Fréttablaðið - 18.10.2017, Síða 50

Fréttablaðið - 18.10.2017, Síða 50
Markaðurinn Miðvikudagur 18. október 2017fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál | Viðskiptavefur Vísis @VisirVidskiptiwww.visir.is Stjórnar- maðurinn @stjornarmadur 12.07.2017 Jöfnuður eigin fjár heimilanna er meiri 2016 en hann hefur verið að meðaltali síðustu tuttugu ár. Það er óvandað að stjórnmála- menn byggi málflutning sinn á röngum fullyrðingum. Al- menningur á betra skilið en að láta villa um fyrir sér. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA STÓRTÓNLEIKAR Í HÁSKÓLABÍÓ 21. OKTÓBER KL. 21.00 BJARNI ARA FAGNAR Í ÁR 30 ÁRA SÖNGAFMÆLI MEÐ HONUM Á SVIÐINU VERÐUR FRÁBÆR HLJÓMSVEIT OG FLUTT VERÐA LÖGIN SEM BJARNI HEFUR SUNGIÐ INN Í HJÖRTU LANDSMANNA SÍÐUSTU ÞRJÁ ÁRATUGI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á TIX.IS ÞÓRIR ÚLFARSSON LEIKUR Á HLJÓMBORÐ OG STÝRIR HLJÓMSVEITINNI · GULLI BRIEM Á TROMMUR · FRIÐRIK KARLSSON Á GÍTAR GRÉTAR ÖRVARSSON Á HJÓMBORÐ · JÓHANN ÁSMUNDSSON Á BASSA · JÓEL PÁLSSON Á SAXAFÓN · KJARTAN HÁKONARSON Á TROMPET Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Miðflokkurinn hafa spilað út stóra spilinu fyrir kosningarnar. Sigmundur vill að ríkið nýti kaup- rétt sinn að Arion banka og greiði út það umfram eigið fé sem finna má í bankanum. Að því loknu verði bankinn að þriðjungi í eigu ríkisins, þriðjung- ur verði seldur í almennu, alþjóð- legu hlutabréfaútboði og að síðasti þriðjungurinn verði afhentur öllum almenningi til jafns. Það má Sigmundur eiga að, ólíkt mörgum kollegum sínum, þá notar hann heilann í að búa til stórar hugmyndir. Þetta er sannarlega ein af þeim og raunar góðra gjalda verð. Augljóst er að stóru íslensku bankarnir halda meira eigið fé en telst rekstrarlega hagkvæmt. Því getur vel verið að peningum ríkisins væri vel varið í að nýta for- kaupsrétt sinn og greiða sér strax ríflegan arð. Hugmyndin um að færa eignar- haldið til almennings að hluta er sömuleiðis góð og á sér erlendar fyrirmyndir, en í einkavæðingar- hrinunni á Thatcher-tímanum í Bretlandi var sambærileg leið farin við sölu á ríkiseignum. Með þessu má í senn færa verðmæti til almennings og um leið ýta undir þátttöku fólks á verðbréfamarkaði. Það veit sá sem allt veit að ekki er vanþörf á fjölbreytni á markaði þar sem lífeyrissjóðir hafa ráðið lögum og lofum eftir hrun. Sigmundur og félagar vilja hins vegar ganga enn lengra. Íslands- banki skal seldur til erlends banka sem reiðubúinn er að starfa eftir skýrri langtímasýn á Íslandi. Landsbankinn skal svo áfram vera í eigu ríkisins en stofna netbanka sem gert verður að bjóða lægstu mögulegu vexti. Hvoru tveggja er væntanlega ætlað að tryggja bætt kjör í bankavið- skiptum á Íslandi. Sigmundur horfir hins vegar fram hjá því að vandinn við íslensk vaxtakjör er ekki bundinn við bankana heldur gjaldmiðilinn. Krónan er sömu- leiðis sennilega ástæða þess að aldrei hefur tekist að selja íslensk- an banka útlendingum í mörgum atrennum. Hugmyndir Sigmundar eru frum- legar og þarft innlegg í umræðu sem hingað til hefur verið fátækleg. Þær gjalda hins vegar fyrir krónu- glákuna sem veldur því að fæstir íslenskir stjórnmálamenn sjá skóginn fyrir trjánum í efnahags- legu tilliti. Loksins stór hugmynd Eignarhaldsfélagið ISB Holding, sem er í eigu ríkissjóðs og hélt áður utan um 95 pró- senta hlut Glitnis í Íslandsbanka, greiddi 8,6 milljónir í stjórnarlaun í fyrra en eini stjórnarmaður félagsins er hæstaréttar- lögmaðurinn Steinar Þór Guðgeirsson. Hann tók sæti í stjórn ISB Holding í apríl 2016. Fram kemur í ársreikningi að fyrir- hugað sé að slíta félaginu á þessu ári. Eignarhlutur ISB Holding í Íslandsbanka var framseldur til ríkisins í janúar 2016 sem hluti af stöðugleikaframlagi kröfuhafa. Samhliða því var hluturinn færður undir Bankasýsluna sem heldur um eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Áður en ríkissjóður eignaðist ISB Holding voru þrír í stjórn félagsins og námu stjórnarlaun til þeirra samtals 13,2 milljónum árið 2015. Steinar Þór hefur starfað sem ráðgjafi Seðlabankans og Lindarhvols, eignarhalds- félags í eigu ríkissjóðs, og átt sæti í stjórnum fjölmargra félaga sem voru framseld til rík- isins sem hluti af stöðugleikaframlögum gömlu bankanna. – hae  Tæplega 9 millljóna króna stjórnarlaun Steinar Þór Guðgeirsson. 1 8 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 0 0 -D 2 4 0 1 E 0 0 -D 1 0 4 1 E 0 0 -C F C 8 1 E 0 0 -C E 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.