Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Síða 44
Rapp-
senan
heit í
höllinni
„Mix-teip“ Migos-strákanna
Íslenskir rappaðdáendur hafa svo sannarlega fengið eitthvað fyrir sinn smekk í tónlistarflórunni
í sumar: Post Malone hélt tónleika
í Hörpu, Secret Solstice bar á borð
það besta og vinsælasta og síðast-
liðinn miðvikudag, 16. ágúst, mætti
ein heitasta rapphljómsveit heims
í Laugardalshöllina, bandaríska
sveitin Migos.
Á blaðsíðu 60 fer Kristinn H.
Guðnason yfir tónleikana, hér má sjá
myndasyrpu frá Höllinni.
XXX Rottweiler, Cyber og Joey
Christ sáu um upphitun og DJ Sura
þeytti skífum.
Frændurnir Quavo, Takeoff og
Offset skipa Migos, en sveitin var
stofnuð árið 2009. Fyrsta „mix-teip-
ið“, Juug Season, kom síðan út árið
2011. „Mix-teipið“ Y.R.N. (Yung
Rich Niggas) kom út árið 2013 og
lagið Versace sló rækilega í gegn og
birtist á fjölda topplista, þar á meðal
hjá Rolling Stone.
Síðan þá hafa strákarnir í Migos
heillað gagnrýnendur og aðdáendur,
yngri sem eldri, um allan heim. Í
Laugardalshöllinni var meðalaldur
tónleikagesta ekki hár, en gleðin og
fagnaðarlætin voru á hæsta stigi.
Myndir: Mummi Lú.
Blaz
Roca Beið
spenntuR
Erpur
Eyvindar-
son, einnig
þekktur sem
Blaz Roca,
meðlimur XXX
Rottweiler var
gríðarlega
spenntur fyrir
komu Migos
og sagði þá
með því betra
sem er í gangi
í þessari nýju
bylgju. „Þetta
eru ungkettir
og mjög
skemmtilegir.“
nýstiRni í
Rappheiminum
Joey Christ, Jóhann
Kristófer Stefáns-
son, sló í gegn í
sumar með sinni
fyrstu plötu, Anx-
iety City, og laginu
Joey Cypher.