Fréttablaðið - 11.11.2017, Page 106
„Þar fór í ver,“ sagði Konráð. „Okkur liggur á en þurfum að
komast í gegnum þetta völundarhús fyrst.“ Hann dæsti og
bætti við vonsvikinn, „við verðum of sein.“ „Of sein, of sein,“
sagði Kata pirruð. „Hvað gerir til að vera aðeins of sein?“
bætti hún við. En Lísaloppa og Konráð voru ekki sammála.
Þau vildu mæta á réttum tíma.
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
275
Getur þú hjálpað þeim að komast í gegnum völundarhúsið?
?
?
?
Aldís Gyða Davíðsdóttir er söng-
kona, brúðugerðarkona, leikkona
og textahöfundur. Hvað skyldi
vera skemmtilegast? Það er bara
svo dásamlega gaman að skapa og
ég er alltaf að uppgötva eitthvað
nýtt sem ég get gert. Get ómögulega
valið á milli.
Hvað finnst þér heillandi við
brúðugerð? Þegar ég held ég sé að
fara að búa til einhvers konar brúðu
en enda svo með allt öðruvísi brúðu,
svolítið eins og brúðurnar hjálpi til
með hvernig þær koma út á end-
anum
En erfiðast? Þegar ég þarf að vinna
með eitthvað mjög tæknilegt eins
og vængina hjá hrafninum Íó sem
ég þurfti að endurgera sex sinnum.
Hafðir þú áhuga á að búa til brúð-
ur þegar þú varst lítil? Ég var alltaf
að föndra eitthvað þegar ég var lítil
og gera ýmiskonar föndurtilraunir:
Brúður og önnur listaverk.
Á hverju byrjar þú þegar þú býrð
til brúðu? Fyrst finn ég út hvernig
tegund af brúðu ég vil gera, stangar-
brúðu, strengjabrúðu, handbrúðu,
bland af þessu öllu eða eitthvað
alveg nýtt.
Býrðu til grímur? Ég er mikil
grímukona og hef búið til margar
grímur, fólks- og dýragrímur.
Hvaða efni notar þú? Ég vinn mest
með pappamassa því hann er svo
léttur og þægilegur.
Hefur þú stjórnað brúðum á sýn-
ingum? Ég hef stjórnað mörgum
brúðum í ennþá fleiri sýningum. Ég
var í Brúðubílnum og Leikbrúðu-
landi fyrst, svo setti ég sjálf upp
brúðu- og grímusýningu fyrir börn
sem hét Fiskabúrið, svo brúðusýn-
inguna Tröll síðasta vor og núna Íó
sem sýnd er í Tjarnarbíói.
Átt þú börn? Já, ég á tvær stelpur,
Iðunni þriggja ára og Emblu átta ára.
Hafa draumar þínir ræst? Draumar
eru uppáhaldið mitt. Sumir hafa
ræst en ég á eftir að læra á básúnu og
eiga risastóran hund og lita hárið á
mér blátt og dansa með górillum og
eignast ofurhetjuskikkju og milljón
aðra drauma.
Draumar
eru uppáhaldið mitt
Aldís með hrafninn Íó og Hafrúnu. Þau eru aðalsöguhetjur í Íó sem sýnd er í
Tjarnarbíói og ætluð börnum á grunnskólaaldri. FréTTAblAðið/HAnnA
Hæ gosi
Spilararnir eru tveir. Þeir stokka
spilin, skipta þeim til helminga á
milli sín og hafa bunkana á hvolfi
fyrir framan sig. Síðan skiptast þeir
á að fletta upp einu spili í einu hvor
af sínum bunka og leggja í kast-
bunka á mitt borðið. Sá sem ekki
gaf, byrjar.
Þegar spilin tía til ás koma upp hjá
öðrum hvorum spilaranum gefa
þeir eftirfarandi merki.
Tía: Skella flötum lófa ofan á
bunkann.
Gosi: Hrópa Hæ, gosi!
Drottning: Blístra
Kóngur: Bera hönd að enni að her-
mannasið.
Ás: Standa upp
Sá tekur bunkann sem er fyrri til
að gefa merki og vinningsspilin eru
sett neðst í bunkann sem spilarinn
hafði fyrir framan sig. Ef báðir
spilararnir eru alveg jafn fljótir að
gefa merki er bunkinn látinn liggja
áfram á borðinu.
Sá vinnur sem endar með bunkann
allan í lokin.
SpiliðHann Almar Hólm Skúlason í
3. bekk sendi okkur þessa mynd.Listaverkið
Ég var alltaf að
fönDra eitthvað
þegar Ég var lítil og gera
ýmiskonar fönDur til-
raunir. Brúður og önnur
listaverk.
1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r46 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
krakkar
1
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:1
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
1
-8
9
2
4
1
E
3
1
-8
7
E
8
1
E
3
1
-8
6
A
C
1
E
3
1
-8
5
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K