Fréttablaðið - 11.11.2017, Blaðsíða 122
1. Mikilvægi uMhverfisþjálfunarHundurinn þarf að vera vel
umhverfisþjálfaður. Það þýðir að
hann þarf að vera vanur að fara á
nýja staði og hann þarf að geta verið
rólegur í þeim aðstæðum. Ef hann er
ekki vanur er gott að venja hann við
með því að fara í heimsóknir til vina
og ættingja.
2. slökunHundurinn á að vera í slökun á kaffihúsi. Kaffihús
er ekki leiksvæði fyrir hundinn og á
hann því að vera rólegur og slappa
af. Fín leið til þess að ná slökun er
að halda um axlir og tala rólega til
hans. Hægt er að strjúka eða nudda
axlir til að losa um spennu. Mikil-
vægt er að vera róleg/ur sjálf/ur til
þess að smita frá sér ró í hundinn.
(sjá slökunaræfingu til hliðar)
3. væntingastjórnunÞeir sem hafa séð hunda í útlöndum, á kaffihúsum, í
verslunarmiðstöðvum og í strætó/
lest sjá að þar eru hundarnir rólegir
og allir láta þá vera. Þetta er ákveðin
væntingastjórnun, hundarnir læra
að í þessum aðstæðum fái þeir enga
athygli og þá fara þeir að slappa af.
Venjum því hundinn á að hann fái
litla sem enga athygli á kaffihúsum.
Hann fái ekki að heilsa öllum og
ekki leyfa öllum að klappa hund-
inum, því það gæti mögulega verið
erfiðara fyrir hann. Þá getur verið
sniðugt að staðsetja hundinn undir
Skotheld
kaffihúsaráð fyrir
hundaeigendur
Það er hægt að móta hundinn
til að slaka á með því að nota
nammi. En þá skiptir það miklu
máli hvernig þú notar nammið svo
hann sé ekki bara að stara á þig og
bíða eftir næsta nammibita. Hér
er dæmi um slökunaræfingu. At-
hugið að þessi æfing er hljóðlaus,
fyrir utan rólegt hrósorð þegar þú
gefur nammið. Ekki ná augnsam-
bandi við hundinn, heldur horfðu
aðeins til hliðar við hundinn.
l Sittu á stól. Hafðu hundinn
í taumi. Vertu með nammi í
hendi. Nú er hundurinn alveg
örugglega kominn til þín og er
að bíða eftir að fá nammið.
l Ef hann sýnir óæskilega
hegðun, sem við oft köllum
„frekjuhegðun“, vælir, krafsar
eða heimtar nammið þarftu að
bíða þangað til hann hættir því.
Um leið og hann þegir gefur þú
honum nammi. Þannig kennir
þú honum að bíða þolinmóður
áður en æfingin byrjar.
l Þegar hann situr fyrir framan
þig og bíður eftir nammi, bíður
þú eftir því að hann horfi ekki
á þig. Þegar hann lítur til hliðar
eða niður setur þú nammi á
gólfið milli framfóta hans. Það
er fínt að hrósa mjög rólega í
þessari æfingu og gefa nammi
með rólegri hreyfingu. Ástæðan
fyrir því að við setjum nammið
á milli framfóta hans er að
við erum að móta hann í að
liggja og þá er sniðugt að gefa
nammið þar sem við viljum
hafa hundinn. Hundar átta sig á
þessu og vilja þá vera þar sem
nammið birtist. Þetta er endur-
tekið oft.
l Vonin er sú að fljótlega fari
hann að liggja og bíða eftir
namminu á gólfinu þar sem það
birtist alltaf. Við erum að leyfa
honum að uppgötva sjálfur
að það borgi sig að leggjast og
slappa af þegar ekkert er að
gerast.
l Þegar hann er farinn að skilja
að það borgar sig að vera ró-
legur máttu byrja að lengja
á milli þess sem hann fær
nammið.
l Þessa slökunaræfingu er gott að
æfa á stól við borð svo það líkist
kaffihúsi.
l Ég mæli með að æfa í 10 mínút-
ur í senn, einu sinni, tvisvar eða
þrisvar á dag þar til hann skilur
æfinguna.
l Það getur verið að hundurinn
þurfi marga nammibita á
stuttum tíma til að byrja með,
þess vegna þurfa bitarnir að
vera mjög litlir og auðveldir að
tyggja eða helst gleypa.
l Síðan má minnka nammið
þegar hundurinn er orðinn van-
ur því að liggja slakur. Þá er best
að gefa nammi stundum og
stundum ekki.
Slökunaræfing með nammi
algeng merki sem gefa
til kynna að hundinum
líði ekki vel
hundurinn er órólegur, hlustar
ekki á þig, másandi út að eyrum,
vælinn, stífur í líkamanum,
geispar mikið, augun stærri en
venjulega, hrukkur í andlitinu,
virðist „þreytulegur í andlitinu“.
sumir hundar geta virkað
mjög rólegir þegar þeim líður
ekki vel, þeir geta reynt að fela
sig undir stól eða bak við þig,
vera stirðir, titra, líta undan,
snúa höfðinu eða sleikja mikið
út um ef reynt er að tala við þá
eða klappa. aðrir hundar gelta
meira þegar þeir eru hræddir
eða stressaðir.
það er mikilvægt að hunda-
eigandi viti hvað þeirra hundur
getur og það eru því miður
ekki allir hundar tilbúnir að
fara á kaffihús. ef þig grunar að
honum líði ekki vel þarftu að
fara með hann heim. hægt er að
koma á Merkjamál og stress
fyrirlestur hjá okkur í hunda-
akademíunni.
Í tilefni þess að
veitinga- og kaffi-
húsum á Íslandi,
sem uppfylla
ákveðin skilyrði, er
nú heimilt að bjóða
hunda og ketti vel-
komna í heimsókn
setti Heiðrún Klara
Johansen, hunda-
þjálfari og hunda-
atferlisfræðingur hjá
HundaAkademíunni
nokkur góð ráð
saman fyrir lesendur.
Hún segir mikilvægt
að fólk undirbúi
hundana sína vel
áður en það fer með
þá af stað í kaffihúsa-
ferð.
heiðrún gefur þeim sem vilja fara á kaffihús með hundinn sinn góð ráð.
fréttablaðið/ernir
eða á bak við stólinn þinn þannig að
fólk komist ekki eins auðveldlega að
honum. Athugið að ekki vilja allir
hundar fá klapp frá ókunnugum.
4. taktu ábyrgð á hundinuMHundurinn má ekki merkja
(pissa). Þeir hundar sem eru líklegir
til þess þurfa að vera með svokallað
rakkabindi um mittið (ef slys verður
þarft þú strax þrífa upp, ekki ætlast
til þess að starfsfólk þrífi eftir þig).
Athugið að algengt stress-merki er
að hundar pissi/kúki. Ef hundurinn
er að væla mikið, gelta eða er óróleg-
ur, þá er best að fara með hann burt
af staðnum og æfa hann svo betur í
umhverfisþjálfun, kenna honum að
vera rólegur í svona aðstæðum áður
en þið reynið aftur.
5. MerkjaMál hundaKynntu þér merkjamál hunda til að geta lesið
hundinn og vitað hvort honum
líður vel í þessum aðstæðum. Virtu
persónulegt rými hundsins og ef
honum virðist ekki líka að vera
nálægt ókunnugu fólki þá skaltu
staðsetja hann þannig að þú sért á
milli.
kaffihúS
er ekki
leikSvæði fyrir
hundinn og á
hann því að
vera rólegur og
Slappa af.
1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r62 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
1
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:1
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
1
-7
F
4
4
1
E
3
1
-7
E
0
8
1
E
3
1
-7
C
C
C
1
E
3
1
-7
B
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K