri. Árangurinn í sumar
hefur verið undir væntingum og
á Akureyri gæti Srdjan Tufegdzic
misst starfið ef illa fer, KA er enn í
fallbaráttu og við það sætta menn
sig ekki. KA ætlar sér stóra hluti í
deild þeirra bestu á næstu árum
og gæti gripið til þess að breyta
um stjóra í brúnni ef liðið nær
ekki góðum endaspretti. Gunn-
laugur Jónsson gæti svo kallað
þetta gott með ÍA að tímabilinu
loknu, fátt kemur í veg fyrir að ÍA
falli úr Pepsi-deildinni í haust.
Gunnlaugur hefur unnið ágætt
starf á Akranesi en ef liðið fer nið-
ur er ljóst að menn munu íhuga
að gera breytingar. n
n Hvaða þjálfarar missa starfið? n Mörg lið í Pepsi-deild karla gera miklar kröfur
Margir þjálfarar gætu
misst starf sitt í haust
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Heimir í hættu? Heimir Guðjónsson hefur
unnið magnað starf með FH í mörg ár en er
hann kominn á endastöð? Mynd SiGTRyGGuR ARi
Áhugaverðir kostir í boði
Ef eitthvert af toppliðum Pepsi-deildarinnar
gerir breytingar í haust er ljóst að nokkrir mjög
spennandi kostir eru þar í boði. Rúnar Kristins-
son er atvinnulaus eftir að hafa verið rekinn frá
Lokeren á dögunum. Rúnar hefur sannað sig
á Íslandi sem frábær þjálfari og nú gæti hann
snúið heim, ljóst er að KR, FH, Stjarnan og fleiri
lið hefðu öll áhuga á að skoða þann möguleika
að ráða Rúnar til starfa. Arnar Grétarsson, sem
rekinn var frá Breiðabliki í vor, er mjög efnilegur
þjálfari. Honum urðu á mistök í sínu fyrsta starfi
eins og eðlilegt er en á köflum sannaði hann sig
sem frábær þjálfari. Freyr Alexandersson, þjálfari
kvennalandsliðsins, gæti horft til þess að taka að
sér starf ef það væri í boði, margir telja að Freyr
geti orðið öflugur þjálfari í Pepsi-deild karla.
Fjórði kosturinn sem lið í efri hlutanum gætu
svo horft til er Ejub Purisevic sem hefur unnið
kraftaverk með Ólafsvík. Ejub er einn sá færasti á
landinu og það er spurning hvort lið í efri hlutan-
um séu reiðubúin að gefa honum tækifæri.