Fregnir - 01.10.2009, Qupperneq 5
FREGNIR. Fréttabréf Upplýsingar - Félag bókasafns- og upplýsingafræða
34. árg. - 2. tbl. 2009
þetta kvöld og ákveðið að huga að samskonar uppákomu næsta vetur.
Á degi íslenskrar tungu voru börn úr Þjórsárskóla með upplestur, söng og stutta leikþætti á verkum
Steins Steinars.
Fundaraðstaða
Miðsvæðis í húsinu er góð aðstaða eða salur fyrir
litlar samkomur.
Eldri borgarar í Skeiða-og Gnúpverjahreppi hafa
komið saman í húsinu á föstudögum í vetur. Eru
þeir því komnir með fast aðsetur með fundi sína
og geta verið þar með fjölbreytta starfsemi.
Frá því í febrúar hafa konur úr báðum hreppum
komið saman á fimmtudagskvöldum í salnum í
bókasafninu. Þar hafa þær verið að prjóna, hekla
og gimba. Hafa þær verið duglegar að deila með sér
kunnáttu sinni og kennt hver annarri handverkin.
Í vetur hefur fólki gefst tækifæri til að vera með
sýningar á verkum sínum í bókasafninu. Hafa
verið sýningar á hinum ýmsu handverkum í skápum og einnig málverkasýning. Þess má geta að í
vetur hefur verið tónlistarkennsla í salnum, þá kemur kennari einu sinni í viku frá Selfossi og eru
nokkur börn úr hreppnum í tónlistarnámi.
Barnastarf
Þar sem bókasafnið er staðsett við hlið leikskólans þá var fljótlega farið að huga að heimsóknum
barnanna í safnið. Börnin koma í sögubíó og eru þá lesnar bækur og horfa þau á myndirnar úr bókinni
á tölvu. Á Alþjóðlega bangsadeginum komu börnin með bangsana sína í heimsókn og hlustuðu
á sögu um Bangsímon. Keyptir voru tveir
bókasafnabangsar og ákveðið að annar bangsinn
yrði á bókasafninu, feimni bangsinn hann Björn,
en hinn fengi að fara á leikskólann og kynnast
börnunum. Leikskólabangsinn hefur fengið
nafnið Bangsímon, honum fylgir skólataska með
pennaveski og dagbók. Er Bangsímon farinn
að fara heim með börnunum, hann kemur svo
reglulega með börnunum í heimsókn á safnið og
segir frá þeim ævintýrum sem hann hefur lent í.
Hefur þetta gert mikla lukku meðal barnanna.
Safnkennsla
Sú nýjung hefur verið í vetur að bjóða upp á skólasafnskennslu þó ekki sé búið að tengja nema brot
af safnkosti. Hafa börn úr 3. - 6. bekk Þjórsárskóla verið við safnkennslu einu sinni í viku. Þá hafa
þau getað tekið bækur til lestrar og eru þau mjög áhugasöm og ánægð með að fá að koma á safnið.
Tóku þau þátt í vali á Bókaverðlaunum barnanna 2009, og er það í stefnu safnsins að þau taki virkan
þátt á næstu árum.
Gott samstarf við Bókasafn Árborgar á Selfossi og önnur söfn á Suðurlandi er góður styrkur fyrir
lítið safn eins og Lestrarfélag Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem hefur aðeins einn starfsmann. Það er
mikilvægt að geta leitað ráða hjá stóru safni.
Þorbjörg Hj. Halldórsdóttir
forstöðumaður