Fréttablaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 46
Nokkuð ítarleg grein birtist í Mark-
aði Fréttablaðsins hinn 11. október
sem vísað er til á forsíðu með yfir-
skriftinni „Smærri fyrirtækjum
settur stóllinn fyrir dyrnar“. Þar
segir einnig að ströng túlkun Fjár-
málaeftirlitsins á reglum um kaup-
aukagreiðslur hafi það í för með sér
að fjármálafyrirtæki eigi þess ekki
lengur kost að umbuna starfsfólki
með greiðslu arðs af B-hlutabréfum.
Í tilefni greinarinnar langar mig
að koma á framfæri nokkrum atrið-
um til að skýra afstöðu Fjármála-
eftirlitsins varðandi eftirlit með
kaupaukum.
Fyrst af öllu vil ég benda á að það
er hlutverk Fjármálaeftirlitsins að
framfylgja lögum um fjármálafyrir-
tæki sem Alþingi hefur sett, þ. á m.
ákvæðum þeirra er varða kaup-
auka. Ákvæði um hámark kaup-
auka og bann við að greiða vissum
starfsmönnum fjármálafyrirtækja
kaupauka er að finna í 57. gr. laga
um fjármálafyrirtæki, auk þess
sem ákvæðið skyldar einnig Fjár-
málaeftirlitið til að setja reglur um
frestun kaupauka.
Þá vil ég benda á að smæstu fjár-
málafyrirtækin (verðbréfafyrir-
tæki sem bera takmarkaðar starfs-
skyldur) eru nú þegar undanþegin
takmörkunum á kaupaukum og
kaupaukakerfum, sbr. e-lið 4. mgr.
25. gr. laga um fjármálafyrirtæki.
Enn fremur vil ég undirstrika að
Fjármálaeftirlitið hefur ekki bann-
að að hlutafé fjármálafyrirtækja sé
skipt í flokka eða að starfsmenn
eigi hluti í fjármálafyrirtækjum.
Telji Fjármálaeftirlitið hins vegar
að með slíkri skiptingu sé verið að
komast undan ákvæðum laga og
reglna um kaupauka og kaupauka-
kerfi mun eftirlitið bregðast við.
Að því er varðar málið sem vísað
er til í grein Markaðarins, og teng-
ist Arctica Finance hf., þá var Fjár-
málaeftirlitinu ekki kunnugt um
það fyrr en nýlega að starfsmenn
hefðu fengið að kaupa B, C og D
bréf á nafnverði (þ.e. þeir greiddu
samtals 200 þúsund krónur fyrir
hlutina) en fengið á sex ára tíma-
bili 668 milljónir króna í arð vegna
sömu bréfa. Þetta taldi Fjármála-
eftirlitið ástæðu til að rannsaka
og í kjölfarið að bregðast við með
stjórnvaldssekt og úrbótakröfu.
Ítarlegan rökstuðning fyrir þessari
ákvörðun er að finna í gagnsæis-
tilkynningu sem Fjármálaeftirlitið
gaf út á vef sínum hinn 5. október
síðastliðinn.
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið
framfylgir ákvæðum
laga um kaupauka
Fjármálaeftirlitið sektaði nýlega verðbréfafyrirtækið Arctica Finance um 72
milljónir króna vegna brota á reglum um kaupaukagreiðslur.
Bókin Chase your shadow: The trials of Oscar Pistorius eftir Íslandsvininn John Carlin er
með þeim áhugaverðari sem ég hef
lesið í lengri tíma. Við þekkjum flest
söguna í grófum dráttum. Vinsælasti
fatlaði íþróttamaður heims skaut
unnustu sína til bana á heimili þeirra
í Pretoríu í Suður-Afríku á Valentín-
usardaginn 2013. Réttarhöldin vöktu
heimsathygli og mörkuðu endalok
ferils þessa magnaða íþróttamanns.
Helsti styrktaraðili Pistorius var
íþróttavörumerkið Nike. „I am the
bullet in the chamber“ stóð við hlið
mynda af hlauparanum í auglýsingum
en þegar hann var loks fundinn sekur
um manndráp lauk Nike-samstarfinu
sem hefði getað fært Pistorius hundruð
milljóna króna í tekjur.
Ekkert fyrirtæki eyðir hærri upp-
hæðum í að tengjast íþróttafólki en
Nike. Það þarf því ekki að koma á óvart
að endrum og sinnum komi tengslin
sér illa, eins og í tilviki hlauparans frá
Suður-Afríku. En þetta gerist ekki endr-
um og sinnum heldur furðulega oft.
Enginn hjólagarpur hefur vakið
viðlíka athygli og Lance Armstrong.
Nike seldi vörur undir vörumerki
góðgerðarsjóðs hans, Livestrong,
og greiddi honum persónulega um
fimm milljarða króna í tengslum við
markaðssetningu. Í kjölfar þess að upp
komst um lyfjaneyslu Arm strongs rifti
Nike samstarfinu og aðrir styrktarað-
ilar fylgdu í kjölfarið. Áætlar tímaritið
Forbes að Armstrong hafi með þessu
orðið af allt að 15 milljörðum króna í
framtíðartekjur.
Það vantar ekki hneykslismálin
hjá magnaðasta kylfingi sögunnar.
Þrátt fyrir framhjáhald, lyfjanotkun
og lélegan árangur hefur Nike stutt
við bakið á íþróttamanninum sem
á sínum tíma varð fyrstur til að þéna
milljarð dollara á einu ári. Hann fær
enn um tvo og hálfan milljarð króna
frá aðilum á borð við Monster, Bridge-
stone og Taylor Made og Nike greiðir
honum annað eins. Þetta er innan
við helmingur þess sem hann fékk frá
styrktaraðilum á meðan allt lék í lyndi.
Rannsókn University of Cali fornia,
Davis, á fjárhagslegum afleiðingum
framhjáhaldshneykslisins árið 2009
leiddi í ljós að tap hluthafa styrktarað-
ila Woods nam á bilinu 600 til 1.450
milljörðum króna, meiru en hann
hefur nú þegar, og mun, geta þénað á
ferlinum.
Nike hefur kosið að tengja vöru-
merki sitt við fremsta íþróttafólk
heims en reglulega kemur eitthvað
miður skemmtilegt upp. Meðal þess
íþróttafólks sem Nike hefur stutt á
þeim tímapunkti sem ferillinn fuðr-
aði upp eru Ólympíumeistarinn í 100
metra hlaupi árið 2004, Justin Gatlin,
og hlaupadrottningin Marion Jones.
Bæði bættu þau árangur sinn með
ólöglegum aðferðum og Nike sleit
samstarfinu fljótlega. NFL-stjörn-
urnar Michael Vick og Adrian Peterson
misstu auk þess samninga sína við
Nike vegna hneykslismála, sem og þau
Maria Sharapova og Manny Pacquiao.
Vel má vera að ávinningurinn af sam-
starfi við fremsta íþróttafólk heims hafi
fært Nike hærri upphæðir en tapast
hafa vegna þeirra sem hér er nefndir, en
óheppnin virðist þó elta íþróttavöruris-
ann á röndum. Nú segir Kanye West að
Nike hafi gert milljarðs dollara samning
við besta körfuknattleiksmann heims,
LeBron James. Það er þá eins gott að
hann haldi sig á mottunni.
Vandræðabörn Nike
Björn Berg
Gunnarsson
Brynhildur Pétursdóttir, sem sat á Alþingi fyrir Bjarta framtíð á árun-um 2013 til 2016, var í síðasta mánuði ráðin f ra m k væ m d a st j ó r i
Neytendasamtakanna. Brynhildur
þekkir vel til samtakanna en hún
starfaði þar og var ritstjóri Neyt-
endablaðsins frá 2005 til 2013. Hún
situr hér fyrir svörum í Svipmynd
Markaðarins.
Hvað hefur komið þér mest á
óvart það sem af er ári? Ég sá hvorki
fyrir að það yrði kosið enn og aftur
til Alþingis né að íslenska karla-
landsliðið í fótbolta tryggði sér rétt
á HM. Þá hefur komið mér á óvart
hvað verðbólgan hefur haldist lág
og eins hvað forseti Bandaríkjanna
er mikið fífl.
Hvaða app notarðu mest? Mess-
enger væntanlega. Síðan hlóð ég
niður einhverju rosalegu skipulags-
appi sem ég taldi víst að myndi
breyta lífi mínu til hins betra en hef
ekki komist í að læra á það.
Hvað gerir þú í frístundum
þínum? Ég er heimakær með
afbrigðum þannig að þegar ég
kem heim úr vinnu er líklegt að
ég klappi kettinum, prjóni aðeins,
athugi hvort eitthvert spennandi
efni sé komið inn á Netflix og rölti
í sund með manninum eða í göngu-
túr. Svo les ég frekar mikið og get
alls ekki sofnað nema glugga aðeins
í bók.
Hvernig heldur þú þér í formi?
Almennt finnst mér gönguferðir
um holt og hæðir besta hreyfingin
og einnig sund. Ég keypti mér
síðan eitthvert forláta flotvesti til
að stunda það sem er kallað aqua
run. Það eru liðnir margir mánuðir
síðan og ég hef ekki enn þorað að
mæta með beltið í sund. Bind samt
miklar vonir við þessa græju.
Hvernig tónlist hlustar þú á? Ég
hlusta eiginlega á allt. Það er eitt-
hvað við eighties tónlist og Euro-
vision-smelli sem gerir mig glaða
og jólalögin mega alveg byrja að
hljóma snemma mín vegna. Nema
íslenska jólaútgáfan af Gente di
mare – hverjum þótti það eiginlega
góð hugmynd? Ef ég ætla í alvöru
að koma mér í stuð set ég Drop the
World með Lil Wayne í græjurnar,
stilli á hæsta og syng með.
Ertu í þínu draumastarfi? Ég er
svo heppin að hafa verið í mörgum
draumastörfum. Starfið mitt núna er
skemmtilegt og krefjandi en ég finn
í sjálfu sér ekki mikinn mun á því og
fyrri störfum hjá Neytendasamtök-
unum þótt einhver titill hafi bæst
við. Mér hefur alltaf fundist viss heið-
ur að fá að starfa hjá Neytendasam-
tökunum og hreint með ólíkindum
hvað svo fámennur vinnustaður nær
að áorka miklu. Ég myndi hiklaust
halda því fram að hjá samtökunum
starfi algert draumastarfslið.
Komið á óvart hvað
forseti Bandaríkjanna
er mikið fífl
Svipmynd
Brynhildur Pétursdóttir,
Jólalögin mega alveg
byrja að hljóma
snemma mín vegna. Nema
íslenska jólaútgáfan af Gente
di mare – hverjum þótti það
eiginlega góð hugmynd?
Brynhildur Pétursdóttir er nýráðin framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna.
Nýtt öflugt
bókhaldskerfi í skýinu
frá manninum sem færði
okkur Dynamics Ax
Prófaðu
frítt í
30 daga
www.uniconta.is
Lagast að þínum þörfum
Erik Damgaard
Stofnandi Uniconta
Unnur
Gunnarsdóttir
forstjóri FME
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A G U r8 markaðuriNN
1
8
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
0
-F
9
C
0
1
E
0
0
-F
8
8
4
1
E
0
0
-F
7
4
8
1
E
0
0
-F
6
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K