Fréttablaðið - 11.11.2017, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 11.11.2017, Blaðsíða 34
Ananaslausar pítsur á Álftanesi Álftaneskaffi er fjölskyldurekið kaffi- og veitingahús sem er í eigu hjónanna Skúla Guðbjarnar- sonar og eiginkonu hans, Sigrúnar Jóhannsdóttur. Þau hjón hafa verið með fyrirtækið í rekstri í tvö ár núna í nóvember. Þau leggja áherslu á matreiðslu frá grunni og úrvals hráefni og bjóða upp á súpur, heimabökuð brauð og forláta pítsur sem hafa slegið í gegn á Álftanesi og víðar. „Galdurinn er í sósunni, við notum íslenskt sjávarsalt, blóðberg og plómutómata. Hveitið er ítalskt og við erum eingöngu með súrdeigspítsur, þær eru miklu hollari og fara vel í maga.“ Álftanes er ef til ekki fyrsti viðkomustaður í huga margra þegar panta á fjölskyldupítsuna, en vinalegt viðmót starfs- fólksins og bragð- gæði matarins hafa spurst út. „Við höfum ekki mikið auglýst en hér er allt vitlaust að gera, mikil t r a f f í k . Við viljum gera góðan m a t o g senda gesti okkar heim sadda og sátta. Markmiðið er að gleðja með mat.“ Matseðillinn er óhefðbundinn og margt sett á pítsurnar sem ekki sést á öðrum matseðlum. „Það er töluverður aldursmunur á því hvað fólk pantar sér, börnin eru auðvitað meira í pepperoni. Vin- sælasta pítsan okkar er avókadó- pítsa, með rauðlauk, sveppum, kirsuberjatómötum, vorlauk, sterku mæjó og lime-pipar. Það kom okkur á óvart hversu vinsæl hún er, skákar hefðbundnu áleggi.“ Forseti Íslands býr í næsta nágrenni við Álftaneskaffi og er reglulegur gestur þar líkt og fleiri íbúar á svæðinu. „ Það er ekkert leyndarmál að Guðni Th. kemur hingað og sækir sér pítsu fyrir fjölskylduna á Bessastöðum. Það var nokkuð skondið atvik um daginn, hér voru nokkrir að panta pítsur og þá gengur Guðni hérna inn. Þegar við- s k i p t a v i n - irnir urðu G u ð n a va r i r þ á l é t u þ e i r taka ananas- inn af píts- unum sem þeir voru að panta. Við h l ó g u m svolítið að þessu.“ A ð v e n t - a n n á l g a s t óðfluga með til- heyrandi jólastússi og að mörgu er að hyggja fyrir jólahaldið og margir fara að huga að því hvað eigi að vera í matinn á jólum. En er pítsa við hæfi? „Hví ekki, góð pítsa er frábær matur, ég er einmitt að huga að því hvað gæti verið viðeigandi á jóla- pítsu og er með nokkur hráefni í huga. Við kappkostum að vera frum- leg og í mínum huga er ekkert sem ekki passar á góða pítsu,“ segir Skúli og hendist af stað í jólapítsugerð. Heimildir herma að nafnið pizza hafi fyrst komið fram á 17. öld. Frægasta pítsan er án efa M a r g a r i t a s e m pítsugerðarmaðurinn Raffaele Esp- os ito setti saman fyrir Margaritu frá Savoy, eiginkonu Umberto kon- ungs Ítala, á þeim tíma. Samsetning pítsunnar er með skírskotun í fána- liti þjóðarinnar, grænt basil, rauð tómat sósa og hvítur mozzarella- ostur. Þessi grunnsamsetning píts- unnar er helsta einkenni hennar enn í dag. Haukur Már Gíslason, sem nýverið opnaði pítsustaðinn Flatey á Grandagarði í samstarfi við félaga sína, segir að Margarítan sé metn- aðarfyllsta form pítsunnar, „hennar á njóta með lokuð augun og finna hvert bragð fyrir sig“. Á veitingastaðnum Flatey er hald- ið sterkt í upprunalegu hefðina frá Napolí. „Ég er með þráhyggju fyrir þessari gerð af pítsu. Kynntist Nap- olípítsunni í Bandaríkjunum fyrir einhverjum árum síðan og kolféll fyrir henni.“ Mikill metnaður er hjá þeim pítsubændum í Flatey og flytja þeir inn allt hráefni sjálfir. „Við notum einvörðungu ítalska tómata sem við flytjum inn beint frá bónda, þeir eru lítið beiskir og henta vel til sósugerðar. Hveitið okkar er lífrænt og líka frá Ítalíu og mozz- arella-osturinn okkar er einstakur.“ Pítsa er ekki það sama og pítsa Flatbakan er án efa drottning skyndibitans, uppruni hennar er rakinn til ítölsku borgarinnar Napolí. Gott hráefni er frumforsenda góðrar pítsu segja pítsugerðarmenn. Pítsan hefur aldrei verið vinsælli og ekkert lát á því. Bökunartíminn á pítsunum er ekki nema ein mínúta. „Við hitum ofninn í 500 gráður og það styttir eldunartímann umtalsvert.“ Galdurinn er í sósunni, við notum íslenskt sjávarsalt, blóðberg og plómutómata. Leitin að jólapítsunni – tillögur að áleggi Tillaga 1: Piparostur, fíkjur, gouda-ostur, klettasalat. Tillaga 2: Rauðar karamellukart- öflur, lamb, sveppasósa, rauð ber og granateplakjarnar. Tillaga 3: Kalkúnn, sveppir, sellerí, pekanhnetur og trönuberjasulta. Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir astahrafnhildur@frettabladid.is Pítsugerð er list Haukur Már fór í pílagrímsför til Napolí til að finna hina einu réttu pítsu, hann lét ekki sitja við orðin tóm og borðaði fimm pítsur á dag í tvær vikur. Svo virðist sem hann hafi dottið niður á réttu samsetninguna því ekkert lát er á vinsældum stað- arins þrátt fyrir að það sé skammt liðið frá opnun. Athygli vekur að bökunartíminn á pítsunum er ekki nema ein mínúta. „Við hitum ofninn í 500 gráður og það styttir eldunar- tímann umtalsvert, og það segir sitt um vinsældirnar að biðtíminn er skammur, það hentar mörgum vel.“ En eru pítsur hollur matur? „Við telj- um að okkar pítsur séu það, við erum með súrdeig sem gerjast í sólarhring og við það brotnar sterkjan og glút enið niður og þar af leið- andi fer deigið betur í maga.“ Blaðamanni lék for- vitni á að vita hvaðan nafn staðarins kemur, Flatey, og hvort það sé tenging við eyjuna fögru á Breiðafirði. „Það eru ýmsar teng- ingar bæði við eyjuna og annað en í rauninni er þetta þann- ig til komið að pítsurnar o k k a r e r u ekki flatar, það er upphleyptur kantur í kring og því eru þær ei flatar – Flatey.“ Pítsan er án ef langvinsælasti skyndiréttur þjóðarinnar og margir fastheldnir á álegg og tegundir. „Íslendingar eru vanari bandarísku útgáfunni af pítsu og hrúga öllu saman þannig að hún verður meira eins og heitur brauðréttur.“ Kæmi til greina að vera með jóla- pítsu –„ ef að við færum út í slíkt þá myndi ég væntanlega vera með grænt pestó, pepperoni-jólatré og nota mikið af parmesan, það er aldr- ei að vita nema við gerum eitthvað slíkt,“ segir Haukur Már pítsugerðar- maður. Margarítan er Metn- aðarfyllsta forM pítsunnar, hennar á njóta Með lokuð augun og finna hvert bragð fyrir sig. Skúli á Álftaneskaffi hugar að jólapítsu ársins. 1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r34 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 1 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :1 5 F B 1 2 8 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 1 -9 7 F 4 1 E 3 1 -9 6 B 8 1 E 3 1 -9 5 7 C 1 E 3 1 -9 4 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 2 8 s _ 1 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.