Fréttablaðið - 11.11.2017, Side 122

Fréttablaðið - 11.11.2017, Side 122
1. Mikilvægi uMhverfisþjálfunarHundurinn þarf að vera vel umhverfisþjálfaður. Það þýðir að hann þarf að vera vanur að fara á nýja staði og hann þarf að geta verið rólegur í þeim aðstæðum. Ef hann er ekki vanur er gott að venja hann við með því að fara í heimsóknir til vina og ættingja. 2. slökunHundurinn á að vera í slökun á kaffihúsi. Kaffihús er ekki leiksvæði fyrir hundinn og á hann því að vera rólegur og slappa af. Fín leið til þess að ná slökun er að halda um axlir og tala rólega til hans. Hægt er að strjúka eða nudda axlir til að losa um spennu. Mikil- vægt er að vera róleg/ur sjálf/ur til þess að smita frá sér ró í hundinn. (sjá slökunaræfingu til hliðar) 3. væntingastjórnunÞeir sem hafa séð hunda í útlöndum, á kaffihúsum, í verslunarmiðstöðvum og í strætó/ lest sjá að þar eru hundarnir rólegir og allir láta þá vera. Þetta er ákveðin væntingastjórnun, hundarnir læra að í þessum aðstæðum fái þeir enga athygli og þá fara þeir að slappa af. Venjum því hundinn á að hann fái litla sem enga athygli á kaffihúsum. Hann fái ekki að heilsa öllum og ekki leyfa öllum að klappa hund- inum, því það gæti mögulega verið erfiðara fyrir hann. Þá getur verið sniðugt að staðsetja hundinn undir Skotheld kaffihúsaráð fyrir hundaeigendur Það er hægt að móta hundinn til að slaka á með því að nota nammi. En þá skiptir það miklu máli hvernig þú notar nammið svo hann sé ekki bara að stara á þig og bíða eftir næsta nammibita. Hér er dæmi um slökunaræfingu. At- hugið að þessi æfing er hljóðlaus, fyrir utan rólegt hrósorð þegar þú gefur nammið. Ekki ná augnsam- bandi við hundinn, heldur horfðu aðeins til hliðar við hundinn. l Sittu á stól. Hafðu hundinn í taumi. Vertu með nammi í hendi. Nú er hundurinn alveg örugglega kominn til þín og er að bíða eftir að fá nammið. l Ef hann sýnir óæskilega hegðun, sem við oft köllum „frekjuhegðun“, vælir, krafsar eða heimtar nammið þarftu að bíða þangað til hann hættir því. Um leið og hann þegir gefur þú honum nammi. Þannig kennir þú honum að bíða þolinmóður áður en æfingin byrjar. l Þegar hann situr fyrir framan þig og bíður eftir nammi, bíður þú eftir því að hann horfi ekki á þig. Þegar hann lítur til hliðar eða niður setur þú nammi á gólfið milli framfóta hans. Það er fínt að hrósa mjög rólega í þessari æfingu og gefa nammi með rólegri hreyfingu. Ástæðan fyrir því að við setjum nammið á milli framfóta hans er að við erum að móta hann í að liggja og þá er sniðugt að gefa nammið þar sem við viljum hafa hundinn. Hundar átta sig á þessu og vilja þá vera þar sem nammið birtist. Þetta er endur- tekið oft. l Vonin er sú að fljótlega fari hann að liggja og bíða eftir namminu á gólfinu þar sem það birtist alltaf. Við erum að leyfa honum að uppgötva sjálfur að það borgi sig að leggjast og slappa af þegar ekkert er að gerast. l Þegar hann er farinn að skilja að það borgar sig að vera ró- legur máttu byrja að lengja á milli þess sem hann fær nammið. l Þessa slökunaræfingu er gott að æfa á stól við borð svo það líkist kaffihúsi. l Ég mæli með að æfa í 10 mínút- ur í senn, einu sinni, tvisvar eða þrisvar á dag þar til hann skilur æfinguna. l Það getur verið að hundurinn þurfi marga nammibita á stuttum tíma til að byrja með, þess vegna þurfa bitarnir að vera mjög litlir og auðveldir að tyggja eða helst gleypa. l Síðan má minnka nammið þegar hundurinn er orðinn van- ur því að liggja slakur. Þá er best að gefa nammi stundum og stundum ekki. Slökunaræfing með nammi algeng merki sem gefa til kynna að hundinum líði ekki vel hundurinn er órólegur, hlustar ekki á þig, másandi út að eyrum, vælinn, stífur í líkamanum, geispar mikið, augun stærri en venjulega, hrukkur í andlitinu, virðist „þreytulegur í andlitinu“. sumir hundar geta virkað mjög rólegir þegar þeim líður ekki vel, þeir geta reynt að fela sig undir stól eða bak við þig, vera stirðir, titra, líta undan, snúa höfðinu eða sleikja mikið út um ef reynt er að tala við þá eða klappa. aðrir hundar gelta meira þegar þeir eru hræddir eða stressaðir. það er mikilvægt að hunda- eigandi viti hvað þeirra hundur getur og það eru því miður ekki allir hundar tilbúnir að fara á kaffihús. ef þig grunar að honum líði ekki vel þarftu að fara með hann heim. hægt er að koma á Merkjamál og stress fyrirlestur hjá okkur í hunda- akademíunni. Í tilefni þess að veitinga- og kaffi- húsum á Íslandi, sem uppfylla ákveðin skilyrði, er nú heimilt að bjóða hunda og ketti vel- komna í heimsókn setti Heiðrún Klara Johansen, hunda- þjálfari og hunda- atferlisfræðingur hjá HundaAkademíunni nokkur góð ráð saman fyrir lesendur. Hún segir mikilvægt að fólk undirbúi hundana sína vel áður en það fer með þá af stað í kaffihúsa- ferð. heiðrún gefur þeim sem vilja fara á kaffihús með hundinn sinn góð ráð. fréttablaðið/ernir eða á bak við stólinn þinn þannig að fólk komist ekki eins auðveldlega að honum. Athugið að ekki vilja allir hundar fá klapp frá ókunnugum. 4. taktu ábyrgð á hundinuMHundurinn má ekki merkja (pissa). Þeir hundar sem eru líklegir til þess þurfa að vera með svokallað rakkabindi um mittið (ef slys verður þarft þú strax þrífa upp, ekki ætlast til þess að starfsfólk þrífi eftir þig). Athugið að algengt stress-merki er að hundar pissi/kúki. Ef hundurinn er að væla mikið, gelta eða er óróleg- ur, þá er best að fara með hann burt af staðnum og æfa hann svo betur í umhverfisþjálfun, kenna honum að vera rólegur í svona aðstæðum áður en þið reynið aftur. 5. MerkjaMál hundaKynntu þér merkjamál hunda til að geta lesið hundinn og vitað hvort honum líður vel í þessum aðstæðum. Virtu persónulegt rými hundsins og ef honum virðist ekki líka að vera nálægt ókunnugu fólki þá skaltu staðsetja hann þannig að þú sért á milli. kaffihúS er ekki leikSvæði fyrir hundinn og á hann því að vera rólegur og Slappa af. 1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r62 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð 1 1 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :1 5 F B 1 2 8 s _ P 1 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 1 -7 F 4 4 1 E 3 1 -7 E 0 8 1 E 3 1 -7 C C C 1 E 3 1 -7 B 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 8 s _ 1 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.