Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.10.2017, Qupperneq 49

Fréttablaðið - 18.10.2017, Qupperneq 49
Hagnaður fjármálafyrirtækisins GAMMA Capital Management nam 411 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins og dróst saman um 8,5 prósent á milli ára. Mestu munaði um hærri rekstrargjöld en þau voru um 604 milljónir króna á tímabilinu og hækkuðu um 65 prósent á milli ára. Hreinar rekstrartekjur námu 1.118 milljónum króna á fyrri helm- ingi ársins og jukust um tæpar 200 milljónir á milli ára. Eigið fé félagsins var 1.839 milljónir króna í lok júnímánaðar og jókst um liðlega 6 prósent á milli ára. Voru eignirnar á sama tíma 2.730 milljónir króna og eiginfjárhlutfallið 35,2 pró- sent. Til samanburðar var hlutfallið 52,2 prósent í lok síðasta árs. Alls störfuðu 22 manns að meðal- tali hjá GAMMA á fyrstu sex mán- uðum ársins, borið saman við 20 á sama tíma í fyrra, og námu laun samtals 230 milljónum króna. Til samanburðar námu þau 163 millj- ónum á sama tíma 2016 og hækkuðu þau þannig um 41 prósent á milli ára. Annar rekstrarkostnaður hækkaði hins vegar enn meira eða úr 156 millj- ónum króna í rúmlega 316 milljónir. GAMMA hefur á undanförnum tveimur árum haslað sér völl erlendis, fyrst með opnun skrifstofu í Lundún- um árið 2015 og síðan í Zürich í Sviss fyrr á þessu ári. Stefnt er að opnun skrifstofu í New York síðar á árinu. – kij Rekstrargjöld GAMMA jukust um 65 prósent á fyrri árshelmingi Valdimar Ár- mann, forstjóri GAMMA á Íslandi. 411 milljónir var hagnaður GAMMA á fyrri árshelmingi Veldu samferðamann sem nær lengra Arion eignastýring býður fjölbreytt úrval sjóða fyrir ólík fjárfestingarmarkmið. Við mætum þínum þörfum með traustri ráðgjöf og djúpri þekkingu á möguleikum markaðarins. Saman stefnum við að árangri Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Í útboðslýsingu og lykilupplýsingum hvers sjóðs er að finna nánari upplýsingar um sjóðinn, m.a. um áhættu og hvort umræddur sjóður telst verðbréfasjóður eða fjárfestingarsjóður. Auglýsingin er aðeins í upplýsingaskyni og skal ekki litið á hana sem ráðgjöf um að ráðast í eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum. Greiningardeild Arion banka spáir því að hagnaður smásölufélagsins Haga verði 746 milljónir króna á öðrum fjórðungi rekstrarársins og dragist þannig saman um tæplega 39 prósent á milli ára. Félagið mun birta uppgjör fyrir fjórðunginn í næstu viku. Í afkomuspá greiningardeildar- innar, sem Markaðurinn hefur undir höndum, kemur fram að líklegt sé að fátt muni koma á óvart í uppgjörinu. Öllu athyglisverðara verði að sjá með hvaða hætti stjórnendur félagsins munu fjalla um rekstrarhorfurnar á síðari hluta rekstrarársins. Er bent á að eftir að hafa sent frá sér tvær afkomuviðvaranir í sumar, vegna samdráttar í sölu, hafi ekkert heyrst frá stjórnendum Haga í tvo mánuði. Því megi reikna með því að staða félagsins sé lítið breytt frá síðustu afkomuviðvörun. Greiningardeildin gerir ráð fyrir því að rekstrarhagnaður Haga fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta verði  1.224 milljónir króna á öðrum fjórðungi og dragist þannig saman um 32 prósent á milli ára. – kij Spá miklum samdrætti hjá Högum Finnur Árnason, forstjóri Haga. Félagið K2B fjárfestingar ehf., sem er í eigu Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur fjárfestis, skilaði rúmlega 25 milljóna króna hagnaði í fyrra borið saman við 360 milljóna króna hagnað árið áður. Í nýbirtum ársreikningi kemur fram að eignir fjárfestingafélagsins hafi numið tæplega 3,8 milljörðum í árslok 2016. Þar munar mestu um eignarhluti í öðrum félögum og verðbréf upp á samtals 3,3 milljarða króna. Einu skuldir félagsins eru við tengda aðila að fjárhæð 245 milljónir. Eigið fé K2B nemur því rúmlega 3,5 milljörðum króna. Félagið er meðal annars í hópi stærstu hluthafa í tryggingafélag- inu VÍS og Kviku banka. Svanhildur Nanna er stjórnarformaður VÍS en eiginmaður hennar, Guðmundur Örn Þórðarson, er hins vegar varaformað- ur stjórnar Kviku. Þau hjónin voru á sínum tíma aðaleigendur Skeljungs en seldu olíufélagið í árslok 2013 með milljarða hagnaði. – hae Með 3,5 milljarða í eigið fé Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir. 11M I Ð V I K U D A G U R 1 8 . o K t ó b e R 2 0 1 7 MArkAðurinn 1 8 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 7 2 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 0 -D 7 3 0 1 E 0 0 -D 5 F 4 1 E 0 0 -D 4 B 8 1 E 0 0 -D 3 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.