Fréttablaðið - 11.11.2017, Blaðsíða 29
eru ekkjur, einstæðar mæður
með mörg börn. Mjög margar hafa
orðið fyrir ofbeldi,“ segir Eliza.
„Og ýmsar hættur steðja að, svo
sem barnahjónabönd sem fjölgar
í flóttamannabúðum. UN Women
starfrækja griðastaði í búðunum þar
sem konur og stúlkur eru öruggar.
Þær geta sett börnin í gæslu, fengið
menntun og hjálp. Mestu máli
skiptir fræðsla um hversu skaðlegt
það er að gifta ungar stúlkur eða
jafnvel börn eldri mönnum.“
Getum gert betur
„Ég tók viðtal við unga stúlku sem
á sér stóra drauma. Hún stundar
nám í ensku og hana dreymir um
að verða túlkur. Þarna eru ungar
konur sem eru að læra á tölvur,
saumaskap og margt fleira. Þarna
geta konur líka hist og átt stundir
saman. Talað saman. Kvennasam-
staðan skiptir mjög miklu máli.
Það þarf að fjölga úrræðum á þess-
um griðastöðum og styrkja þá. Það
var ein af ástæðum þess að ég slóst í
för með UN Women þangað, “ segir
Eliza en samtökin segja hundruð
kvenna á biðlista eftir þjónustu
griðastaðanna.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
heimsæki flóttamannabúðir. Það
sem kom mér mest á óvart var
umfangið. Þarna fæðast 80 börn á
viku. Þarna eru skólar, vinnustaðir
og aðalgata þar sem er hægt að
kaupa ýmislegt. En þetta eru gámar
staðsettir í eyðimörk. Þarna er ekki
gott aðgengi að vatni og rafmagni.
Fólk hélt að það væri að koma til
nokkurra vikna dvalar en er svo
búið að vera þarna í fimm ár. Ég
komst fljótt að því að auðvitað vilja
þau öll fara heim. Þau eru sárafá sem
fara til Evrópu úr búðunum. Íbúar
í búðunum taka ekki einu sinni
eftir því þegar fjölskyldur hverfa úr
hópnum.“
Fólk taki afstöðu
Eliza hefur brennandi áhuga á jafn-
réttismálum og skýra sýn í þeim
efnum. „Ég hef alltaf talið það mikil-
vægt að konur fái jafngóð tækifæri í
þessu lífi og karlar.
Við erum öll þegnar í þessari ver-
öld, karlar og konur, og tækifærin
eiga að vera jöfn. Ég reyni að kenna
börnum mínum um jafnréttismál
og vona að ég hafi náð einhverjum
árangri. Strákarnir mínir taka t.d.
eftir því þegar þeir fá nýtt legódót
að í því eru langoftast legókarlar en
sjaldan konur og það særir réttlætis-
kenndina.
Um daginn þegar við vorum að
borða kvöldmat voru elstu strák-
arnir mínir að karpa um hvor þeirra
væri betri femínisti. Þá varð ég mjög
stolt,“ segir Eliza. „Uppeldið hefur
skilað einhverju. Mér finnst líka
nauðsynlegt að fólk viti að það hefur
rödd og allar raddir skipta máli. Ef
fólk er óánægt á það að taka afstöðu,
láta í sér heyra, skrifa fyrirtækjum
eða stofnunum. Segja skoðun sína á
opinberum vettvangi. Ég reyni líka
að vera rödd í mínu starfi, enda er ég
meira í sviðsljósinu núna.“
Karlmenn með í liði
Konum fækkaði umtalsvert á þingi
í nýafstöðnum kosningum. Hvað
finnst henni um það og hver er
leiðin fram á við? „Þetta er aftur-
för. Það er alveg ljóst. En ég held að
það sé mjög mikilvægt að hafa karl-
menn með okkur konum í liði. Við
getum ekki ýtt þeim út á jaðarinn,
þeir þurfa að taka þátt í að koma á
jafnrétti. Við erum mjög framarlega
á heimsvísu hvað varðar jafnréttis-
mál en getum alltaf gert betur.“
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Mögnuð glæpasaga
úr samtímanum
Arnaldur eins og
hann gerist bestur
„Maður er hreinlega með stjörnur
í augunum eftir lesturinn ... hittir
svo sannarlega í mark ...“
S T E I N Þ Ó R G U Ð B J A R T S S O N / M O R G U N B L A Ð I Ð
Metsölulisti
Eymundsson
Heildarlisti – 1. – 7. nóv.
1.
Sterkar raddir með hreim
Hún segist sannfærð um að
stjórnarmyndun fari vel. „Guðni
er sérfræðingur í sögu stjórnmála
á Íslandi og þekkir þetta vel. Hann
hefur góða yfirsýn og rólega lund.
Tekur bara eitt skref í einu. Þetta
er í öruggum höndum frá mínum
sjónarhóli séð. Við þurfum að læra
að vinna saman, finna það sem
sameinar frekar en það sem sundr-
ar. Það er nefnilega mjög margt
sem sameinar.“ segir Eliza. „Það er
allajafna gott fólk sem tekur þátt í
íslenskum stjórnmálum. Fólk sem
leggur sitt af mörkum til að bæta
samfélagið okkar.“
Henni eru að sjálfsögðu málefni
innflytjenda afar hugleikin. „Það
eru forréttindi að fá að vera í þessu
hlutverki. Ég get valið mér verkefni
og hef tækifæri til að vekja athygli
á brýnum málum með því að ræða
um þau. Taka þátt í málefnastarfi.
Ég geri það sem kona og auðvitað
líka sem innflytjandi. Ég tala með
hreim og ber orð fram rangt. Ég
er ekki með sama orðaforða og
aðrir Íslendingar sem eru fæddir
hér og uppaldir. En það er mikil-
vægt að við sem tölum með hreim
og beygjum stundum vitlaust og
svona, höfum samt sterka rödd.
Við þurfum að hvetja innflytj-
endur til að læra tungumálið,“
segir Eliza.
Sátt við lífið
Helsta áhugamál Elizu eru bók-
menntir. Hún hefur haft nóg að
lesa upp á síðkastið því hún er í val-
nefnd fyrir kanadísk bókmennta-
verðlaun, BC National Award for
Canadian Non-Fiction. Og sjálfri
finnst henni gaman að skrifa. Ætlar
hún að skrifa bók á Bessastöðum?
„Ég hef aldrei skrifað bók og get
heldur ekki sagt að ég gangi með
bók í maganum. Jú, mér finnst
gaman að skrifa en er nú samt ekki
að skrifa skáldsögu. Ég geri það ekki
nema ég fái góða hugmynd. Kannski
gerist það á morgun? Hver veit? En
ég er hins vegar mjög sátt við líf mitt
hér.“
Íbúar Í búðunum taka
ekki einu sinni eftir
þvÍ þegar fjölskyldur
hverfa úr hópnum.
↣
Zaatari-búðirnar
1 af hverjum 3 konum í Zaatari-
búðunum hefur verið gift á
barnsaldri.
1 af hverjum 5 konum í búðunum
er fyrirvinna fjölskyldu sinnar.
Atvinnutækifæri fyrir konur í
Zaatari eru sárafá.
Þú getur sent sms- KONUR í
1900 (1.490 kr.) og veitt þeim
atvinnu og öruggt skjól.
h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 29l A U g A R D A g U R 1 1 . n ó v e m B e R 2 0 1 7
1
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:1
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
1
-6
6
9
4
1
E
3
1
-6
5
5
8
1
E
3
1
-6
4
1
C
1
E
3
1
-6
2
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K