Fréttablaðið - 11.11.2017, Blaðsíða 32
Það hefur komið betur og betur ljós á undan-förnum árum að ítalski skurðlæknirinn Paolo Macchiarini er svika-hrappur. Macchiarini
öðlaðist frægð árið 2008 þegar hann
græddi nábarka í spænska konu.
Hann varð heimsfrægur þremur
árum síðar þegar hann græddi
plastbarka, þakinn stofnfrumum,
í Erítreumanninn Andemariam
Beyene. Sá hafði verið við nám
hér á landi og var vísað á Paolo af
íslenskum læknum.
Mál Macchiarinis hafa verið í
umræðunni í liðinni viku eftir að
rannsóknarnefnd Háskóla Íslands
og Landspítalans birti skýrslu í
upphafi vikunnar um þátt íslenskra
lækna og fræðimanna í aðgerðinni,
meðferðinni eftir hana og vísinda-
grein um hana í læknatímaritinu
The Lancet. Í skýrslunni er meðal
annars dregin sú ályktun að íslensk-
ir læknar hafi ekki sýnt af sér nægi-
lega aðgæslu í samskiptum við hann
en einnig er sagt að Macchiarini hafi
hreint út sagt reynt að notfæra sér
kollega sína.
Með hverri skýrslu sem gerð er
um mál plastbarkaaðgerða Macc-
hiarinis kemur í ljós nýr skandall.
Hann hefur orðið uppvís að því
að sniðganga siðanefndir, blekkja
háskólastofnanir og samlækna sína.
Blekkingarnar ná ekki aðeins til
starfsframa hans heldur teygja þær
sig einnig inn í einkalíf hans.
Macchiarini fæddist í Basel í Sviss
árið 1958. Hann sótti sér gráður sem
læknir og síðar skurðlæknir í lækna-
deild háskólans í Pisa. Á ferilskrá
hans má finna störf við háskóla
og háskólasjúkrahús í Hannover,
Barcelona, London og Franche-
Comté. Fjölmargir þessara skóla hafa
hins vegar dregið í land með Macc-
hiarini eftir að mál hans komust í
hámæli.
Í skýrslum sænskra rannsakenda
var meðal annars fjallað sérstaklega
um ráðningu Macchiarinis til Kar-
olinska. Var þar sagt að aldrei hefði
átt að ráða hann þangað. Frá sjúkra-
húsum sem hann hafði áður unnið á
höfðu borist upplýsingar um hæfni
hans sem skurðlæknir. Engum duld-
ist að hann var einn sá allra færasti
í heiminum þegar að því kom að
meðhöndla hnífinn en hins vegar
ætti hann til að vera skeytingarlaus
gagnvart ráðleggingum samlækna
um hvers konar aðgerð eða meðferð
væri rétt að framkvæma. Í skýrsl-
unum kemur einnig fram að þegar
Macchiarini var ráðinn til Karolinska
árið 2010 höfðu stjórnendur Kar-
olinska háskólans umtalsvert meiri
áhuga á að fá hann til starfa heldur
en Karolinska sjúkrahúsið.
Þetta kemur til að mynda skýrt
fram í samskiptum Tómasar Guð-
bjartssonar við Macchiarini. Upp-
haflega stóð til að vísa Beyene til
Karolinska til rannsókna og til að
kanna hvers konar aðgerð væri
möguleg. Var sérstakur laserskurður
nefndur sérstaklega í því samhengi af
hálfu Tómasar. Þær tillögur lét Macc-
hiarini sem vind um eyrun þjóta
og virtist strax verða ákveðinn í að
græða eitthvað í sjúklinginn. Fékk
hann Tómas meðal
annars til þess að
breyta texta í til-
vísun sinni að
því er virðist
g a g n g e r t í
þeim tilgangi
a ð k o m a
p l a s t b a r k -
anum fyrir.
Sagði hann
að breytingin
væri til þess að
koma málinu í
gegn hjá siðanefnd
en engin slík umsókn var
send af stað. Sjálfur segir Tómas
að Macchiarini hafi blekkt sig með
þessu athæfi sínu.
Slíkar sögur eru alls ekkert eins-
dæmi. Árið 2016 birtist í bandaríska
tímaritinu Vanity Fair viðtal við
fyrrverandi unnustu Macchiarinis.
Sú heitir Benita Alexander en hún
starfaði sem framleiðandi hjá NBC
sjónvarpsstöðinni. Árið 2009, eftir
nábarkaígræðsluna, vann stöðin að
þætti um Macchiarini og störf hans.
Við gerð þáttanna felldu þau hugi
saman og áttu í sambandi. Í viðtalinu
lýsir Benita Alexander rómantískum
ferðum um heiminn auk heimsókna
til Stokkhólms. Þau voru í fjarsam-
bandi, Benita í New York en Paolo í
Svíþjóð, í um sex ár. Á jóladag árið
2013 bað skurðlæknirinn Benitu
sem svaraði játandi.
Brúðkaupið skyldi fara fram á
sumarmánuðum ársins 2015. Allt
stefndi í að þetta yrði brúðkaup
fullt af fyrirmennum. Enginn annar
en páfinn átti að gefa þau saman en
Macchiarini tjáði henni að hann
væri persónulegur læknir páfans.
Ekki nóg með að hann sæi um
sjálfa vígsluna heldur átti athöfnin
og veislan að fara fram í Gandolfo-
kastala, persónulegum sumarhíbýl-
um páfans. Á gestalistanum yrðu
fleiri sem tengdust lækninum vina-
böndum. Vladimír Pútin og Barack
Obama voru báðir væntanlegir sem
og Hillary Clin-
ton og Nicolas
Sarkozy.
„Þetta var rómaður
og farsæll skurðlæknir
sem við höfðum elt um ver-
öldina í tengslum við heimildar-
myndina. Sú hugsun, að hann væri
að ljúga þessu öllu saman, var í raun
súrrealísk. Sagan var of fáránleg til
að geta verið lygi,“ sagði Alexander
meðal annars við Vanity Fair. Trúlof-
uninni var slitið þegar vinur hennar
benti henni á að samkvæmt dagskrá
páfans væri hann bókaður í ferð um
Suður-Ameríku á sjálfan brúðkaups-
daginn. Að auki kom í ljós að Paolo
Macchiarini var kvæntur og átti tvö
börn með eiginkonu sinni.
Í umfjöllun Vanity Fair er einn-
ig sagt frá því hvernig Macchiarini
falsaði stöður á ferilskrá sinni. Þær
falsanir urðu meðal annars til þess
að hann komst að hjá öðrum sjúkra-
húsum og menntastofnunum síðar
meir. Þær stofnanir leyfðu full-
yrðingunum að standa í einhverja
stund þar sem það þótti skaða orð-
spor þeirra að hafa fallið fyrir blekk-
ingum læknisins.
Eftir að upp komst um plastbarka-
misferlið var Macchiarini rekinn
með skömm frá Karolinska. Hann
var kærður fyrir manndráp af gáleysi
en það mál fellt niður. Þá hefur hann
einnig hlotið kærur fyrir brot á lyfja-
lögum og að hafa fengið sjúklinga til
að breyta sjúkrasögu sinni í því skyni
að fá að skera þá upp. Akademískur
og klínískur ferill mannsins, sem
eitt sinn þótti líklegur til að hljóta
Nóbelinn í læknisfræði, er búinn.
Blekkingameistarinn
Paolo Macchiarini
Macchiarini öðlaðist
frægð með því að
græða nábarka í
sjúklinga. Þessi
mynd er úr slíkri
aðgerð sem gerð
var í Flórens
árið 2010.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
HAusT 2010
Macchiarini ráðinn sem gestapró-
fessor hjá Karolinska Institutet
(KI) og stefnir að því að vinna að
stofnfrumurannsóknum. Sam-
hliða starfi sínu er hann skurð-
læknir á Karolinska sjúkrahúsinu
(KS).
2011-2012
Gerir þrjár aðgerðir á sjúkrahús-
inu þar sem hann græðir plast-
barka hjúpaðan stofnfrumum í
sjúklinga. Aðgerðirnar eru gerðar
á þeim grundvelli að þær séu
neyðarúrræði og sjúklingarnir eigi
enga lífsvon án þeirra. Einn þeirra,
og sá fyrsti, er Andemariam
Beyene. Aðgerðin á honum var
gerð í júní 2011.
2012
Einn sjúklinganna deyr aðeins
mánuðum eftir að aðgerðin var
gerð. Andemariam Beyene lést
síðan um 30 mánuðum eftir
aðgerð sína. Síðasti sjúklingurinn
er á lífi en glímir við margvísleg
vandamál vegna hennar.
2013
Samningur KS við Macchiarini er
ekki framlengdur.
Júní 2014
Belgískur læknir sendir inn
tilkynningu vegna mögulegs
vísindamisferlis Macchiarinis.
Sett er á fót rannsóknarnefnd
sem hreinsar hann af öllum
ásökunum.
Júní-ágúsT 2014
Tvær tilkyningar um vísindalegt
misferli eru sendar KS. Talið er að
niðurstöðum aðgerðanna hafi
verið lýst með ósönnum hætti í
vísindagreindum.
nóvEMBER 2014
KI skipar Bengt Gerdin, prófessor
emiritus við Uppsalaháskóla, til
að rannsaka málið.
APRíL 2015
Macchiarini birtir andsvar við
þeim ásökunum sem hafðar eru
uppi gegn honum.
MAí 2015
Gerdin skilar skýrslu og niður-
stöður staðfesta að um vísinda-
legt misferli hafi verið að ræða.
ágúsT 2015
KI sendir frá sér yfirlýsingu um
að stofnunin sýkni Macchiarini af
ásökunum um vísindalegt mis-
ferli. Hins vegar hafi rannsóknir
hans ekki náð að uppfylla þær
kröfur sem gerðar eru til rann-
sókna við stofnunina.
nóvEMBER 2015
Macchiarini framlengir samning
sinn við KI.
JAnúAR 2016
Vanity Fair birtir grein þar sem
sagt er frá því að Macchiarini hafi
falsað ferilskrá sína. KI rannsakar
málið.
JAnúAR 2016
Heimildarmynd í þremur hlutum
sem fjallar um störf Macchiarini
er sýnd á SVT. Myndin leiðir í ljós
áður óþekkta hluti sem varpa
skugga á sögu læknisins. Afsagnir
fylgja hjá ýmsum stjórnendum
KI.
MARs 2016
Samningi KI við Macchiarini sagt
upp og hann leystur frá störfum.
ágúsT 2016
Kjell Asplund birtir skýrslu sína
Fallet Macchiarini. Þar segir að
aðgerðirnar hafi falið í sér til-
raunir en ekki meðferð. KI og KS
hafi sýnt af sér gáleysi. Skýrslan
leiðir einnig í ljós að flestar reglur
voru hunsaðar í aðdraganda að-
gerðanna af hálfu Macchiarini.
Atburðarásin
Ferill ítalska skurð
læknisins Paolos
Macchiarini innan
og utan vinnustaða
hans er ævintýrum
líkastur. Plastbarka
misferli hans batt
enda á það ævintýri.
Macchiarini öðlaðist frægð árið 2008 þegar hann græddi plastbarka, þakinn stofnfrumum í Andemariam Beyene. Hann reyndist svikahrappur. Mynd/EPA.
Jóhann Óli
Eiðsson
johannoli@frettabladid.is
1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r32 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:1
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
1
-4
D
E
4
1
E
3
1
-4
C
A
8
1
E
3
1
-4
B
6
C
1
E
3
1
-4
A
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K