Fréttablaðið - 18.10.2017, Side 30

Fréttablaðið - 18.10.2017, Side 30
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Vörur frá Le Creuset verða með 30% af- slætti í Byggt og búið í tilefni afmælisins. Byggt og búið rekur einnig öfluga vef- verslun, www.byggtogbuid.is. Verslunin Byggt og búið hefur verið starfrækt í Kringlunni frá því að verslunarmið- stöðin var opnuð þann 13. ágúst 1987. Í tilefni þessara merku tíma- móta verður blásið til heljarinnar afmælishátíðar frá miðvikudegi til sunnudags og verða gleði og góð tilboð í fyrirrúmi. „Við ætlum að halda upp á þessi tímamót með glæsibrag. Allar vörur í Byggt og búið verða með veglegum afslætti þessa daga. Öll gjafavara og búsáhöld verða með 30% afslætti og svo verður 15% afsláttur af öllum raftækjum. Þetta er alvöru afmælis- tilboð,“ segir Jens Harðarson versl- unarstjóri sem reiknar með miklu fjöri og fjölda gesta. Búðin verður fagurlega skreytt eins og vera ber þegar mikið stendur til og öllum boðið upp á dýrindiskonfekt. „Það verður líka ýmislegt fleira um að vera og við hvetjum fólk til að koma og líta við hjá okkur í Byggt og búið,“ segir Sigríður Benediktsdóttir aðstoðar- verslunarstjóri. Vörur frá heimsþekktum framleiðendum Byggt og búið er alhliða verslun og þar fæst allt fyrir heimilið. „Okkar sérstaða er sú að við erum með einstaklega gott úrval af búsáhöldum og gjafavörum frá heimsþekktum framleiðendum á borð við KitchenAid, Le Creuset, Rosenthal og Eva Solo. Við erum líka með frábært úrval af raf- tækjum frá KitchenAid, iRobot, Philips og Blendtec, svo einhverjir séu nefndir. Við höfum alltaf lagt áherslu á persónulega, hlýja, skemmtilega og ekki síst vandaða þjónustu,“ segir Jens og bætir við að markmiðið sé að viðskipta- vinum líði vel í búðinni og finni að þeir séu meira en velkomnir. „Byggt og búið leynir líka á sér. Búðin er á þremur hæðum og það er skemmtilegur bragur á henni. Það þarf ekki að taka númer hjá okkur heldur veitum við toppþjón- ustu í góðri búð,“ segir Sigríður. Öflug vefverslun Byggt og búið rekur mjög öfluga vefverslun og þar verður líka hægt að gera góð kaup í tilefni afmælisins. „Allar okkar vörur fást líka í vefversluninni sem er alltaf opin. Við leggjum mikið upp úr því að þjónusta fólk á landsbyggðinni vel. Við bjóðum upp á snögga og örugga þjónustu og hagstæðan sendingarkostnað. Þeir sem ekki eiga leið í bæinn geta gert góð kaup á vefversluninni okkar um helgina,“ segir Jens að lokum. Byggt og búið, Kringlunni. www.byggtogbuid.is s. 568 9400. Framhald af forsíðu ➛ Byggt og búið hefur verið í Kringlunni í 30 ár, eða frá því að verslunarmiðstöðin var opnuð. MYNDIR/EYÞÓR KitchenAid hrærivélarnar fást í mörgum fallegum litum hjá Byggt og búið. Hjá Byggt og búið er mikið úrval af búsáhöldum og gjafavörum frá heims- þekktum framleiðendum. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . o K TÓ B E R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R 1 8 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 0 -F 9 C 0 1 E 0 0 -F 8 8 4 1 E 0 0 -F 7 4 8 1 E 0 0 -F 6 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.