Fréttablaðið - 11.11.2017, Qupperneq 24
Það er ekkert kaffi til, ég gleymdi að kaupa það,“ segir Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur afsakandi og snýst í kringum blaðamann og
ljósmyndara í eldhúsi heimilis síns í
miðborginni. „Það er svona sumar
bústaðastemning hér, þetta er okkar
annað heimili. Við fjölskyldan dvelj
um hér oftast bara um jól og sumur,“
segir Ólafur Jóhann.
Heimilið hefur auðvitað allt annað
yfirbragð en látlaus sumarbústaður.
Þetta er hlýlegt heimili, teikningar
eftir barn á vegg í eldhúsinu, litrík
listaverk eftir Kristján Davíðsson og
önnur fínlegri eftir Hörð Ágústsson
í stofunni. Eldhúsið er þannig búið
að það er alveg á hreinu að í því eru
eldaðar máltíðir af metnaði. Ólafur
Jóhann er staddur á Íslandi til að
kynna nýja bók sína, Sakramentið.
Það gerir hann ekki oft þótt hann
hafi gefið út fjölda skáldsagna á
Íslandi síðustu áratugi.
Sonurinn fluttur til Íslands
Ólafur Jóhann hefur síðustu ára
tugi búið í New York, á Manhattan
rétt við Central Park með eiginkonu
sinni Önnu Ólafsdóttur. Þau eiga
þrjú börn, Ólaf Jóhann 24 ára, Árna
Jóhann 22 ára og Sóleyju 13 ára. Þau
tala öll reiprennandi íslensku.
„Heimilið er eini staðurinn þar
sem þau tala íslensku. Þegar þau
reyndu annað þá þóttumst við Anna
ekki skilja þau. Ef þú gefur þig í þessu
þá er þetta búið. Við erum gallhörð í
að leggja rækt við íslenskuna,“ segir
Ólafur. Yngri sonur hans er nýfluttur
til Íslands og býr í næsta húsi. „Hann
fékk atvinnutilboð vestra eftir að
námi lauk. Hann afþakkaði þau
og flutti til Íslands. Taugin er sterk.
Honum líkar vel að vera hér,“ segir
Ólafur Jóhann frá á meðan hann
sýnir ýmsa muni á heimilinu sem
tengjast lífi hans.
Á efri hæðinni er vinnustofa og
andi föður hans, Ólafs Jó hanns Sig
urðssonar rithöfundar, alltumlykj
andi. Pípurnar hans eru á skrifborð
inu. Mynd af Ólafi Jóhanni litlum,
líklega um fimm ára gömlum með
ansi skringilega klippingu, grípur
augað. „Ég klippti mig sjálfur,“ segir
hann og hlær. Hann var greinilega
ekki endilega til friðs þegar hann
var lítill.
En svo sannarlega er hann til friðs
á fullorðinsárum.
„Það eru engar beinagrindur í
skápnum hjá Ólafi Jóhanni.“ „Hann
er virkilega góður drengur.“ „Hreinn
og beinn fjölskyldumaður.“ „Mjög
rólegur, æsir sig aldrei. Aldrei nokk-
urn tímann.“ „Eldklár. Klikkar aldrei,
er alltaf til staðar.“
Þetta eru lýsingar samferða
manna, sonar og vina sem blaða
maður heyrði í um skapgerð Ólafs
Jóhanns að honum óspurðum.
Kynferðisofbeldi kveikjan-
Sögusvið nýrrar skáldsögu Ólafs
Jóhanns, Sakramentið, tengist
uppvexti hans því hann er alinn
upp á Suðurgötu í Reykjavík og
gekk í Öldugötuskóla. Hann var
vanur að leika sér á túninu skammt
frá Landakotsskóla og þótt honum
hafi ekki beinlínis staðið stuggur af
starfsmönnum skólans segist hann
hafa haft á þeim fyrirvara.
Kveikjan að skáldsögunni er gróft
kynferðislegt ofbeldi sem ungir nem
endur skólans voru beittir af presti
og skólastjóra Landakotsskóla. Séra
A. George og Margréti Müller, þýskri
kennslukonu við skólann.
„Við sem vorum í Öldugötuskóla
vorum sum ódælir villingar. Við
fórum þaðan í Melaskóla í ellefu
og tólf ára bekk og svo í Hagaskóla.
Þegar við fórum yfir í Melaskóla
vorum við sett til hliðar. Það var ekk
ert verið að blanda okkur saman við
aðra nemendur því við þóttum ekki
eins prúð. Ég sjálfur var mjög fyrir
ferðarmikill strákur. Mamma þurfti
oft að hitta skólastjórann Í Öldu
götuskóla vegna mín. Þetta voru
miklar andstæður, ólætin í sumum
Öldugötuskólakrökkunum og svo
ríkti þögnin í Landakotsskóla þar
sem var nánast heragi,“ segir Ólafur
Jóhann.
Hann segir skrýtið að hugsa til
þess ofbeldis og illu meðferðar sem
nokkur börn í skólanum þurftu að
þola á meðan hann lék sér frjáls
og glaður. Þegar málið hafi komið
upp í fjölmiðlum hafi hann hugleitt
hversu alvarlegar afleiðingar ofbeldis
geta verið. Nokkru seinna hafi svo
kviknað hugmynd að skáldsögu með
tengingu í þetta mál.
Líðum ekki ofbeldi „Ég las um
málið í fjölmiðlum og fór inn á
spjallsíður fólks sem hafði orðið
fyrir barðinu á þeim. Ég talaði líka
við fólk sem var í skólanum á þess
um tíma og við blaðamenn og fleiri
sem komu að málinu með ýmsum
hætti. Upphaf bókarinnar má rekja
til frásagnar þolanda á spjallsíðu.
Hugmyndin náði mér algjörlega.
Þessi saga. Ég fékk þessa söguper
sónu í kollinn, franska nunnu sem
„Það er eins og flóðgátt hafi opnast. Alls staðar í heiminum. Allur kvikmyndaheimurinn er upp í loft vegna þess að við
líðum ekki ofbeldi gegn konum og börnum,“ segir Ólafur Jóhann. FréttAbLAðið/SteFán
Ólafur Jóhann Ólafsson segir ritstörfin
styðja stjórnunarstörfin hjá Time Warner.
Hann er leiðandi í samruna AT&T og Time
Warner sem verður einn sá allra stærsti á
heimsvísu undanfarin ár, ef hann verður
samþykktur. Það er slagur fram undan sem
að hans mati er nauðsyn að vinna til að geta
keppt við risa á markaði. Að auki er pólit-
ískur hiti í samfélaginu eftir kjör Donalds
Trump í embætti forseta Bandaríkjanna.
Halda höfði
á tímum
Trumps
hefur tengingu við Ísland og byrjaði
að skrifa strax. Hún var komin í
hausinn á mér og krafðist útrásar,“
segir Ólafur Jóhann frá. „Leikarar
kvarta stundum yfir því að þurfa að
búa sig undir hlutverk með því að
létta sig um mörg kíló eða setja sig á
einhvern hátt í spor persóna sinna.
Við rithöfundar göngum stundum
með sögupersónur okkar í koll
inum í mörg ár.“
Ólafur Jóhann segist hugsa um
hversu erfitt þolendur hafa átt með
að segja frá ofbeldi. Tímarnir eru
að breytast. „Það er eins og flóðgátt
hafi opnast. Alls staðar í heiminum.
Allur kvikmyndaheimurinn er upp í
loft vegna þess við líðum ekki ofbeldi
gegn konum og börnum. Við sam
þykkjum ekki lengur þessa þögn og
afleiðingar ofbeldis á okkar nánustu
og samfélagið allt. Áður fyrr var öllu
haldið niðri. Núna er klippt á samn
inga við dólga sem hafa komist upp
með misgjörðir árum saman í kvik
myndaiðnaði og annars staðar. Þá
sprengdi ríkisstjórnina í sumar mál
sem varðaði ofbeldi gegn stúlkum.
Þetta snertir mig, ofbeldi gegn
konum og börnum, allt ofbeldi. Auð
vitað er núna allt breytt í Landakots
skóla þar sem Ingibjörg Jóhannsdótt
ir og kennarar vinna afar gott starf og
eiga ekki skilið að fortíðin trufli það.“
Lífið í new York
Ólafur Jóhann hefur árum saman
skrifað á morgnana og haldið svo
til vinnu hjá Time Warner. Hann er
afkastamikill en síðasta bók hans
kom út fyrir tveimur árum. Hann
lýsir dæmigerðum degi.
„Ég byrja morgnana alltaf á því að
skrifa. Ég sest upp á kontór hjá mér
heima og skrifa í tvo til þrjá tíma. Ég
er búinn rétt fyrir tíuleytið og held þá
á skrifstofuna og þar tekur við hefð
bundinn vinnudagur. Ég byrja á sam
tölum við samstarfsfólk mitt og við
fólk utan fyrirtækisins eftir þörfum.
Þegar ég hef sinnt því mikilvægasta
þá hreyfi ég mig aðeins, fer jafnvel í
fótbolta, rétt hjá skrifstofunni.
Kem þá aftur endurnærður eins
og klukkan sé níu að morgni. Seinni
hluta dagsins er það vesturströndin
sem yfirstjórnin er í samskiptum við.
Þá er allt farið í gang þar. Ég er svo
kominn heim um sjö leytið ef ég þarf
ekki að fara út á kvöldin. Sem ég geri
sem minnst af.“
Það að Ólafur Jóhann sæki ekki
í að taka þátt í samkvæmislífi fer
saman við það sem sonur hans, Árni,
sem er fluttur til Íslands hefur sagt
blaðamanni. „Hann hefur róandi
áhrif. Við erum mikið saman, fjöl
skyldan. Spilum saman fótbolta og
eldum líka saman,“ sagði Árni um
föður sinn. Þau séu samhent fjöl
skylda.
„Ég er líklega „introvert“ að eðlis
fari þótt ég geti alveg tekið þátt í
félagslífi. Fer nokkuð létt með það. Ég
hef bara ekki ríka þörf fyrir það. Lífið
er ekki bara vinna og mér finnst gott
að koma heim til fjölskyldunnar.“
Ólafur Jóhann segir fjölskylduna
líklega enn samhentari vegna flutn
ingsins til New York. „Við búum
þarna úti og ættingjar okkar hér
heima. Ég held að fjölskyldur í þess
ari stöðu þurfi að vera samhentar,
við þurfum að reiða okkur hvert á
annað. En það er rétt sem Árni segir,
það er aldrei rifist á heimilinu. Ég
segi stundum að það sé vegna þess
að ég sé svo undirgefinn. Lífið er gott
þannig. Við förum í göngur, stundum
útivist. Við nýtum vel Central Park,
förum út í sveit um helgar. Við
AuglýsingAr þeirrA og
ímyndArherferðir eru
sAkleysislegAr. – Við
gerum ekkert illt Af
okkur, Við erum nú
bArA fÓlk sem fAnn
eitthVAð upp í bíl-
skúrnum hJá frænku!
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
↣
1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r24 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:1
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
1
-8
E
1
4
1
E
3
1
-8
C
D
8
1
E
3
1
-8
B
9
C
1
E
3
1
-8
A
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K