Fréttablaðið - 11.11.2017, Blaðsíða 22
Slakar í botn
Ég er enn þá að ná mér niður eftir
Airwaves törnina þannig að ég ætla
bara að reyna að slaka í botn. Kíkja
í brunch með vinkonu, fara í afmæli
og svo kannski horfa á aðra seríuna
af Stranger Things – alla.
Það er ekki oft sem haldnar eru vatnslita-sýningar hér á landi, hvað þá svona veg-legar,“ segir Jónína Magnúsdóttir um viða-
mikla sýningu vatnslitamálara sem
opnuð verður í Norræna húsinu
í dag klukkan þrjú. Myndirnar
eru 95 sem þar ber fyrir augu og
þær eru eftir 72 listamenn frá Wales
og öllum Norðurlöndunum, þar á
meðal Íslandi. Jónína segir þær end-
urspegla mikla fjölbreytni í formi,
stíl og tækni. Skiptingin er þannig
að þriðjungur verka er frá Wales,
þriðjungur frá Íslandi og þriðjungur
frá hinum Norðurlöndunum.
Jónína, sem notar listamanns-
nafnið Ninný, er í stjórn Norræna
vatnslitafélagsins, sem stendur að
viðburðinum ásamt Konunglega
vatnslitafélaginu í Wales. „Það eru
tvö ár síðan ég var beðin að skipu-
leggja þessa sýningu og það er búið
að vera stórt verkefni en skemmti-
legt. Fékk hann Derek Mundell í lið
með mér og hefði aldrei getað þetta
án hans,“ segir Jónína sem á von á
mörgum erlendum gestum, varla þó
Karli Bretaprins þrátt fyrir að hann
sé verndari hins velska félags.
Sýningin verður opnuð á efri
hæð Norræna hússins klukkan
15 stundvíslega með ávörpum
forseta félaganna og léttum veit-
ingum. Svo verður haldið niður í
stóra salinn þar sem myndunum
er fallega fyrir komið á veggjum
og flekum. Klukkan 16 ætlar
þekkt tónlistarkona frá Wales,
Eira Lynn Jone, að spila á hörpu
í salnum á efri hæðinni út frá
sínum hughrifum frá listaverk-
unum og myndir af þeim munu
rúlla á tjaldi á bak við hana. Jón-
ína er ekki í vafa um að það verði
einstakt og spennandi. „Svo getur
fólk farið niður í sýningarsalinn
aftur og notið listarinnar þar,“
segir hún og tekur fram að allir
séu velkomnir.
Sýningin Tenging landa og
lita stendur til 10. desember og
aðgangur er ókeypis. - gun
Ástríðufullir vatnslitamálarar
Tenging land og lita nefnist stórsýning sem opnuð verður í Norræna húsinu í dag með mikilli viðhöfn. Allir eru vel-
komnir. Sýningin er ávöxtur samvinnu Konunglega vatnslitafélagsins í Wales og Norræna vatnslitafélagsins.
Derek Mundell og Jónína segja vatnslitamálara finna fyrir sterkri tengingu sín á milli, skilningi og gagnkvæmum áhuga á viðfangsefnum hver annars. Fréttablaðið/VilhelM
Um helgina
búðu til
Snjókarl
Þessa helgina er
upplagt að búa
til fyrsta snjókarl
ársins. Leyfðu
gamla pípuhatt-
inum, treflinum
og kústinum að
njóta sín eftir
langa bið. Láttu
svo ímyndunar-
aflið taka völdin
og finndu frum-
legt snjókarlanef
í grænmetis-
skúfunni þetta
árið.
Spilar á Sveitaballi
Ég ætla að spila á hrikalega
skemmtilegu sveitaballi á SPOT
í Kópavogi á laugardagskvöldið,
ásamt vinum mínum í hljómsveit-
inni Á móti sól.
DanSar regnDanSinn
Ég ætla að reyna að jafna mig á því að það sé byrjað að
snjóa og að tími myrkurs og sorgar og erfiðra morgna
sé runninn upp. Ég ætla að setja börnin mín í snjó-
galla og fara eitthvað út. Síðan dansa ég regndansinn
á sunnudaginn og bið fyrir blautri úrkomu. Síðan bara
Stranger Things sería 2, elda eitthvað gott og „what the
fuck“.
leSið
Dóri mælir
með bókinni
Aftur og aftur
eftir Halldór
Armand.
„Hún er
búin að éta
upp heilann
í mér. Ég
held að
allir Ís-
lendingar
séu með
einhverjar
pælingar um hvað samfélags-
miðlar eru að gera þeim og bókin
er ógeðslega góð að lesa fyrir fólk
sem hefur áhyggjur af samfélags-
miðla-, farsíma- og tölvunotkun.“
heimir eyvindarson hljómborðsleikarihildur Kristín Stefánsdóttir söngkona
Dóri DNa, skáld
1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r22 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
helgin
1
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:1
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
1
-7
A
5
4
1
E
3
1
-7
9
1
8
1
E
3
1
-7
7
D
C
1
E
3
1
-7
6
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K