Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2017, Qupperneq 60
36 menning Helgarblað 18. ágúst 2017
R
apphljómsveitin Migos frá
Atlanta skemmti Íslending
um í fyrsta sinn miðviku
daginn 16. ágúst í gömlu
Laugardalshöllinni. Fyrir ári var
hljómsveitin lítt þekkt en hún hefur
sprungið út að undanförnu og telst
nú til heitustu rappatriða heimsins.
Fyrir yngri kynslóðina
Þegar stigið var inn í Laugardals
höllina var það strax ljóst hvaða
aldurshópur heldur mest upp á
hljómsveitina Migos; unglingar.
Meðalaldur tónleikagesta hefur
sennilega verið í kringum 16 ár og
varla sála yfir tvítugu (nema þá for
eldrar að fylgja börnum sínum).
Skipulag tónleikanna var til fyrir
myndar og ekki var mikið um sjáan
lega ölvun eða fíkniefnaneyslu. Hér
var fólk komið saman til að njóta
tónlistarinnar.
Mætingin var sæmileg en það
var langt frá því að vera húsfyllir
og engar raðir mynduðust fyrir
utan Höllina. Sennilega hefur mik
ið framboð af hiphop tónleikum í
sumar átt sinn þátt í því. Nú þegar
hafa stórir listamenn á borð við
Young Thug, Rick Ross, Big Sean,
Foreign Beggars og Young M.A.
troðið hér upp.
Engu að síður hefði maður bú
ist við betri mætingu á tónleikana í
ljósi þess að Migos er búin að eiga
lygilega gott ár. Lag sveitarinnar
„Bad and Boujee“ fór á topp banda
ríska vinsældalistann í janúar og
platan þeirra „Culture“ sömuleiðis.
Erlendis hefur Migos dregið að tug
þúsundir gesta.
Kraftur í gömlum hundum
Upphitunardagskrá tónleikanna
var stíf og líkt og um eiginlega rapp
hátíð væri að ræða en ekki eins
taka tónleika. DJ Þura Stína hóf
kyndingu hússins áður en hljóm
sveit hennar, Cyber, steig á svið.
Cyberliðar voru allir svartklædd
ir, glitrandi og með frekar steikt
myndband í bakgrunninum. Tón
list þeirra var hins vegar algerlega
laus við allt prjál.
Næstur á svið var nýstirnið Joey
Christ og salurinn virtist kunna
vel að meta hann. Joey hafði varla
við að kynna til leiks félaga sína og
undir lokin var heill hópur fólks
á sviðinu. Birnir, Aron Can, Logi
Pedró og margir fleiri sem tóku
þó mismikinn þátt í sýningunni.
Myndböndin við lögin voru einnig
mjög athyglisverð og virkuðu sem
myndaþraut fyrir þá sem ekki
þekkja vel til. Hvað er trúpí?
Lokaupphitunaratriðið var
guðfeður íslensks hiphops, XXX
Rottweiler hundar. Komnir til
að sýna ungliðunum hvernig á
að gera þetta. Þeir opnuðu með
laginu „Sönn íslensk sakamál“ sem
er sennilega eldra en flestir tón
leikagestirnir. En kraftinn vantaði
ekki hjá hundunum sem hafa plægt
hiphop akurinn í öll þessi ár. Salur
inn tók vel undir bæði í gömlum
smellum og nýjum enda er þetta
hljómsveitin sem gerði það svalt
að rappa á íslenskri tungu og lagði
grunninn að því hiphop æði sem
nú stendur yfir.
Sterk opnun
Mikil eftirvænting var í salnum um
það leyti sem Migos átti að stíga á
svið. En það kom í hlut plötusnúðs
þeirra, DJ Durel, að gera alla vel
klára fyrir stjörnurnar. Hann hélt
fólkinu vel við efnið og virkaði sem
afbragðs MC, hljóp fram á svið og
talaði til fólksins.
Loks steig þríeykið og frændurn
ir Offset, Quavo og Takeoff á sviðið
og opnuðu sterkt með laginu „Get
Right Witcha“. Þar á eftir rúlluðu
þeir beint í annan nýjan hittara,
„Slippery.“ Eftir það hægðist að
eins á tónleikunum og þeir fóru að
taka lög af fyrri plötunni „Yung Rich
Nation“ og „mixteipinu“ „Young
Rich Niggas.“ Athygli vakti þó að
þeir slepptu laginu „Versace“ sem
kom þeim á kortið árið 2013.
Migosliðar haga sér eins og
alvöru rappstjörnur eiga að gera.
Þeir klæða sig djarft, láta eins og
þeim sé alveg sama og eru stans
laust með löngutöngina á lofti. Þrátt
fyrir ungan aldur eru þeir nú þegar
komnir með slatta af vafasömum
atvikum og ummælum í reynslu
bankann … eins og rapparar eiga
að gera. Tónlist þeirra er þó langt
frá því að vera eitthvert bófarapp
heldur meira í ætt við popptónlist
ef eitthvað er. Einstaka blótsyrði og
byssu hljóð breyta þar engu um.
Offset og Quavo sáu nokkuð
jafnt um að „fronta“ bandið á með
an Takeoff sat meira til baka. Endr
um og eins rauk hann þó fram
sviðið og lét til sín taka. Stóð hann
sig þá ekkert verr en hinir.
Klúbbastemning
Andrúmsloftið sem Migosliðar
náðu að mynda minnti frekar á
næturklúbb en hefðbundna tón
leika. Það var líkt og frændunum
væri meira umhugað að halda
uppi góðri stemningu heldur en
að flytja list sína. Sviðið sem byggt
var fyrir tónleikana náði langt út á
gólf sem er mjög óhefðbundið fyrir
tónleika af þessari stærðargráðu og
Migos var nær allan tímann úti á
tungunni, innan um fólkið. Stans
laust voru þeir að benda til tón
leikagesta og gefa þeim fimmur.
Helsti ókosturinn við hiphop
á borð við það sem Migos býður
upp á er einsleitnin. Nánast allur
söngurinn fer í gegnum hljóðgervil
og lögin geta virkað stefnulaus á
köflum. En á móti kom að tónleik
arnir voru stuttir, innan við klukku
tími, og því slapp þetta fyrir horn.
Hápunktur tónleikanna var
lokalagið „Bad and Boujee“ en
áður en það fékk að hljóma skip
aði Quavo tónleikagestum að lýsa
upp salinn með farsímunum sín
um. Fyrsta setning lagsins heyrðist
„Raindrops … Drop tops!“ og salur
inn ærðist. Þeir sveigðu hins vegar
nokkuð út af laginu og tvinnuðu ást
sinni á Íslandi inn í textann.
Síðan lauk tónleikunum og allir
fóru heim. Engin tilraun var gerð til
uppklapps sem myndi nú á flestum
stöðum teljast argasti dónaskapur.
Kannski hefur yngri kynslóðin ekki
enn lært að klappa upp flytjendur,
og það var enginn eldri í salnum að
þessu sinni til að kenna þeim það. n
Nýjabrum rappsins
n Migos í Laugardalshöll n Ungir tónleikagestir vel með á nótunum
Yngri kynslóðin
Kunni vel að meta Migos.
Bent XXX Rottweiler
hundar sýndu ungliðunum
hvernig á að gera þetta.
m
Y
n
d
ir
m
u
m
m
i l
ú
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Tónleikar
Migos
upphitun: Cyber, Joey Christ, XXX
Rottweiler hundar, DJ SURA
Hvar: Gamla Laugardalshöllin
Hvenær: Miðvikudaginn 16. ágúst