Fréttablaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 36
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
Baldur Þorgilsson er for-maður Fálka, sem er hópur stoltra Valspabba sem tóku
sig saman til að styðja barna- og
unglingastarf Vals. Hópurinn var
stofnaður árið 2009 og styður
starfið bæði með fjáröflun og
ýmissi annarri vinnu. „Allt í
kringum barna- og unglinga-
starfið er okkur viðkomandi og
við styðjum það á ýmsan hátt,“
segir Baldur. „Það geta allir sam-
einast í Fálkum um að hjálpa
börnunum sínum. Þetta snýst um
að fá sem flesta krakka í hverfinu
til að stunda íþróttir, halda þeim
við efnið sem lengst og láta þeim
líða vel á meðan þeir æfa.“
Fálkar safna fé á tvo vegu. „Við
grillum hamborgara og pylsur á
leikjum meistaraflokks kvenna og
karla á sumrin og svo höldum við
stóra flösku- og dósasöfnun um
áramót,“ segir Baldur. „Peningur-
inn úr grilluninni fer í pott hjá
Fálkum sem hægt er að sækja um
styrki úr en peningurinn úr dósa-
söfnuninni er greiddur beint út til
þátttakenda.
Dósa- og flöskusöfnun er risa-
aðgerð,“ segir Baldur. „Við erum
með yfir 100 manns að störfum.
Við fyllum marga gáma og þurfum
stórtækar vinnuvélar til að færa
þetta allt til. Þarna skapast mjög
skemmtileg stemning meðal for-
eldra.“
Persónulegur ávinningur
„Ég hvet foreldra til að taka þátt í
fjáröflunum sjálfs sín vegna,“ segir
Baldur. „Það er svo mikið tækifæri
að fá að vera með. Fjáröflunin er
eitt, en samveran er ekkert minna
virði. Hún skapar svo mikið sam-
félag og því fyrr sem maður kemur
inn, þeim mun meira fær maður
út úr þessu.“
„Að mínu mati á að líta á
þetta sem meira en fjáröflun,
þetta er samstarfsverkefni full-
orðinna og barna,“ segir Baldur.
„Í nútímasamfélagi fá fullorðnir
og börn sjaldan tækifæri til að
leysa verkefni í sameiningu því
það er svo mikil skipting á milli
okkar. En þetta getum við unnið
saman. Í dósasöfnuninni kynnist
maður vinum barnanna sinna og
foreldrum þeirra og þannig um
leið hverfinu. Það styrkir nær-
samfélagið í kringum krakkana og
fljótlega er maður farinn að heilsa
öllum í hverfinu og hefur meira
samfélagslegt net kringum börn.
Það skiptir rosalega miklu máli til
að passa upp á börnin sín.
Íþróttafélag er sérstakt að því
leyti að þar kemur fólk af öllum
stigum samfélagsins saman og er
jafnt í að hafa áhuga á íþróttum
og styðja börnin sín,“ segir Baldur.
„Þess vegna er það frábær staður
fyrir innflytjendur til að komast
inn í samfélagið. Því vorum við
með verkefni í samvinnu við
Reykjavíkurborg þar sem við
reyndum að fá börn innflytjenda
í hverfinu til að koma og æfa með
Val.“
Utanumhald mikilvægt
Baldur telur sérlega mikilvægt
að fullorðnir haldi vel utan um
verkefni sem þeir vinna með
börnum. „Það getur verið að litlir
guttar sem eru ekki alveg komnir
með ábyrgðartilfinningu mæti
ekki eða taki þetta ekki alvar-
lega,“ segir hann. „Þetta eru bara
börn og okkar er ábyrgðin. Því
er mikilvægt að það sé vel staðið
að hlutunum, að það sem er sagt
standist og, ef það er verið að selja
eitthvað, að vörur sem eru seldar
séu afhentar á réttum tíma og í
góðu ástandi.“
Baldur leggur líka áherslu á að
vörur sem eru seldar til fjáröfl-
unar séu góðar, frekar en ódýrar
og hann ráðleggur þeim sem fara
af stað með sölu á slíkum vörum
að hafa gott úrval til að byrja með
og sjá svo hvað gengur vel út.
„Vandamálið í fjáröflunum er að
maður er alltaf að herja á sömu
frænkuna,“ segir Baldur. „Það þarf
að hugsa um viðskiptavininn. Það
er mikilvægt að bjóða gæðavöru
sem fólk vill kaupa aftur og aftur.
Það getur líka verið sniðugt að
vera með áskriftarkerfi þannig að
þú sért til staðar þegar fólk vill
vöruna. Það gæti verið betra að
bjóða einhverja ákveðna gæða-
vöru og vera með jafna þjónustu.
En þá þarf auðvitað einhver að
geta haldið utan um það.“
Sjálfboðaliðar eru auðlind
„Að mínu mati þarf líka að líta
á sjálfboðaliða sem mikilvæga
auðlind sem íþróttafélög þurfa að
halda vel um,“ segir Baldur. „Ég
veit ekki nákvæmlega hver ætti að
sjá um það en það þarf að halda
utan um þekkinguna og reynsluna
og miðla henni áfram svo hún
glatist ekki. Það gerist svolítið í
Á sumrin standa Fálkar vaktina við grillið á öllum leikjum meistaraflokks. MYND/BALDUR ÞORGILSSON
Það er mikill
hasar í dósa- og
flöskusöfnun
Fálka.
MYND/BALDUR
ÞORGILSSON
Baldur segir fjáröflunarstarf vera
mikilvægt tækifæri til að kynnast
fólki. MYND/ERNIR
Fálkum, við hittumst á fundum
og fáum fyrirlesara til okkar og þá
deilist þekking okkar á milli, þótt
það sé ekki gert á skipulegan hátt.
En við höfum rætt að gera þetta
skipulega og ég held að það væri
sterkur leikur.
Það þarf líka að umgangast
þessa auðlind varlega,“ segir
Baldur. „Sjálfboðaliðarnir verða
að koma að verkinu glaðir, svo
það verður að passa að álag sé
ekki of mikið og þetta verði ekki
kvöð.“
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@365.is
Styrktar- og félagasamtök
athugið!
Tökum að okkur fjáröflun fyrir styrktar- og félagasamtök.
Mikil reynsla, hafðu samband og sjáðu hvort við getum orðið
þínum málstað haukur í horni.
Sími: 415 3600
Netfang: simstodin@simstodin.is
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ 1 8 . O K tó B E R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U RFJÁRöFLUN
1
8
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
0
-B
E
8
0
1
E
0
0
-B
D
4
4
1
E
0
0
-B
C
0
8
1
E
0
0
-B
A
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K