Fréttablaðið - 18.10.2017, Síða 70
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði
sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina
má flest allt um ástand bílsins og gæði.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Af hverju krosslímt tré?
• Umhverfisvæn og sjálfbær framleiðsla
• Léttari en steypa
• Frábær einangrun
• Engar kuldabrýr sem bjóða heim raka
og myglu
• Mjög fljótlegt að reisa
• Einstakir burðareiginleikar
• Jarðskjálftaþol eins og best getur orðið
• Þynnri veggir - meira innra rými
• Notalegt og heilsusamlegt innra umhverfi
Smiðjuvegi 3 - 200 Kópavogur - Sími 412 1700
idex@idex.is - www.idex.is
idex.is - sím 412 1700
framl.- sölu- og þjónustuaðili
Schüco á Íslandi
- merkt framleiðsla
• Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex
álgluggum ehf.
• Hágæða álprófílkerfi frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi
tegundum bygginga
Álgluggar
- þegar gæðin skipta máli
www.schueco.is
Byggðu umhverfisvænt hús
-úr krosslímdu tré
Byggðu til framtíðar
með lausnum frá IDEX
VIÐ ERUM AÐ
TALA UM ÞIG
Hafðu það skemmtilegra í haust með Stöð 2
365.isMARGFALT SKEMMTILEGRI
Þetta byrjaði sem svona létt grín sem enginn stoppaði af og varð á endanum að skemmti-legu konsepti. Ég var líka bara orðinn leiður
á því að hafa ekkert að gera í des-
ember – ég meina, það eru Jólagestir
Bó, Frostrósir, Baggalútur … það er
allt yfirhlaðið af jólatónleikum en
lítið pláss fyrir eitthvað annað. Ég
sá smá pláss á markaðnum því að
það er ekkert verið að sinna minni
senu neitt rosalega. Upphaflega áttu
þetta að vera pjúra rapptónleikar
en svo fékk ég bara jólaveikina og
byrjaði að hlaða ofan á þetta. End-
anlegt „line-up“ er ég, Helgi Björns,
Aron Can, JóiPé og Króli, Salka Sól
og sérstakir gestir eru Cyber,“ segir
Emmsjé Gauti spurður af hverju í
ósköpunum hann sé að halda jóla-
tónleika – en Júlevenner Gauta
er staðreynd og rappið formlega
komið inn á jólatónleikamarkað-
inn.
Ásamt þeim sem Gauti nefndi
verður fullskipað band með á svið-
inu – Vignir og Keli úr Agent Fresco,
Steini úr Moses Hightower, Rögn-
valdur á gítar og Bartónar syngja
með.
„Þetta heitir Júlevenner vegna
þess að ég þorði ekki að kalla
þetta Jólavini, ég bjóst þá við að
Bó myndi hringja alveg brjálaður.
Annars kom mér á óvart að þegar
ég fór að hringja í fólk og biðja það
að vera með voru allir mjög mikið
til í það. Púsluspilið varð svo full-
komið þegar Helgi Björns sagðist
vera með – þá heyrði ég jólabjöll-
urnar klingja.“
Hefurðu ekkert verið að fá á þig
skot fyrir að halda jólatónleika?
Ekki finnst öllum slíkir tónleikar
vera merkilegir.
„Ég er rétt svo búinn að tísa þessu
og er strax búinn að fá gagnrýni á
Twitter. Bubbi Morthens sagði bara
„Enga jólatónleika, bíttu í kúlurnar
rappari og haltu sjálfsvirðingunni.“
Ég elska Bubba, en Bubbi, hvað með
Þorláksmessutónleikana þína? Bíttu
bara sjálfur í kúlurnar. Ég býst við
að umtalið verði það gott að Bubbi
verði hreinlega með okkur á næsta
ári.“
Hvernig verður þetta – svaka sýn-
ing eða bara venjulegir tónleikar?
„Ég er kominn með smá kvíða-
kast yfir hversu stórt þetta er orðið.
Þetta er sitjandi gigg í Gamla bíói,
þannig að það eru ekkert sérstak-
lega margir miðar í boði, svo að ég
minni á forsöluna sem fer í gang í
dag á Aur-appinu. Þetta er sýning
– þú ert ekkert að fara að labba
inn á venjulega rapptónleika eða
venjulega jólatónleika. Þetta er ein-
hvers konar mixtúra. Við tökum
„venjulegu“ lögin okkar í bland við
einhverja jólageðveiki sem ætti að
koma öllum í stuð fyrir jólin. Við
erum líka með einn jólaperra í
hópnum – hann Vignir bassaleik-
ari hefur farið á alla jólatónleika
sem haldnir hafa verið síðustu tíu
árin. Hann er með allar klisjurnar á
hreinu þannig að það er gott að hafa
hann með. Ég hins vegar hef aldrei
farið á jólatónleika þannig að ég er
eiginlega bara að giska á hvernig
jólatónleikar fara fram.“
Tónleikarnir fara svo fram kortér
í jólin, 22. desember í Gamla bíói.
stefanthor@frettabladid.is
Rappið komið inn á
jólatónleikamarkaðinn
Rapp er gífurlega vinsælt og einungis tímaspursmál hvenær rappið
færi inn á jólatónleikamarkaðinn. Emmsjé Gauti er búinn að láta
vaða og heldur Júlevenner ásamt nokkrum góðum jólavinum.
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A G U r42 l í f I Ð ∙ f r É t t A b l A Ð I Ð
1
8
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
0
-B
4
A
0
1
E
0
0
-B
3
6
4
1
E
0
0
-B
2
2
8
1
E
0
0
-B
0
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K